Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:37 0 0°C
Laxárdalsh. 13:37 0 0°C
Vatnsskarð 13:37 0 0°C
Þverárfjall 13:37 0 0°C
Kjalarnes 13:37 0 0°C
Hafnarfjall 13:37 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 03. október 2019 - kl. 06:00
Það skiptir máli hvar og hvernig maður stígur niður
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Stundum líður okkur eins og við séum varla annað en sandkorn á strönd sem treðst undir í baráttu daganna.

En í ljósi Guðs ert þú hins vegar eins og óendanlega lítil fögur dýrmæt perla. Einstakur gimsteinn fullur af lífi og fegurð. Fullur af leyndardómsfullum tilgangi í eilífri áætlun Guðs. Guðs kærleikans sem elskar þig út af lífinu.

Molar

Ævin er full af litlum molum, sætum og beiskum, súrum og sterkum. Molum sem veita nýja sín og reynslu sem þú berð. Sumir Þeirra geta jafnvel verið fúlir, harðir meiðandi og ógeðslegir. Stundum fylgja þeim ný tækifæri og stundum geta þeir leitt til nýrra kynna. Jafnvel kanntu að upplifa mikla gleði vegna þeirra, alla vega um stundarsakir. Sumir molarnir geta jafnvel orðið að gullmolum sem þú hefðir ekki viljað missa af.

Ævin er full af svona molum. Hún er samansett af litlum brotum sem púslað er saman á óskiljanlegan, jafnvel stundum öfugsnúinn hátt. Útkoman er algjörlega einstök ævi hverrar manneskju.

Vöndum samskiptin

Þess vegna er svo mikilvægt að vanda samskiptin. Hugsa um hvar og hvernig maður stígur niður og hvað maður vill skilja eftir sig.

Lífið er það besta sem við eigum, þótt ævin kunni að vera full af ögrandi áskorunum og stundum jafnvel heldur óskemmtilegum og ósanngjörnum verkefnum.

Mín niðurstaða er engu að síður sú þegar ég lít yfir farinn veg hamingju og sigra en einnig vonbrigða og þótt ýmislegt hafi vissulega farið öðru vísi en til var sáð í veikum mætti að þá er það þakkarverð eftirvænting að fá að vakna til nýs dags og fá að vera með. Fá að horfa með eftirvæntingu fram veginn og reyna að láta um sig muna til góðs. Þótt það kunni að reyna á og kosta úthald og aga.

Láttu muna um þig til góðs í dag. Það mun skila sér sem jákvætt framlag til lífsins. Jafnvel þótt það kunni að vera með ófyrirséðum hætti. Við þurfum á þér að halda. Við þurfum öll hvert á öðru að halda til að halda gleðinni. 

Hamingjan þarf nefnilega á þér að halda. Njóttu þess og láttu muna um þig.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið.

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið