Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:08 0 0°C
Laxárdalsh. 10:08 0 0°C
Vatnsskarð 10:08 0 0°C
Þverárfjall 10:08 0 0°C
Kjalarnes 10:08 0 0°C
Hafnarfjall 10:08 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Café Loki
Café Loki
Pistlar | 08. október 2015 - kl. 07:42
Stökuspjall - Stutt eða löng töf
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Loki er sagður langur og mjór,
og lék þó flest með slægðum:
Óðins son var Ásaþór
efldur stórum frægðum. 

Ekki finnast margar vísur um hinn slægvitra Loka á vísnavefnum, þó sýslumenn Braga gumi af fjölskrúði vefsins, en því auðveldara er að finna Café Loka í hlaðvarpa Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti. Þar tekur Blönduósingurinn Hrönn Vilhelmsdóttir hlýlega á móti gestum með úrvals réttum, öli og listaverkum í veitingastofu. Þangað beindist förin á miðvikudegi, þrír fyrirlesarar fjölluðu um moldina sjálfa á stuttum hádegisfundi, sjálfbærni hennar svo og þekkingu og hirðuleysi landans á þessari dýrmætu auðlind sinni. Víðdælingurinn rímaði eftir sínum hætti afstöðu okkar til rusls og moldar um miðja síðustu öld. Þá gilti máltækið: Lengi tekur sjórinn við!

Að fæðast það er mikil guðagjöf,
því gaman er á þessum heimi að lenda.
En eftir stutta eða langa töf
öllu drasli verður fólk að henda.
Að rusla manni í raka moldargröf
er rúsínan í lífsins pylsuenda.
(Bjarni Jónsson frá Gröf)

Einn fyrirlesaranna hóf mál sitt með því vitna til foreldra sinna sem áminntu hana – unga og fagurhærða snót – að sóða sig ekki út í moldinni og þar væru pöddur.  Annar fyrirlesari, Ólafur Arnalds, gerði að aðalmáli tengslaleysi sérfræðinga í beit eða grösum við grunninn, þ. e. moldina. Hafdís Hanna Ægisdóttir skólastjóri kynnti skólann sinn, auglýsti eftir þori og kveikti umræður meðal gesta og svo gerðu aðrir ræðumenn. Og moldin á heima í mörgum vísum. Verkamaður á Eyrarbakka orti:

Hallar sumri, fölnar fold
fyrnast tíðir allar.
Vallargróður myndar mold
máttur jarðar kallar. 

Ögmundur prestur á Tjörn bað um að fá að rísa upp undir opnum himni í stað þess að vera moldaður:

Dauðinn nær mitt hrífur hold
hels með kaldri mundu
firða ég bið að fergja ei mold
en fleygja því út á grundu.   http://bragi.info/skag/visur.php?VID=16196    

Allt eins risið upp ég get/undir berum himni sagði sr. Ögmundur sem glímdi við heilsuleysi en eignaðist þó nógu langa ævi til að skilja eftir sig smellnar og djúpsæjar vísur eins þessar nýnefndu, þar sem læknir telur hann af og hann fer af því tilefni að skoða upprisuhorfur.

Hálffimmtugur hvarf hann af heimi hér og hafði þá í fáein ár átt Ólöfu fyrir konu og arfleitt okkur að kersknisvísu um þau – prestshjónin:

Prestinum illa giftast gekk,
gigtar flengdur hrísi,
uns um síðir Ólöfu fékk
fyrir átta merkur af lýsi.

Vísað er til:                               
Vísa um Loka: http://bragi.info/ljod.php?ID=3134
Café Loki  http://www.loki.is/
NaNO  http://nano.natturutorg.is/
Hafdís Hanna framkvæmdastjóri Landgræðsluskóla háskóla SÞ á Íslandi http://un.is/vidhburdhir/785-pallbordhsumraedhur-um-landeydhingu-i-new-york  

Mold og menntun:  https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10153628982277436&set=a.477902362435.266022.786787435&type=3&theater   
BJ/Að fæðast það er  . . . http://bragi.info/stjorn/index.php?brtyp=2&brid=10350
Karl Þórðarson Eyrarbakka: http://bragi.info/hofundur.php?ID=17167
Átta merkur af lýsi:  http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=24591   

Eldra stökuspjall:
Að mála mosa og grjót: http://www.huni.is/index.php?cid=12221
Einmitt slík var – móðir þín http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12203
Heiðin magnar seið: http://www.huni.is/index.php?cid=12180
Útsunnan við mána: http://www.huni.is/index.php?cid=12129
Drottning Húnaflóa: http://www.huni.is/index.php?cid=12080

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið