Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:27 0 0°C
Laxárdalsh. 15:27 0 0°C
Vatnsskarð 15:27 0 0°C
Þverárfjall 15:27 0 0°C
Kjalarnes 15:27 0 0°C
Hafnarfjall 15:27 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 04. maí 2020 - kl. 13:04
Tilslaknir vegna COVID-19
Frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra

Covid19 veirusýkingin sem geisað hefur hér á landi síðastliðna mánuði er nú á hraðri niðurleið. Enn höfum við þó ekki náð fullum sigri á faraldrinum, þar sem enn greinast ný smit og töluverður fjöldi fólks er enn í einangrun. Hér á Norðurlandi vestra urðum við vel vör við sjúkdóminn þar sem að 35 einstaklingar veiktust, sem allir hafa náð bata. Það má þakka skjótum viðbrögðum og mikilli samstöðu íbúa að ekki kom til aukinnar útbreiðslu sjúkdómsins.

Nú 4. maí breytast reglur um samkomubann hér á landi. Þannig hækkar fjöldi þeirra sem mega koma saman úr 20 í 50 manns. Framhalds,- og háskólar geta aftur opnað fyrir nemendum og ýmiss konar þjónusta má aftur hefjast. Fjöldatakmarkanir fyrir börn í skólastarfi, íþróttaiðkun og æskulýðsstarfi falla niður. Enn eru þó töluverðar takmarkanir í gangi, sérstaklega þegar kemur að íþróttastarfi, t.d. eru sundlaugar og líkamsræktarstöðvar lokaðar almenningi, og ýmissri afþreyingu fullorðinna, t.d. skemmtistaðir, krár og spilasalir.  Ýtarlegri upplýsingar um þessar breytingar má finna á covid.is.

Þó svo að nú séu komnar fram tilslakanir hvað varðar samkomubannið þá verðum við áfram að vera á tánum til að koma í veg fyrir aukna útbreiðslu sjúkdómsins. Það er jafn mikilvægt nú sem fyrr að við verndum viðkvæma hópa samfélagsins og reynum jafnframt að koma í veg fyrir hópsmit. Því er mikilvægt að við fylgjum þeim reglum sem fram eru settar.

Mikilvægasta vörnin gegn sýkingum er almennur handþvottur. Þá er að þvo hendur með sápu sem borin er vel á alla höndina og dreift um í a.m.k. 20 sekúndur í hvert skipti. Einnig er hægt að nota handspritt. Mikilvægt er einnig að sótthreinsa reglulega alla snertifleti. Mikilvægt er að takmarka náin samskipti við annað fólk og viðhalda tveggja metra reglunni og forðast mannmergð. Ef við finnum til flensueinkenna þá er mikilvægt að dvelja í sjálfskipaðri sóttkví og forðast að hitta annað fólk og hafa samband við heilsugæsluna.

Vilja almannavarnir á Norðurlandi vestra þakka íbúum fyrir hversu vel þeir hafa brugðist við fyrirskipunum stjórnvalda og með því náð þeim árangri sem við höfum nú náð. Því öll erum við almannavarnir.

Fyrir hönd Aðgerðastjórn Almannavarna á Norðurlandi Vestra

Bjarni K. Kristjánsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið