Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:36 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Og manstu þegar maður
með gullkross á baki
sneri sér að okkur og söng
drottinn sé með yður
hvernig ég skimandi
um allt hið mikla hús
greip í skúfinn þinn og stundi
hvar er guð?
Segir Jóhannes úr Kötlum, Dalamaðurinn og rifjar upp bernskujól sín og kirkjuferð – kannski þá fyrstu á ævinni:
Manstu á jólunum
þegar við fórum til kirkju
og þú hvíslaðir við dyrnar
hér er guð.
Skáldið Hannes átti bernskuspor sín á Króknum og yrkir um aðdráttarferð félaga sinna og allslausa jólatréð heima í stofu:
Nú höldum við af stað
upp hlíðina
að reyta handa því lyng
Það er logn og hvít jörð.
Til að reyta berjalyng
handa blásnauðu trénu
Jólin að koma – og lyngið
er loðið af mjöll.
Vongleði
vængjar skóhælinn okkar! Hannes Pétursson
Á skólaárunum á Akureyri áttum við félagarnir okkur uppáhaldsljóð að rifja upp á ströngum kirkjutröppugöngum á aðventunni, vorum kannski komnir niður á Teríuna til splæsa á okkur kaffibolla:
Skáldið situr inni
snöggklæddur við ljós
syngur um þann ræfil
sem fann í skarni dós
og raðar hungurhrópum
í stuðlabásafjós.
Hungrað skáld á köldum strætum borgarinnar er mynd sem íslensk augu geta auðveldlega trúað. Og eykur enn á ef hugur námsmannsins situr helst heima í dalnum þegar hann ætti að vera að ráða stærðfræðiþrautir eða stúdera Hávamál í skólanum upp á brekkunni.
Guðmundur Kamban byrjar ljóð sitt Jólleysingi með ástandslýsingu – af högum skáldsins:
Ég er jóllaus maður
japla á tappakork
engan þarf ég hnífinn
og engan þarf ég fork
geng í hvítri birtu
á Broadway í New York.
Skáldið jóllausa veltir fyrir sér að gera endi á jarðvistardaga sína:
Ég geng niður að höfninni
– hál er hlein sem gler.
Kalt er sjór, að hugsa til
að samlagast þér.
Skyldu vera marhnútar
á botninum hér?
Til hitta Stefán frá Hvítadal förum við aftur vestur í Dali. Ekki var hann auðsæll frekar en skáldið á strætum New York, en gætum við ekki reynt að kalla hann orðsælan, ljóðavinum þykir gott að setjast hjá þessu Dalaskáldi og skoða með honum myndir frá bernskujólum:
Þau lýsa fegurst
er lækkar sól
í blámaheiði
mín bernskujól.
Er hneig að jólum
mitt hjarta brann.
Í dásemd nýrri
hver dagur rann.
En ugg á stundum
mig yfir brá.
Og von á mörgu
ég vissi þá.
Því jólasveinar
úr jöklageim
trítluðu um fjöllin
og tíndust heim.
Ég aldrei sjálfur
þau undur leit:
Hann Kertasníki
og kveldsins sveit.
Ég man, sá lýður
í myrkri ólst.
Og jólakötturinn
jafnan fólst. Stefán frá Hvítadal/Jól
Heimildir og ítarefni:
Jóhannes úr Kötlum: http://johannes.is/
Jólaljóð:
Jóhannes úr Kötlum: Manstu á jólunum 46
Hannes Pétursson Jólatré 51
Guðmundur Kamban Jólleysingi 58
Stefán frá Hvítadal Jól 33
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |