Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:20 0 0°C
Laxárdalsh. 08:20 0 0°C
Vatnsskarð 08:20 0 0°C
Þverárfjall 08:20 0 0°C
Kjalarnes 08:20 0 0°C
Hafnarfjall 08:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 03. desember 2019 - kl. 08:01
Jólahugvekja
Eftir Anton Scheel Birgisson

Jólamánuðurinn er genginn í garð og fer þá í hönd uppáhalds tími barnanna okkur. Gleði og eftirvænting skín úr augum þeirra, um leið og þessi tími vekur upp minningar hjá okkur sem eldri eru, sumum ljúfum en öðrum sárum.

Í Þorlákshöfn einkenndist þessi tími alltaf af gleði og kærleik, bakaðar voru ótal tegundir af smákökum, allt var skreytt hátt og lágt, sungin jólalög og dansað í kringum jólatréð á skemmtunum. Svo ekki sé nú minnst á aðalmálið, jólagjafirnar. Magnað að fá 16 jólagjafir, sumar frá fólki sem maður þekkti ekki neitt! Fyrir vestan var aðalgata Tálknafjarðar meira að segja lokuð svo við krakkarnir gætum farið á sleðanna eftir að pakkarnir voru opnaðir.

Já, jólaáreiti svífur yfir vötnum og við erum hressilega mynt á að jólin séu á næsta leiti. Auglýsingabæklingar flæði inn um bréfalúguna, í sjónvarpi og útvarpi er hamrað á lengri opnunartíma verslana, svörtum föstudegi og rafmögnuðum mánudegi sem enginn má láta fram hjá sér fara. Svo eru það jólatóleikar, jólaböll, jólamarkaðir, jólahlaðborð, jólaföndur, jólaglögg og allt hitt sem við höfum ekki tíma til að mæta á.

Allt í einu hefur aðventan snúist upp í stress og mögulegan kvíða, meðan að „allir“ hinir sýna frá sínu fullkomna fjölskyldulífi á facebook og instragram. Vissulega er þetta ýkt dæmi en það kannast án efa flestir við það að hafa gleymt sér í jólastressinu og misst sjónar af því sem virkilega skiptir máli í aðdraganda jóla, það er samvera með þeim sem okkur standa næst.

Jólin koma hvort sem bakaðar eru 14 sortir eða ekki, eða bernaissósan gerð frá grunni og allt þrifið hátt og lágt. Það er ekki það sem skiptir máli og ekki það sem við munum minnast þegar fram líða stundir. Á tímum þar sem sóun er eitt stærsta vandamál samtímans og samfélagsaðstæður leiða til þess að sífellt fleiri kljást við kvíða og andlega erfiðleika, er það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að horfa inn á við, látum ekki glepjast af hinum stafræna veruleika heldur njóta tímans sem við eigum með okkar nánustu og reyna að láta gott af okkur leiða…Og heilsum hvort öðru.

Kær kveðja á aðventunni.

Anton Scheel Birgisson
Framkvæmdastjóri USVH.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið