Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:24 0 0°C
Laxárdalsh. 16:24 0 0°C
Vatnsskarð 16:24 0 0°C
Þverárfjall 16:24 0 0°C
Kjalarnes 16:24 0 0°C
Hafnarfjall 16:24 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 07. nóvember 2017 - kl. 19:47
Kæru vinir, ættingjar og stuðningsfólk
Eftir Höskuld Birki Erlingsson formann Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps

Það var á haustmánuðum sem að við í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps ákváðum að taka þátt í keppninni Kórar Íslands sem að haldin er á Stöð 2 eins og kunnugt er. Við vorum ekki of bjartsýnir í fyrstu með að við næðum að safna liði í þetta verkefni en það leystist og það vel. Við tóku strangar æfingar og svo undankeppnin 8. október sl.

Það var mikil gleði í okkar herbúðum er við komumst áfram og ekki laust við að menn hafi fengið smá kusk í augun og fundist þeir "kóngar um stund". Við tók undirbúningur fyrir undanúrslitakvöldið sem haldið var sunnudaginn 5. nóvember sl. eins og flestum er kunnugt um,  og aftur komumst við áfram sem sigurvegarar símakosningarinnar og kórinn kominn í úrslit keppninnar sem haldin verða nk. sunnudag 12. nóvember.

Það er ekki einfalt að taka þátt í svona uppákomum fyrir lítinn kór norðan af landi eða svo sem hvaðan sem er af landinu. Því fylgir mikill kostnaður sem erfitt er að kljúfa. Því fór það svo að kórmenn hafa ferðast á einkabílum til og frá keppnisstað og enginn talið það eftir sér að gera það og tekið á sig allan kostnað.

Það sem að ég hef einnig tekið eftir er að þetta verkefni er mikil lyftistöng fyrir kórinn okkar og allir spenntir fyrir því að taka þátt. Andinn og stemningin er frábær. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps er eini kórinn sem eftir er í keppninni af landsbyggðinni og finnst okkur dálítið mikið varið í það líka.

Nú eru úrslitin framundan og mikið þætti okkur vænt um ef að þeir sem að þetta lesa gætu hugsað sér að "splæsa" á okkur atkvæði ef að flutningur þess lags sem að við flytjum er þeim að skapi.

Annars viljum við þakka öllum þeim sem að lagt hafa okkur lið í haust við þátttöku okkar í Kórar Íslands, hvort sem með atkvæðum eða með öðrum hætti

X-Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.
Kosninganúmer í þetta skiptið er 900-9002

Höskuldur Birkir Erlingsson
Formaður

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið