Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:20 0 0°C
Laxárdalsh. 10:20 0 0°C
Vatnsskarð 10:20 0 0°C
Þverárfjall 10:20 0 0°C
Kjalarnes 10:20 0 0°C
Hafnarfjall 10:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 17. apríl 2020 - kl. 09:13
Börn, íþróttir og ylrækt
Eftir Guðjón S. Brjánsson

Þegar vorar og sól hækkar á lofti verður mörgum tamt að grípa til orðtaksins, að nú sé tími til að rækta garðinn sinn og öll þekkjum við óeiginlega merkingu orðtaksins sem bregður fyrir allan ársins hring.  

Þegar við göngum í gegnum umrótartíma eins og nú, þá er okkur ofarlega í huga að samfélagið komist um síðir öflugt frá þessum hremmmingum, bæði hvað varðar mannlífið og ekki síður hvað innviði samfélagsins snertir, atvinnu- og viðskiptalíf.   

Matvælaöryggi

Þegar ræktunarmál ber á góma kemur ylrækt og matvælaframleiðsla fljótt upp í hugann,  iðulega er bent á matvælaöryggi á Íslandi um þessar mundir. Í því sambandi er tími til kominn að við náum áttum og hættum að einblína á löngu úrelt framleiðslukerfi landbúnaðarins. Á þetta höfum við í Samfylkingunni lengi bent með hagsmuni bændastéttarinnar í huga og raunverulegar þarfir samfélagsins, að við horfum fram á veginn en ekki stöðugt um öxl.

Mannrækt

Mannrækt er einnig mikilvægt ræktunarstarf og fátt tekur fram einstöku starfi íþróttahreyfinga um allt land.  Þetta er lýðheilsustarf, forvarnir og heilsueflandi verkefni, allt í senn.   

Íþróttastarf á landsbyggðinni og áhugafólk sem stendur vörð um það berst í bökkum, fjárhagslegum bakhjörlum fækkar, sveitarfélög eru víða fjárvana. Alltaf er þó fyrir hendi ýmislegur fastur kostnaður, svo sem vegna þjálfunar, æfingaaðstöðu og ferðalaga sem er iðkendum á landsbyggðinni afar þungur í skauti. Þarna þurfum við að vera á verði og tryggja öllum börnum og ungmennum aðstæður til að efla hreyfiþroska sinn og um leið að styrkja hvern og einn  til vaxtar sem heilbrigður einstaklingur.  

Börnin

Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að börn á Íslandi eru að þyngjast að líkamsvigt og það eru hættuleg teikn. Ekkert betra mótvægi er til en skipuleg hreyfing og íþróttir við hæfi. 

Opinberar aðgerðir stjórnvalda þurfa að taka mið af þessu og tryggja verður að þessi mikilvægi samfélagsþáttur fái ríkulegan skerf af stuðningi í því bakslagi sem börn og ungmenni upplifa nú, ekki síður en aðrir.

Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingar, NV kjördæmi

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið