Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:49 0 0°C
Laxárdalsh. 18:49 0 0°C
Vatnsskarð 18:49 0 0°C
Þverárfjall 18:49 0 0°C
Kjalarnes 18:49 0 0°C
Hafnarfjall 18:49 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 27. mars 2020 - kl. 09:38
Covid 19 á Norðurlandi vestra
Eftir Bjarna Kristjánsson, Gunnar Jónsson og Örn Ragnarsson

Eins og alþjóð veit þá geisar nú skæður heimsfaraldur veirusýkingar, COVID-19, og höfum við Íslendingar ekki verið undanþegnir honum. Þegar þetta er skrifað hafa yfir 800 sýkst hér á landi, þar af 17 á Norðurlandi vestra. Lýst hefur verið yfir neyðarstigi almannavarna, sem kallar á að allar stofnanir samfélagsins taki höndum saman til að lágmarka tjón af völdum sjúkdómsins. Á Norðurlandi vestra tók aðgerðarstjórn almannavarna til starfa mánudaginn 9. mars og hefur verið með fulla virkni frá þeim tíma. Aðsetur aðgerðarstjórnar er á Sauðárkróki og hefur hún unnið að því að samræma aðgerðir innan umdæmisins og vinna að áætlunum til að tryggja að samfélagið geti gengið og að heilbrigðisþjónusta bæði í umdæminu og á Íslandi öllu geti haldið uppi þjónustu við þá sem á þurfa að halda.

Í stjórnstöð aðgerðarstjórnar vinna að jafnaði sex til sjö einstaklingar og koma þeir frá viðbragðsaðilum (lögreglu, slökkviliði, björgunarsveitum og Rauða krossinum) og heilbrigðisyfirvöldum. Lögð hefur verið áhersla á að skipuleggja viðbrögð almannavarna innan umdæmisins, sem og að kortleggja og kalla eftir áætlunum frá aðilum sem teljast mikilvægir fyrir virkni samfélagsins, t.d. þjónusta sveitarfélaga, matvöru- og eldsneytisdreifingar, þjónustu við bændur og búfénað. Einnig hefur verið lögð áhersla á að fá yfirsýn yfir stöðuna á svæðinu, þe. fjölda sýktra og fjölda einstaklinga í sóttkví en til að hægt sé að fylgjast með framgangi faraldursins er mikilvægt að skráð sé hverjir sitji í sóttkví af völdum hans, og að tryggt sé að sú skráning sé rétt. Hægt er að skrá sig í sóttkví á vefnum heilsuvera.is. Gangi það ekki má hringja í símanúmerið 855 90 17 milli kl 9:00 og 17:00 eða senda tölvupóst á póstfangið nvsottkvi@gmail.com með símanúmeri viðkomandi.

Settar hafa verið á fót þrjár vettvangsstjórnir, á Hvammstanga, á Blönduósi og á Sauðárkróki. Vettvangsstjórnirnar eru mannaðar fulltrúum viðbragðsaðila, auk sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustunnar. Verkefni vettvangsstjórnanna er að vinna að skipulagi og úrlausn verkefna á hverju svæði fyrir sig og vinna þær í nánu samstarfi við aðgerðarstjórn. Mikilvægi vettvangsstjórna kom berlega í ljós kom að sjúkdómurinn hafði komið upp í Húnaþingi vestra og að þar væru mögulega fjölmargir sýktir. Tekið var á það ráð að beita svokallaðri úrvinnslusóttkví, þar sem allir íbúar sveitarfélagsins voru settir í sóttkví. Þó með þeirri undanþágu, frá hefðbundinni sóttkví, að einn einstaklingur af hverju heimili má fara út og afla nauðsynja. Mun úrvinnslusóttkvíin standa þar til að ljóst verður að tekist hafi að ná utan um smitið og að það sé ekki að dreifast víða. Vegna þessa hefur vettvangsstjórnin á Hvammstanga unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að lágmarka áhrif af þessu á íbúa svæðissins og tryggja að öll þjónusta haldist. Á sama tíma hefur verið unnið að því að svara fjölmörgum spurningum og leita lausna á fjölmörgum erindum íbúa.

Það er mikilvægt að við öll stöndum saman í því að reyna að hægja á útbreiðslu sjúkdómsins. Takist það munu færri veikjast og betri líkur eru á að heilbrigðisþjónustan muni anna þeim tilfellum sem koma upp. Því er mikilvægt að allir fari að tilmælum sóttvarnarlæknis sem finna má á covid.is. Mikilvægt er að hver gæti að sér, hugi að því að þvo sér reglulega um hendur með vatni og sápu, noti handspritt og takmarki náin samskipti við annað fólk og haldi sig í 2 m fjarlægð frá ótengdum aðilum. Mikilvægt er að þrífa oft fleti sem mikið eru notaðir. Ef þú ert með einkenni flensu, jafnvel léttvæg, vertu heima. Einnig er mikilvægt að fyrirtæki og stofnanir vinni að áætlunum um hvernig þau geti haldið uppi órofnum rekstri, ef til þess kemur að starfsmenn veikist, eða séu sendir í sóttkví. Slík áætlun getur t.a.m. gengið út á að fólki sé gert kleift að sinna vinnu að heiman, starfsmönnum sé skipt í teymi sem engan samgang eiga og hafa áætlanir um þrif og sótthreinsun á vinnustaðnum, auk annara atriða. Upplýsingar um gerð slíkra viðbragðsáætlana má finna víða. 

Enn fremur er mikilvægt að við hugum að okkar eigin andlegu heilsu. Leitum leiða til þess að dreifa huganum frá hinum ýmsu upplýsingum og fréttum um COVID-19 og gerum eitthvað skemmtilegt með okkar nánustu. Munum að ekki er allt sem við lesum á netinu rétt og að fjölmargir hafa gerst sjálfskipaðir sérfræðingar. Bestu upplýsingarnar hér á landi má finna á covid.is.

Við erum öll almannavarnir!
Bjarni Kristófer Kristjánsson, stjórnandi í AST
Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri
Örn Ragnarsson, sóttumdæmislæknir

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið