Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:13 0 0°C
Laxárdalsh. 04:13 0 0°C
Vatnsskarð 04:13 0 0°C
Þverárfjall 04:13 0 0°C
Kjalarnes 04:13 0 0°C
Hafnarfjall 04:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 25. maí 2018 - kl. 21:11
Heilbrigt samfélag
Eftir Arnrúnu Báru og Söru Lind

Undanfarin ár hefur orðið breyting í samfélaginu og hugarfari einstaklinga. Við erum orðin meðvitaðri um umhverfið, ábyrgð okkar gagnvart því og mikilvægi þess að tileinka sér heilbrigðan lífstíl. Þessi vitundarvakning er mjög jákvæð og hefur marga kosti í för með sér. Samfélagið er í sífelldri þróun og það er nauðsynlegt að bregðast við og taka þátt í þessum jákvæðu breytingum.

Lýðheilsa bæjarbúa er stórt atriði í stefnumálum L-listans. Við viljum stuðla að og efla heilbrigt líferni, vinna með þessa góðu þróun sem við teljum að sé komin til að vera og eigi eftir að breiðast enn meira út. Með því að stuðla að heilbrigðu samfélagi teljum við að Blönduósbær verði ákjósanlegri, kröftugri og skilvirkari. Líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan bæjarbúa skiptir höfuðmáli en fær oft að sitja á hakanum vegna ýmissa ástæðna. L-listinn vill auðvelda einstaklingum að rækta bæði líkama og sál. Meðal annars með auðveldara aðgengi að frábæru aðstöðunni sem við höfum í íþróttamiðstöðinni. Við viljum að allir hafi jöfn tækifæri til að móta heilbrigðan lífsstíl sem að dregur úr áhættu og áhrifum af langvinnum sjúkdómum. Ásamt því að hafa forvarnargildi fyrir unga fólkið okkar sem skiptir miklu máli í nútímasamfélagi þar sem að áreitið er mikið og hætturnar margar.

Heilbrigt samfélag er heildrænt hugtak og við teljum að nauðsynlegt sé að byrja á að hugsa vel um börnin okkar. Listinn vill innleiða heilsustefnu í leik- og grunnskóla með það að markmiði að bæta heilsu og líðan nemenda og starfsmanna. Áhersla verður lögð á að ráða matráð sem mun elda fyrir öll skólastig sveitarfélagsins og verður hollt, fjölbreytt og hreint mataræði haft í fyrirrúmi. Hugmyndin er að næringarfræðingur setji saman fjölbreyttan og hollan matseðil sem telur 6 til 8 vikur og endurtekur sig svo allt skólaárið. Þá viljum við einnig taka upp þá hefð að hafragrautur verði í boði í morgunmat og ávaxtastund í kaffitímanum. Stefnt er að því að fyrir árslok 2019 verði rekið sameiginlegt mötuneyti fyrir leik- og grunnskóla og dreifnámið. Hugmyndin að dreifnámið hafi aðgang að mötuneytinu líka er til að tryggja að þau fái hollan og staðgóðan mat í hádeginu en sækist ekki í auðvelt, fljótlegt og næringarsnautt fæði. Þessi aldurshópur á það til að gleymast í samfélaginu og teljum við mikilvægt að hugað sé betur að þeim.

L - Listinn vann að því að börn Blönduósbæjar fengju frían aðgang í sund og viljum við halda fast í þá stefnu. Við teljum einnig mikilvægt að tryggja öryrkjum og eldri borgurum greiðari aðgang að sundlauginni. Þetta er sá hópur samfélagsins sem oft er töluvert einangraður og teljum við það geta orðið mikilvægan lið í að rjúfa einangrun og auka í leið heilbrigði þessa hóps. Við stefnum því að þessi hópur fái frítt í sund frá ársbyrjun 2019. Einnig viljum við einfalda gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar til að tryggja að allir hafi greitt aðgengi til að stunda heilbrigðan lífstíl.

Heilbrigt samfélag krefst tíma og samstöðu allra bæjarbúa. Með jákvæðu hugarfari og virkni getum við aukið ánægju og heilbrigði bæjarbúa. Ávinningurinn er ótvíræður ef allir leggja hendur á vogarskálarnar getum við náð frábærum árangri og gert samfélagið okkar enn betra og eftirsóknarverðara. Við hvetjum bæjarbúa til að nýta kosningarétt sinn og setja X við L á laugardaginn

Arnrún Bára & Sara Lind
5. og 13. sæti L - listans

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið