Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:02 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:02 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:02 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:02 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:02 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:02 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Íbúar bæjarins hafa flestir orðið varir við verkefnið okkar ,,Heilsudagar á Blönduósi“ sem stóðu yfir frá 23.-28. september. Markmiðið með þessum flottu dögum var einfalt. Að hvetja fólk til að huga vel að heilsunni og hreyfa sig markvisst sem tókst ágætlega og ná til allra aldurshópa í samfélaginu og stuðla þannig að góðri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum.
Aðstaðan sem við höfum á Blönduósi og í nágrenni bæjarins er eins og best verður á kosið til að stunda fjölbreytta hreyfingu, bæta heilsuna eða viðhalda góðri heilsu. Við eigum frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar og höfum fjölbreytt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa. Hér á staðnum er einnig gott sjúkrahús og starfsfólk sem skiptir okkur bæjarbúa miklu máli. Umhverfið er einstakt, ótal útivistarmöguleikar, stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir svo eitthvað sé nefnt. Við fundum fyrir mikilli jákvæðni bæjarbúa á þessum dögum og ferðamenn sem komu til okkar voru einnig mjög ánægðir með að vera boðið í sund og fá ferska ávexti í heita pottinn. Einstaklingar, fyrirtæki og íþróttafélög lögðu öll sitt að mörkum og allir tilbúnir að taka þátt. Þetta er í þriðja sinn sem Heilsudagar eru haldnir á Blönduósi og hefur þátttaka ykkar og viðtökur farið fram úr björtustu vonum. Það er von okkar að þessir dagar séu komnir til að vera og verði hér eftir viðburður sem eigi síðan eftir að stækka og dafna.
Að lokum viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komið hafa að þessum dögum, einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og stuðnings aðilum. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt. Verum stolt af bænum okkar og fólkinu okkar. Tölum bæinn okkar upp og höfum jákvæðni að leiðarljósi. Blönduós er heilsueflandi bær og með áframhaldandi vinnu getum við gert margt saman og gert bæinn okkar enn betri á margan hátt. Gerum gott bæjarfélag enn betra.
Heilsuhópurinn
Erla, Róbert og Steinunn
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |