Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:50 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Á laugardaginn, þann 26. maí 2018, er komið að því að við göngum til sveitarstjórnarkosninga þar sem þú, kjósandi góður, getur haft áhrif á hvernig best sé komið fyrir okkur íbúum í Húnavatnshreppi næstu fjögur árin.
Við frambjóðendur E-listans Nýtt afl höfum fram á að bjóða fjölbreytt val fulltrúa sem koma úr mörgum mismunandi starfsgreinum. Við höfum frambjóðendur sem eru bændur og búfræðingar, hjúkrunarfræðing, sjúkraliða og lífeindafræðing, leiðbeinanda í leikskóla, kennara við grunnskóla, ferðaþjónustu bónda og fulltrúa hjá póstinum. Þetta er fjölbreyttur og víðsýnn hópur.
Frambjóðendur E-listans eru ungir að árum og sumir hverjir að taka sín fyrstu spor í búskap hér í sveitinni og hafa mikinn áhuga á að taka þátt í því að gera sveitarfélagið þannig að það henti vel fyrir alla íbúa. Mikilvægt er fyrir okkur að hafa ungt fólk með okkur til starfa í sveitarfélaginu, því þetta eru jú íbúarnir sem eiga eftir að búa lengst í sveitinni ef guð og gæfa leyfir.
Ég vil því biðja þig, kjósandi góður, að skoða vel stefnuskrár þeirra flokka sem í framboði eru áður en þú ferð í kjörklefann og finna út frá sjálfum þér hvaða flokki eða fólki þú treystir best til að fara með stjórn mála í Húnavatnshreppi næstu fjögur árin. Þú getur fundið upplýsingar um stefnumál E-listans á nokkrum stöðum t.d.:
-
E-listinn hefur gefið út stefnuskrá sína á prenti en hana er einnig að finna á fésbókarsíðu flokksins https://www.facebook.com/nyttafl2018
-
Helstu stefnumál E-listans má einnig finna á, http://www.ruv.is/stjornmalaflokkur/hunavatnshreppur-nytt-afl
-
Stefna E-listans í forvörnum gegn krabbameinum má finna á, https://www.krabb.is/kosningar-2018
Þessa síðustu daga fyrir kosningar vil ég minna á mikilvægi heiðarlegrar kosningarbaráttu, því við eigum eftir að vinna saman að loknum kosningum.
Næstkomandi laugardag hefur þú kjósandi góður tækifæri til að velja góðan kost fyrir gott samfélag.
Setjum X við E á laugardaginn.
Bestu kveðjur með sól í hjarta
Kristín Rós Sigurðardóttir
5. sæti E- lista Nýtt afl í Húnavatnshreppi
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |