Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:48 0 0°C
Laxárdalsh. 01:48 0 0°C
Vatnsskarð 01:48 0 0°C
Þverárfjall 01:48 0 0°C
Kjalarnes 01:48 0 0°C
Hafnarfjall 01:48 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 01. apríl 2020 - kl. 10:52
Oft var þörf - nú er nauðsyn
Eftir Unni Valborgu Hilmarsdóttur

Það þarf ekki að hafa mörg orð um ástandið þessa dagana og vikurnar. Eins og Víðir segir þá virkar ekkert í samfélagi okkar nú eins og það virkar alla jafna. Ekki er hægt að segja til um hversu lengi það ástand varir.

Áhrif þess eru og munu verða víðtæk. Starfsemi fjölmargra, ef ekki allra, fyrirtækja og stofnana er skert eða breytt frá því sem áður var. Það eru því fjölmargir sem búa við óvissu, óöryggi og afkomuáhyggjur.

Hér á Norðurlandi vestra starfar fjöldi fyrirtækja sem nú berjast í bökkum, líkt og um allt land, og í raun um alla heim. Það sem gerir svæði eins og okkar frábrugðið mörgum öðrum er hversu miklu máli hvert einasta fyrirtæki hér á svæðinu skiptir okkur, vegna fámennisins og samsetningar atvinnulífsins. Okkur munar um hvert einasta starf. Hvert einasta starf hefur verið, og er, barátta við að koma á legg og halda í. Við verðum að passa upp á þau öll.

Það er því afar mikilvægt að þau okkar, sem nokkur tök hafa á, haldi áfram að kaupa vörur og þjónustu af fyrirtækjunum í heimabyggð (eins og tilmæli almannavarna og sóttvarnarlæknis leyfa að sjálfsögðu). Mörg fyrirtæki á svæðinu, sem ekki gerðu það áður, bjóða nú heimsendingu. Bakarí, matvöruverslanir, veitingastaðir, gjafavöruverslanir, blómaverslanir, handverksfólk, snyrtistofan sem selur snyrtivörur og hárgreiðslustofan sem selur hárvörur svo fátt eitt sé talið. Ég leyfi mér að fullyrða að nær öll fyrirtæki sem selja vörur á Norðurlandi vestra eru tilbúin til að leggja mikið á sig til að koma vörum til viðskiptavina sinna í nærumhverfinu. Það eru líka örugglega fleiri fyrirtæki en þig grunar hér á svæðinu sem eru með vefverslun.

Styddu við þessi fyrirtæki ef þú getur. Pantaðu þér sjampó á hárgreiðslustofunni þinni sem nú verður lokuð í nokkrar vikur. Keyptu þér andlitskrem á snyrtistofunni. Heyrðu í bóndanum sem þú hefur keypt vörur af beint af býli. Verslaðu í matvöruversluninni heima. Pantaðu mat af veitingastaðnum nærri þér. Keyptu blóm í blómabúðinni og sendu vini/vandamanni sem er í einangrun eða sóttkví. O.s.frv. Ef þú mögulega getur.

Með því að gæta hreinlætis, passa upp á tvo metrana, halda okkur heima, hlýða Víði - og versla heima - komumst við í gegnum þetta.

Oft var þörf - nú er nauðsyn. Stöndum saman sem aldrei fyrr og verslum í heimabyggð.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir
framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið