Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:48 0 0°C
Laxárdalsh. 06:48 0 0°C
Vatnsskarð 06:48 0 0°C
Þverárfjall 06:48 0 0°C
Kjalarnes 06:48 0 0°C
Hafnarfjall 06:48 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 30. júní 2020 - kl. 08:31
Bæn fyrir þeim sem misst hafa vinnuna
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Við þökkum þér lifandi Guð fyrir náð þína og miskunn og fyrir að sleppa ekki hendinni af okkur, sama hvað. Veit okkur að fá að vera farvegir kærleika þíns, friðar, fyrirgefningar og fagnaðarerindis hver sem við erum, hvar sem við erum og hvert sem við förum.

Í dag leyfi ég mér að biðja þig um að líta í náð þinni til þeirra fjölmörgu sem eru eðlilega í sárum eftir að hafa misst atvinnu sína á þessum fordæmalausu tímum. Vilt þú fylla þetta góða fólk von og veita því kjark og styrk, úthald og þolinmæði í krefjandi og jafnvel bara í mörgum tilfellum erfiðu aðstæðum. Veittu þeim og okkur öllum þína óviðjafnanlegu áfallahjálp. Þú sem kannt að uppörva og láta okkur upplifa að við séum einhvers virði og að við höfum eitthvað alveg sérstakt fram að færa hvert og eitt okkar.

Gefðu að úr mætti rætast sem fyrst. Hjálpaðu okkur að missa ekki móðinn. Veit okkur bjartsýni, þolgæði og þrek og lát okkur skynja hvar raunveruleg verðmæti liggja og í hverju raunveruleg hamingja sé fólgin og hver þau gildi í lífinu séu sem skipta okkur mestu máli þegar allt kemur til alls.

Hjálpaðu okkur að sitja ekki auðum höndum og leggja ekki árar í bát. Veit okkur hugrekki og auðgaðu hugmyndaflæði okkar og skerptu á sköpunargleðinni.

Skapaðu með okkur frjóan jarðveg til nýsköpunar og tækifæra þar sem hvert og eitt okkar fær notið sín.

Hjálpaðu okkur að finna leiðir og opnaðu okkur víðar og verkmiklar dyr og að nýta tækifærin sem best þegar þau gefast. Veittu okkur útsjónarsemi og skapaðu með okkur frjóa hugsun og hjálpaðu okkur að eiga frumkvæði að góðum verkum.

Hjálpaðu okkur að standa saman, lifa í núinu horfandi fram á veginn með reynslu fortíðarinnar í farangrinum sem við getum nýtt okkur og lært af.

Vilt þú leiða okkur til farsællar framtíðar. Hættu ekki að blessa Ísland eða heimsbyggðina yfirleitt. Haltu áfram að anda á okkur kærleika þínum og friði svo við komumst af.

Veittu stjórnvöldum áræði, kjark og þor til að snúa á ástandið með nýjum og ferskum hugsunarhætti svo hjólin geti tekið að snúast með einhverjum hætti á ný. Að komið verði þar sem þess gerist þörf til móts við einstaklinga, heimili og fyrirtæki svo fólk missi ekki máttinn, þrekið, þorið og áhugann til að halda áfram og láta gott af sér leiða.

Hjálpaðu okkur einnig að minnast þess að jafnvel þótt himinn og jörð líði undir lok munu orð þín og fyrirheit aldrei undir lok líða og að ekkert skapað eða áunnið, engin þrenging eða böl né nokkurt hagkerfi getur gert okkur viðskila við kærleika þinn og tilgang lífsins.

Leyfðu okkur að njóta lífsins með þér frá degi til dags í ljósi eilífra fyrirheita þinna og leggja okkur þannig í þínar hendur í trausti þess að þú munir vel fyrir sjá.

Þess bið ég í nafni frelsarans okkar, þíns einkasonar, Jesú Krists og taki þeir undir bæn mína sem áhuga hafa og treysta sér til.

Með einlægri friðar- og kærleikskveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið