Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:47 0 0°C
Laxárdalsh. 08:47 0 0°C
Vatnsskarð 08:47 0 0°C
Þverárfjall 08:47 0 0°C
Kjalarnes 08:47 0 0°C
Hafnarfjall 08:47 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 11. maí 2020 - kl. 09:02
Hvað vakir fyrir sjávarútvegsráðherra?
Eftir Guðjón S. Brjánsson

Í þjóðfélagi þar sem röð og regla ríkir og félagslegt skipulag er viðurkennt dytti ekki nokkrum ráðherra í hug að sýna heilli starfsstétt viðmót eins og grásleppusjómönnum með fyrirvaralausri stöðvun veiða þann 3. maí s.l.

Til þessa ráðs grípur ráðherra á krísutímum í efnahags- og atvinnulífi þegar verið er að róa lífróður á öllum sviðum í þeirri viðleitni að halda úti vinnu, afla lífsviðurværis og verðmæta fyrir þjóðfélagið. Þetta er gert við þær aðstæður þar sem grásleppuveiðar ganga vel, allt bendir til þess að stofninn sé í góðu horfi og hætta á ofveiði hverfandi. 

Vitneskja um stærð stofnsins virðist þó takmörkuð og miðast í raun að miklu leyti við reynslu og þekkingu þeirra sem sótt hafa á miðin vertíð eftir vertíð. Staðhæft er t.d. að Hafrannsóknarstofnun byggi mjög á uppreiknuðum vísitölum sem miðist við stofnmælingu botnfiska. Grásleppusjómenn og samtök þeirra benda á að vinnslu- og verkunaraðferðir hafi breyst og samhliða sé ástæða til að skoða sóknina nú í því ljósi. Lítið mark er tekið á þeirra viðhorfum.

Grásleppuveiðar eru gríðarlega mikilvægur þáttur í atvinnulífi á ákveðnum landsvæðum. Í mörgum tilfellum er um að ræða dreifðu byggðirnar sem hafa átt undir högg að sækja, m.a. vegna samþjöppunar innan sjávarútvegsins. Veiðarnar hafa þar skipt miklu máli enda verð á grásleppuleyfum verið viðráðanlegt fyrir minni útgerðir og nýliða innan smábátaútgerðar. Vanhugsaðar aðgerðir við  kvótasetningu á grásleppu sem nefnd hefur verið, gætu því bitnað harðast á þeim sem veikastir eru fyrir.

Verum minnug þess að Ísland er á margan hátt leiðandi í fiskveiðistjórnun. Þar er þó margt ógert og ýmislegt hefur farið úrskeiðis. Stöðugar rannsóknir, hagnýting alþjóðlegrar reynslu og markmiða um sjálfbærni og skilvirkar veiðar fyrir samfélagið eru afar nauðsynlegar. Æ fleiri sérfræðingar og fræðimenn stunda rannsóknir á nýjum leiðum til að stjórna og fiskveiðum. Þar má nefna uppboð á kvóta, svæðisbundinn kvóta og aðlögun veiðiheimilda til byggða í anda sjálfbærrar þróunar.  

Margar þessara leiða eru skoðunarinnar virði fyrir þær veiðar sem um er fjallað nú. Grásleppuveiðar eru mjög takmörkuð, árstíðarbundin útgerð sem á sinn litla kima á markaði en fellur e.t.v. ekki vel að kvótakerfi sem sniðið er að umfangsmeiri útgerðum sem starfa árið um kring.

En hvað ætli ráðherra gangi til með sinni gerræðislegu ákvörðun, að draga svona hastarlega í land og skilja fjölda lítilla útgerða eftir í uppnámi? Þetta skyldi þó ekki vera lævísleg leikflétta hans til að knýja fram kvótasetningu á grásleppu og koma þar með til móts við þrönga sérhagsmuni. Ef sú er raunin, þá hræða sporin sannarlega og auðvelt er að spá fyrir um þróunina. Fyrirsjáanleg er aukin samþjöppun, framsalsbrask og ógegnsæir viðskiptahættir, þar verður allt gert eftir handbók íhaldsins.  Aðferðin er gamalkunnug, - að deila og drottna, divide et impera.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig atvinnuveganefnd Alþingis undir forystu Vinstri grænna mun takast á við verkefnið. Mun flokkurinn í samstarfi við Framsókn stuðla að byggðafestu, jafnræði og gegnsæi? Mun þess verða gætt að aldagömul hefð og reynslu á mikilvægum en viðkvæmum svæðum verði virt eða munu þessir samstarfsflokkar tveir í ríkisstjórn enn lúta í gras fyrir sterkum öflum íhaldsins sem hafa ráðið för til þessa? Eða kannski eru ríkisstjórnarflokkarnir bara sammála.

Guðjón S. Brjánsson
alþingismaður Samfylkingar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið