Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:09 0 0°C
Laxárdalsh. 13:09 0 0°C
Vatnsskarð 13:09 0 0°C
Þverárfjall 13:09 0 0°C
Kjalarnes 13:09 0 0°C
Hafnarfjall 13:09 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 03. maí 2020 - kl. 20:41
Grafalvarleg staða grásleppuveiða
Eftir Bergþór “lason og Sigurð Pál Jónsson

Þegar þetta er skrifað að kveldi annars maí eru margir grásleppubátar að sigla í land með net sín vegna reglugerðar sem sjávarútvegsráðherra undirritaði um stöðvun grásleppuveiða.

Gríðarlega góð veiði hefur verið hjá bátunum, svo mikil að elstu menn muna vart annað eins. Hins vegar er kvótinn búinn, hin heilaga tala Hafró. Sá dagafjöldi sem ráðherra gaf út, 44 dagar  á hvern bát eru fullnýttir hjá nokkrum (innan við 10%), aðrir áttu einhverja daga eftir, margir voru nýbyrjaðir og enn aðrir ekki komnir til veiða.

Menn spyrja, af hverju var ekki gripið inn í þegar sást í hvað stefndi? Hvers vegna eru menn ekki tilbúnir til að endurmeta veiðiráðgjöfina? Af hverju má ekki fara fram úr ráðgjöf  og nýta óveiddan kvóta síðustu ára? Ef svarið við þessum spurningum er ótti við að missa hina svokölluðu MSC vottun, þá er sjálfsögð krafa að veiðiráðgjöfin verði betur grunduð en nú er. Það liggur fyrir að markaður er fyrir meira hráefni.

Nú segir ráðherra að ef frumvarp hans um að kvótasetja grásleppu á báta miðað við aflareynslu einhverja ára á undan væri orðið að lögum væri þessi staða ekki uppi. Það er í sjálfu sér rétt hjá ráðherranum, en það má ekki gleyma því að það eru samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins; Framsóknarflokkur og Vinstri-grænir, sem hafa stoppað málið, með formann atvinnuveganefndar í broddi fylkingar.

Frumvarp ráðherra var ekki fullkomið, en það hefði verið lítið mál (að mati undirritaðra) að sníða af því helstu vankantana í meðförum þingsins og atvinnuveganefndar.  Atriði sem hefðu komið til skoðunar væru meðal annars; stærð báta og það að aflahlutdeild á hvern bát/leyfi verði ekki hærri en ákveðið hlutfall eða tonnafjöldi, netafjöldi og mögulegar svæðaskiptingar.

Frumvarpið, sem ráðherra kynnti í júlí 2019, situr fast hjá ríkisstjórninni, ríkisstjórn hinnar breiðu skírskotunnar. Þingflokkar Vinstri grænna og Framsóknar stoppuðu að mælt yrði fyrir frumvarpinu.  Það er því alveg ljóst að ábyrgðin á núverandi stöðu liggur ekki bara hjá ráðherra sjávarútvegsmála, þó að framkvæmd stöðvunarinnar sé auðvitað kapítuli út af fyrir sig, heldur líka hjá samstarfsaðilunum í ríkisstjórn, fulltrúum Framsóknarflokks og Vinstri-grænna.

Viðkoma og vöxtur grásleppu er ekki mikið rannsökuð og vitneskja um stofnstærð því takmörkuð. Árið 2012 var ákveðið að Hafró myndi gefa út stofnstærðarmat á grásleppu og ráðgjöf til veiða hvers árs. Síðan hefur veiði á grásleppu í troll á „togara ralli“  verið notuð sem mæling og ráðgjöf Hafró grundvölluð á þeim upplýsingum. Þessa aðferð hafa margir gagnrýnt, því hún sýni alls ekki rétta mynd af ástandi stofnsins.  

Eins og tekið var fram hér að ofan voru margir bátar ný byrjaðir eða ekki komnir til veiða, til dæmis við Faxaflóa, á Vestfjörðum og víða á norður og austurlandi. Einhverjir höfðu nýlega fjárfest í bátum og veiðafærum og sjá því fram á gjaldþrot vegna þessarar stöðu. Þetta er grafalverleg staða fyrir þá sem ráðgerðu að færa björg í bú með þessum hætti.  Það hlýtur að liggja í augum uppi að leita allra leiða til að viðhalda atvinnustarfsemi og verðmætasköpun  á þessum tímum þegar viðbrögð við covid-19 heimsfaraldrinum eru að leggja efnahagskerfi heimsins á hliðina.

Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson

Höfundar eru þingmenn Miðflokksins í NV-kjördæmi 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið