Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:21 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Frímerki, kjólar, þverslaufur, spil, víntegundir og húseignir eru meðal þess sem mannfólkið safnar sér til ununar og eftirlætis. Skáldin safna orðum og myndum til að gefa aðdáendum sínum verulegar, góðar og nýjar vísur og aðrir taka sér fyrir hendur að grafa upp aldargamlar vísur – eða eldri, stundum yngri, til að setja inn á vef, fara þá jafnvel að kalla sig vefsýslumenn, kannski ekki alveg jafnokar hreppsstjóranna gömlu, en líkar þó allvel að bæta við sig titli auk þess sem verkefnið er heillandi.
Á ársafmæli Húnaflóa vísnavefs í sumar varð að umræðuefni hvort ekki mætti setja sér það markmið með vísnavef að tengja saman byggðir og þorp, dal og vík eða flóa og foss. Sá er vísur skapar og vinnur með móðurmál sitt erjar nokkuð á akri tungunnar. Þar miðar þó misjafnt eins og verða vill og víða gerist. Miðlun er næsta stig. Þar verða möguleikarnir margir.
Kjarval náði að opna augu samferðamanna sína og eftirkomenda fyrir fegurð hrauna og náttúrunnar yfirleitt en skáldið Þórarinn Eldjárn lýsir því eftirminnilega með ljóðinu Kjarval málar:
Kjarval fór að mála stóra mynd
mörgum fannst það vera skömm og synd
að hann skyldi mála mosa og grjót.
Myndin fannst þeim ljót.
Síðan liðu ótal ár
öllum fór að þykja hann klár.
Enginn kvartar lengur hætishót
við horfum uppi í sveit á mosa og grjót.
Enginn heyrist segja. Þvílík synd!
Við segjum: Fallegt eins og Kjarvalsmynd.
Vísað er til:
Kjarval málar http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=4820&ut=1
Kjarval og Bjarni frá Gröf: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=10490
Eldra stökuspjall:
Einmitt slík var – móðir þín http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12203
Heiðin magnar seið: http://www.huni.is/index.php?cid=12180
Útsunnan við mána: http://www.huni.is/index.php?cid=12129
Drottning Húnaflóa: http://www.huni.is/index.php?cid=12080
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |