Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 19. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:58 0 0°C
Laxárdalsh. 08:58 0 0°C
Vatnsskarð 08:58 0 0°C
Þverárfjall 08:58 0 0°C
Kjalarnes 08:58 0 0°C
Hafnarfjall 08:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
70. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 07. apríl 2020 - kl. 12:09
Frá sveitarstjóra Blönduósbæjar
Valdimar O. Hermannsson

Kæru íbúar

Það eru þrjár vikur liðnar frá því að samkomubann var sett á og nú hefur það verið framlengt af stjórnvöldum til 4. maí 2020 en á næstu dögum koma frekari upplýsingar um afléttingu. Það er ánægjulegt að upplifa og finna fyrir þeirri samstöðu sem ríkir í okkar samfélagi og þegar þetta er ritað hefur ekki komið upp staðfest smit í A-Hún en vettvangsstjórn  (VST) staðsett á Blönduósi á vegum almannavarna hefur nú verið virkjuð, og vinnur með aðgerðarstjórn (AST).

Nú er allt skólahald komið í páskafrí en samþykkt var fyrir helgina að leikskólinn myndi fylgja grunnskóla í páskafrí, þ.e. frá föstudeginum 3. apríl og fram yfir páskahelgina. Hjá leikskóla var þó boðið uppá gæslu fyrir börn á forgangslista sem er samkvæmt tilmælum almannavarna.     

Skrifstofa sveitarfélagsins er nú lokuð fyrir almennri afgreiðslu en leitast er við að leiðbeina og svara öllum erindum í gegnum síma eða með tölvupósti. Sjá nánar á www.blonduos.is .

Á meðan þetta ástand varir þurfum við öll að standa saman og sýna samfélagslega ábyrgð í því hvernig við heftum frekari útbreiðslu á COVID-19. Við þurfum að huga sérstaklega að þeim íbúum sem eru veikir fyrir og leggja okkur fram um að aðstoða þá sem þess þurfa.

Ég vil nota þetta tækifæri til þess að óska öllum íbúum gleðilegra páska, þó þeir séu nú haldnir við óvenjulegar aðstæður en við erum hvött til þess að halda okkur á heimaslóðum.

 Við munum fara í gegnum þetta saman, fylgja leiðbeiningum og fyrirmælum stjórnvalda, og höfum í huga að þetta er tímabundið ástand. 

 

Gleðilega páska ,

Valdimar O Hermannsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið