Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:31 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:31 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Vísnavefurinn Húnaflói er ársgamall, nú í fyrstu ágústviku. Þar eru skráðar vísur og ljóð Strandamanna og Húnvetninga, einnig ljóð og stökur er tengjast þessum héruðum og svo flýtur með ein og ein vísa án tengingar en vefsýslumaður er þá í miklum ham að fletta bók, rekst kannski á breiðfirska vísu og setur hana inn og flýtir þannig fyrir nágrönnunum sem ekki eru enn komnir með sinn vef en geta síðar sótt vísuna með fáeinum handtökum.
Frægð hafa ýmsir sótt til orðahagleiks og fræðimönnum og rithöfundum þykir flestum skraut að versi í söguþætti. Gísli Konráðsson sem skrifaði Húnvetningasögu orti margar vísnanna sjálfur, Magnús á Syðrahóli skrifaði þætti um ágæta hagyrðinga eins og Hreggvið á Kaldrana og fjölda snjallra hagyrðinga á tuttugustu öld röðuðu hendingum í stuðla við útiverk sín eða inni:
Þá verða mér löngum ljóð á vör
og lauskveðnar hendingar,
sem fæðast við störf mín í fjósi og hlöðu,
fæðast og deyja þar. JT
Vestur á Vatnsnesi hélt Sigurður Norland í Hindisvík tryggð við jörðina sína, versagerð áa sinna og mærði víkina sína:
Fagurbúna bjarta vík
bær og túnið frjóa.
Logn við dúna, dýr og rík
drottning Húnaflóa. SN
Aftur í öldum sjáum við til Hallvarðs á Horni, er bjó í Skjaldabjarnarvík á Ströndum:
Hákallamiðin héldum á í hafið bláa
þar til sáum Hornbjarg háa,
hæstu fjöll og kletta smáa. HH
Fleira er ríkidæmi en verðbréf og fyrir öllu þarf nokkuð að hafa. Kristján Eiríksson íslenskufræðingur er brautryðjandinn sem vann að fyrsta vísnavefnum hjá grönnum okkar fyrir norðan Húnaflóann og elsti vefurinn er við Héraðsskjalasafn Skagfirðinga og þar hefur verið skráð vísnafjöld. Nú er aðalvefurinn við Árnastofnun og kenndur við Braga ás. Vinna sjálfboðaliða hefur borið uppi þetta starf. Menningarsjóðir, sem Húnaflói – kvæða- og vísnavefur hefur leitað til, hafa daufheyrst við umsóknum.
Að lokum skal rifja upp ferðavísu Eyþórs frá Uppsölum í Blönduhlíð, sem ferðast oft með strætó og þar náði vefsýslumaður tangarhaldi á þessum vísum:
Lækir, lautir og tangar
en lítið um hríslur
hálar og helvíti langar
Húnavatnssýslur.
Heima í Uppsalaeldhúsi fór Eyþór með vísuna og fékk ákúrur frá móður sinni, sem hafði mætur á ýmsum Húnvetningum svo Eyþór gerði bragarbót:
Líf fer um lautir og tanga
lifna nú brumþrútnar hríslur
Heitar og himneskar anga
Húnavatnssýslur.
Til er vísað:
Jónas Tryggvason: http://stikill.123.is/blog/2011/11/11/550654/ Til þeirra sem héldu að ég væri skáld
Sigurður Norland: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=13952&ut=1
Hallvarður Hallsson: http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=2794
Eyþór Árnason: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=25289
Bragi óðfræðivefur: http://bragi.info/
Húnaflói – Kvæða- og vísnasafn: http://bragi.info/hunafloi/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |