Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:03 0 0°C
Laxárdalsh. 09:03 0 0°C
Vatnsskarð 09:03 0 0°C
Þverárfjall 09:03 0 0°C
Kjalarnes 09:03 0 0°C
Hafnarfjall 09:03 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Verðlaunahafar
Verðlaunahafar
Eline og Jón á Hofi
Eline og Jón á Hofi
Bergrún og Jón Kristófer á Hæli
Bergrún og Jón Kristófer á Hæli
Árni og Unnur Erla í Sunnuhlíð
Árni og Unnur Erla í Sunnuhlíð
Inga Sóley og “lafur á Sveinsstöðum
Inga Sóley og “lafur á Sveinsstöðum
Jakobína Björg og Jón Ingi í Fagranesi
Jakobína Björg og Jón Ingi í Fagranesi
Fréttir | Pistlar | 26. febrúar 2021 - kl. 09:26
Góður árangur í ræktunarstarfinu
Frá stjórn Félags sauðfjárbænda í A-Hún.

Ár hvert halda búgreinafélög í Austur-Húnavatnssýslu sameiginlega árshátíð fyrir bændur héraðsins og veita þar viðurkenningar fyrir góðan árangur síðast liðins árs. Vegna covid-19 var ekki haldin búgreinahátíð en verðlaun voru þó veitt hjá Félagi sauðfjárbænda í A-Hún með viðhöfn. 

Framleiðsluárið 2020 var sauðfjárbændum í Austur-Húnavatnssýslu gjöfult. Afurðir voru með mesta móti en í sýslunni voru 28.699 vetrarfóðraðar ær og þær skiluðu að jafnaði 27,3 kg. Fallþungi var 16,6 kg, gerð 9,28, fita 6,1 og meðalaldur lamba var 137,4 dagar. Sé tekið mið af árinu 2019 er þetta bæting á milli ára og endurspeglast það í góðum árangri félagsmanna sem er eftirfarandi.

Veitt voru verðlaun í eftirfarandi flokkum:

Hæst stigaðasti kollótti lambhrútur haustsins 2020 var frá Hofi í Vatnsdal, það var hrúturinn Áfangi sem hlaut 90 stig. Hann er undan Árangri frá Árbæ og í móðurætt rekur hann einnig ættir sínar í Árbæ. Áfangi er sannkallaður glæsigripur hvort sem er á velli eða átöku. Annar var lambhrútur nr. 625A frá Kambakoti og hlaut hann 89 stig, hann er undan Gullkálfi frá sama bæ og má segja að þetta sé þrautræktaður heimahrútur. Þriðji var Snæbjörn frá Holti í Svínadal en hann hlaut 88.5 stig. Faðir hans er stöðvarhrúturinn Kollur frá Árbæ og í móðurætt er stutt í Baug frá Efstu-Grund. Augljóst er að kollótti fjárstofninn frá Árbæ er að auka gerð í hjörðum Austur-Húnvetninga.

Hæst stigaðasti hyrndi lambhrútur haustsins var frá Hæli, hann heitir Kasper og hlaut 89.5 stig. Faðir hans er stöðvarhrúturinn Glæpon frá Hesti og í móðurætt rekur hann ættir sínar að Svínafelli í Öræfum. Annar var Gunnar frá Sölvabakka, hann hlaut einnig 89.5 stig. Hann er undan Fidda frá Sölvabakka sem er sonur Barkar frá Efri-Fitjum og í móðurætt rekur hann sig í stöðvarhrútana Berg frá Bergsstöðum í Miðfirði og Tjald frá Sandfellshaga. Þriðji var Grettir frá Sölvabakka og hlaut hann 89 stig, afi hans er Lási frá Leifsstöðum og í móðurættina rekur hann sig í Tjald frá Sandfellshaga. Þess má til gamans geta að þrátt fyrir þingeyskt blóð er hann ekki fullur af lofti og vóg hann hvorki meira né minna en 73 kg.

Sú nýbreytni var hjá félaginu í ár að verðlauna fyrir bestu fimm vetra ána (fædd 2014). Skilyrði til viðurkenningar eru lágmark 100 fyrir alla eiginleika kynbótamats, þá raðað eftir     ærin þarf að hafa skilað lambi gemlingsárið, að lágmarki tvílembd öll ár, 7.0 eða hærra í afurðastig og skilað að lágmarki 8 lömbum til nytja. Í ár var það kindin Fjárleg 14-209 frá Sunnuhlíð í Vatnsdal sem stóð efst. Hún hefur ætíð verið tvílembd og skilað lömbum snemma til slátrunar með 18,3 kg í meðalvigt, hún hefur einnig 8.4 í afurðarstig. Þrjár dætur hennar hafa verið settar á og líta vel út sem framtíðar ræktunargripir. Önnur var kindin MýraBirna frá Breiðavaði undan Bekra frá Hesti. Þriðja var kindin 14-435 frá Steinnesi en hún er undan Bósa frá Þóroddsstöðum.

Afurðarhæsta búið (2019) voru Sveinsstaðir, þar voru á fóðrum 617 ær, frjósemi var 2.09 og afurðir eftir vetrarfóðraða kind 37.9 kg. Þetta skilaði Sveinsstaðabúinu í 9. sæti yfir afurðarhæstu bú landsins sem eru með fleiri en 100 skýrslufærðar ær. Annað sætið skipaði Stekkjardalur, þar voru á fóðrum 150 ær, frjósemi var 1.84 og afurðir eftir vetrarfóðraða kind 34.3 kg. Þriðja afurðarhæsta búið var Kornsá, þar voru á fóðrun 450 ær, frjósemi var 1.92 og afurðir eftir vetrarfóðraða kind 33 kg.

Besta gimbrahjörðin var í Fagranesi í Langadal, þar var glæsilegur hópur gimbra með meðalþykkt bakvöðva 32.8 mm. Þetta er annað árið í röð sem þau verma efsta sætið en árið 2019 var meðalþykkt bakvöðva 32.9 mm. Annar besti hópurinn var á Sölvabakka, þar var meðalþykkt bakvöðva 32.1 mm. Þriðji besti hópurinn var í Stekkjardal en þar var meðalþykkt bakvöðva 31.4 mm.

Stjórn Félags sauðfjárbænda í A-Hún óskar verðlaunahöfum til hamingju með góðan árangur og vonast til að hægt verði að halda veglega búgreinahátíð á árinu 2021. Við viljum þakka Sigurbjörgu í Litladal fyrir glæsilega verðlaunagripi sem hún hefur skorið út fyrir félagið undanfarin ár og RML fyrir upplýsingar úr skýrsluhaldi.

Stjórn Félags sauðfjárbænda í A-Hún.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið