Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:09 0 0°C
Laxárdalsh. 21:09 0 0°C
Vatnsskarð 21:09 0 0°C
Þverárfjall 21:09 0 0°C
Kjalarnes 21:09 0 0°C
Hafnarfjall 21:09 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 11. febrúar 2021 - kl. 16:00
Menntun og almúginn
Eftir Gunnar Tryggva Halldórsson

Menntun á öllum skólastigum er mikilvæg fyrir alla landsmenn. Skattgreiðendur, hvort sem þeir búa í dreifbýli eða þéttbýli, eru þeir sem fjármagna menntakerfi landsins. Um þetta getum við öll verið sammála. En hvernig förum við að því gera menntun aðgengilega fyrir alla og tryggja sem mest jafnræði?

Í Norðvesturkjördæmi er aðgengi að menntum misgott og jafnræði með ýmsum hætti. Margir íbúar þess hafa mikinn kostnað af því að mennta börn sín. Hér ætla ég að stikla á stóru varðandi menntun í í dreifðari byggðum landsins, en þó með áherslu á Norðvesturkjördæmi.

Góðir vegir - góður námsmaður
Góðar vegasamgöngur fyrir leik- og grunnskólanema frá dreifðari byggðum er vanmetinn hlekkur í menntakerfi landsins. Sjálfur fór ég daglega með skólabíl um 100 km. á dag alla mína grunnskólagöngu. Við lauslega samantekt, þá komst ég að því að líklegast var ég um 3600 klukkutímar í skólabíl, sem gerir 150 sólarhringa eða um 5 mánuði. Vafalaust eru margir sem þurfa að fara lengri leið en ég til skóla og undistrikar það ennfrekar mikilvægi uppbyggingar á tengivegum landsins. 

Framhaldsskólanám í nærbyggð
Eftir grunnskóla geta börn í sumum tilfellum sótt framhaldsskólanám í sinni heimabyggð, en alls ekki öllum. Við slíkar aðstæður þurfa fjölskyldur að leggja á sig aukakostnað, t.d. við heimavist eða leiguhúsnæði. Vissulega kemur til aðstoðar jöfnunarstyrkur frá Menntasjóði námsmanna og húsaleigubætur frá sveitarfélögum, en það er aðeins brot af heildarkostnaði. Framhaldsskólanemar verða því oft að vinna mikið yfir sumarið og jafnvel með skóla til að kosta nám sitt. Foreldrar aðstoða í flestum tilfellum börn sín við nám en það eru líka til foreldrar sem hafa ekki tök á að dekka þessi viðbótar útgjöld. Við það má ekki una. Það þarf því að stórauka tækifæri í heimabyggð með aðstoð fjartækni við framhaldsskólanám og byggja upp öflugar námsdeildir um land allt.

Meira val – minni kostnaður
Námsmenn á landsbyggðinni sem sækja sér háskólamenntun eru bundnir af námsframboði hvers skóla. Þurfa því margir að sækja nám langt að heiman með tilheyrandi kostnaði. Ungir námsmenn út á landi hafa því oft fáa kosti aðra en að flytja að heiman. Það er aðstöðumunur sem jafna verður út. Sjálfur þekki ég þessar áskoranir, verandi búsettur í Austur - Húnavantssýslu á leið í háskólanám fyrir nærri tveimur áratugum. Þá var það minn eini kostur að taka námslán til að kosta uppihald í Reykjavík. Eftir námið fór ég út í lífið með milljóna skuldir á herðunum meðan bekkjarbræður mínir í Reykjavík bjuggu enn í foreldrahúsum, skuldlausir. 

Auka fjármagn til námsmanna frá dreifðari byggðum
Bjartur í Sumarhúsum sagði við Jón hreppstjóra, þegar hreppstjórinn stakk upp á því að Ásta Sóllilja lærði hjá honum: „Ég álit þá , að það sé best að þeir sem tilheyra almúganum uppfræði sinn almúga og þeir sem tilheyra stórmennum uppfræði sín stórmenni.“ Þó Bjartur hafi verið stórgallaður maður með þrönga heimssýn, mátti hann eiga það að hann vildi hafa fólkið sitt nálægt sér og reyndi, með misjöfnum árangri, að styrkja sinn hag í heimabyggð. Þótt ekki verði kvittað upp á hans sýn á menntamálum þá er tilvitnunin ágæt til að skerpa fókus.

Það á nefnilega að vera forgangsverkefni að auka styrki til náms fyrir íbúa á landsbyggðinni, bæði með hærri jöfnunarstyrkjum vegna framhaldsskólanáms og eins auka vægi styrkja verulega í námslánum háskólanema frá dreifðari byggðum. Eitt af forgangsverkefnum stjórnvalda er að leiðrétta hlut landsbyggðar í menntamálum og tryggja að sem mest framboð af menntun á framhalds- og háskólastigi sé í boði um land allt. Þessi ákvörðun þarf að koma frá ríkisvaldinu, sem krafa með fjármagni til menntastofnanna en ekki vera geðþóttaákvörðun skólastjórnenda í hverjum skóla fyrir sig. Jöfnum tækifæri til náms fyrir alla landsmenn!

Gunnar Tryggvi Halldórsson
Höf. er frambjóðandi í 3. sæti Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið