Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:02 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:02 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:02 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:02 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:02 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:02 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fæðingardagur Jóns bókavarðar og þjóðsagnameistara var 17. ágúst 1819 og hefur hans verið minnst undanfarin ár við messugerð á Hofi, síðast í fyrra en þá voru 200 ár liðin frá fæðingu hans og komu Landsbókasafnið og fleiri stofnanir mjög myndarlega að þeim hátíðardegi. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhjúpaði minnismerki um Jón við höfðann á Skagaströnd og söguspjald var einnig sett af oddvita sveitarinnar, Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur, við félagsheimilið Skagabúð nær Hofskirkju.
Faðir Jóns, sr. Árni Illugason, var í fyrstu prestur Grímseyinga og missti fyrstu konu sína í lok þess tímabils, en miðkona hans var Sesselja Þórðardóttir frá Stóruborg og hófst sambúð þeirra eftir að Árni varð prestur á Hofi á Skaga. Börn þeirra Árna og Sesselju voru Þórður prestur í Klausturhólum og Ingibjörg fyrri kona Guðmundar á Vindhæli og er margt þekktra manna komið út af þeim systkinum s.s. bræðurnir og Skagstrendingarnir Lárus Ægir og Ingibergur Guðmundssynir sem eiga Ingibjörgu Árnadóttur að formóður.
Þriðja kona séra Árna og móðir Jóns bókavarðar var Steinunn Ólafsdóttir frá Harastöðum, sem missti mann sinn og í leiðinni bújörð, prestsetursjörðina Hof meðan Jón var á barnsaldri, tæplega 6 ára. Hún kom syni sínum til prestsins í Steinnesi þegar hann var á 11. ári en Þórður bróðir hans bauð honum þremur árum síðar til sín suður á land - í Landssveitina. Jón fór síðan tvo vetur í verið og þá í Bessastaðaskóla.
Í tilefni af fæðingardegi JÁ verður haldin guðsþjónusta í Hofskirkju sun. 16. ág. og hefst kl. 14, tónlistarflutningur hefst í kirkjunni hefst kl. 13.30 en messukaffi verður að lokinni athöfn í Skagabúð.
Lítil þjóðsaga úr safni Jóns:
Karl var að tæja hrosshár og sonur hans með honum:
„Pápi minn, er það satt að Jesús Kristur hafi stigið niður til helvítis?“
„Ég veit ekki, drengur minn,“ segir karl,
„svo segja prestarnir; við skulum ekki gefa um það; við skulum vera að tátla hrosshárið okkar.“
Tengt efni:
Landsbókasafnið: https://landsbokasafn.is/
Heiður Jóni Árnasyni 1819-2019 https://www.huni.is/?cid=16123
Stökuspjall frá afmælisárinu: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=15980
Ingi Heiðmar Jónsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |