Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:28 0 0°C
Laxárdalsh. 07:28 0 0°C
Vatnsskarð 07:28 0 0°C
Þverárfjall 07:28 0 0°C
Kjalarnes 07:28 0 0°C
Hafnarfjall 07:28 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 25. maí 2018 - kl. 10:07
Heildstæð orkutenging á Norðurlandi strax
Eftir Sigmund Einar “feigsson

Eitt stærsta hagsmunamál Eyfirðinga er raforkuöryggi. Það er óþolandi staðreynd að Akureyri og Eyjafjörður allur skuli búa við raforkuskort þrátt fyrir að næg orka sé til í landinu. Áralöng barátta um úrbætur hefur litlu skilað og hafa fyrirtæki og sveitarfélög þurft að koma sér upp varaafli með díselvélum og olíukötlum sem er algjörlega úr takti við baráttuna gegn loftlagsbreytingum. Orkuskorturinn hamlar uppbyggingu atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu og á hún sér enga framtíð við þessi skilyrði enda samkeppnishæfni svæðisins skert.

Norðurland 1100 MV samtengt orkusvæði
Hugmyndin um uppbyggingu byggðalínunnar frá Fljótsdalsstöð að Blöndustöð á Norðurlandi er stórtæk en vel framkvæmanleg. Það er gríðarlega stórt hagsmunamál fyrir Eyjafjörð og í raun Norðurlands alls að strax verði hafist handa við að byggja nýja 220 kílóvatta byggðalínu frá Fljótsdalsstöð að Blöndustöð. Þetta eru línurnar Kröflulína 3 sem liggur frá Fljótsdalsstöð að Kröflu, Hólasandslína 3 sem liggur frá Kröflu að Rangárvöllum og Blöndulína 3 sem liggur frá Rangárvöllum að Blöndustöð. Innviðauppbygging sem þessi myndi gera Norðurland að heildstæðu öflugu orkukerfi með um 1100 megavatta framleiðslu. Ef samtenging raforkukerfisins á Norðurlandi, sem er í raun enduruppbyggingu byggðalínunnar, verður að raunveruleika mun raforkuöryggi stóraukast og næg orka verður á svæðinu til orkuskipta og framtíðar atvinnuuppbyggingar. Íslendingar eiga að styrkja innviði samfélagsins með öruggu og nútímalegu raforkuflutningskerfi. Stórátak þarf við uppbyggingu og viðhald innviða og við þurfum að forgangsraða í þágu slíkrar uppbyggingar.

Áratugagamlir innviðir skapa óöryggi
Byggðalínukerfið sem flytur raforku milli landshluta er orðið áratugagamalt og komin að þanmörkum. Flutningsgetan er einungis 100 megavött sem er aðeins lítill hluti af þeim 2.757 megavöttum sem er uppsett afl í landinu, eða 4%. Kerfið getur ekki lengur afhent næga orku með öruggum hætti eða tekið við nýrri orku og því ekkert svigrúm fyrir aukna rafmagnsnotkun. Óöryggið verður meira og meira sem árin líða. Vandamálið tengist ekki eingöngu Eyjafirði heldur stefnir í orkuskort víða um land á komandi áratugum við óbreytt ástand.

Stórátak þarf í innviðauppbyggingu
Álag á byggðalínuna hefur vaxið samfara aukinni raforkunotkun og er nú svo komið að línan er fullnýtt. Virkjanir landsins geta framleitt meiri orku en veikt flutningskerfi takmarkar framleiðsluna með þeim afleiðingum að orka tapast, hún kemst ekki til raforkunotenda. Það samræmist ekki markmiðinu á bak við raforkulögin um frjáls viðskipti með raforku ef ekki er hægt að flytja raforkuna á milli svæða. Í mörg ár hefur legið ljóst fyrir að fara þurfi í stórátak til styrkingu raforkuflutningakerfisins, sambærilegt og átti sér stað við gerð byggðalínunnar fyrir rúmlega 40 árum síðan. Um það eru allir sammála en lítið sem ekkert hefur þokast í þeim málum vegna þess að menn eru ekki sammála um hvernig það skuli gert. Pólitískan vilja og kjark skortir. Á meðan versnar ástandið ár frá ári og dýrmætur tími fer til spillis því framkvæmdatíminn er langur.

Fjárfesting í dag er hagvöxtur á morgun

Höfundur er framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið