Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:17 0 0°C
Laxárdalsh. 12:17 0 0°C
Vatnsskarð 12:17 0 0°C
Þverárfjall 12:17 0 0°C
Kjalarnes 12:17 0 0°C
Hafnarfjall 12:17 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 07. maí 2021 - kl. 13:28
Framtíðarsýn skólamála í Austur-Húnavatnssýslu
Eftir Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur

Skólar eru hjartað í hverju samfélagi og á því leikur enginn vafi. Allt tal um breytingar í skólamálum getur vakið upp ótta og óróleika hjá íbúum. Í aðdraganda sameiningarkosninga eru skólamál ofarlega á baugi í öllum sveitarfélögunum, því vissulega vilja íbúar ekki missa skólann frá sér. Nemendum í Húnavallaskóla hefur fækkað á undanförnum árum og mikilvægt að staldra við og velta því fyrir sér hvort núverandi form henti nemendum. Það þarf að huga að félagslegum þáttum samhliða áherslum á fjölbreytt og gott nám. Stærri hópar kalla á fleiri möguleika í félagavali sem og námsframboði. Núverandi húsnæði Blönduskóla getur tekið við þeim nemendafjölda sem nú er á Húnavöllum. Við sem störfum í samstarfsnefnd um sameiningarmál höfum lagt það til að Húnavallaskóli og Blönduskóli verði sameinaðir í nýja skóla með starfsstöð á Blönduósi. Við leggjum ekki til að Blönduskóli yfirtaki starfsemi Húnavallaskóla heldur að samruni skólanna verði unninn í sátt með starfsfólki, foreldrum og nemendum. Sú vinna mun hefjast haustið 2022 og frá haustinu 2024 mun nýr skóli taka til starfa. Sá skóli þarf að hafa þarfir dreifbýlis- og þéttbýlisnemenda að leiðarljósi og verður það verðugt og krefjandi verkefni að þróa nýjan skóla. Báðir skólar hafa aukið áherslu á tækni í námi og kennslu og þar liggja gríðarleg tækifæri í framtíðinni. Á Blönduósi er Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra með starfsstöð og sjá má fyrir sér áframhaldandi uppbyggingu Dreifnámsins þar, sé litið til breytinga á skólaakstri sem óhjákvæmilega verða, þegar nemendur úr Húnavatnshreppi munu sækja skóla á Blönduósi.

Breytingar í leikskólamálum á áðurnefndum stöðum eru ekki í farvatninu. Eins og staðan er núna hefur Barnabær ekki rými til að taka við þeim nemendafjölda sem er á Vallabóli og sjáum við í samstarfsnefndinni fyrir okkur að leikskóli verði áfram rekinn á Húnavöllum. Þar liggja ýmis tækifæri til séráherslna fyrir nýtt sveitarfélag ef Umhverfisakademía kemst á laggirnar þar. Hægt er að sjá fyrir sér að áherslur í námi leikskólans muni taki mið af áherslum Umhverfisakademíunnar, þannig að nokkurs konar umhverfisleikskóli verði til. Það er ákaflega spennandi verkefni fyrir nýtt sveitarfélag, í ljósi þess að stefnan er sett á að nýtt sveitarfélag verði umhverfisvænasta sveitarfélag á landinu. Nýting húsnæðis Húnavallaskóla og umhverfi hans fyrir Umhverfisakademíu með lýðskólaformi er einstaklega spennandi tækifæri fyrir okkur íbúa í Austur-Húnavatnssýslu sem við þurfum að sameinast um og vera sammála um.

Í sameiningarvinnunni hefur ekki verið lagt til að leik- og grunnskólar á Skagaströnd verði sameinaðir öðrum skólum. Þar rekur Hjallastefnan leikskólann Barnaból og hefur gert síðan 2015. Í nýju sveitarfélagi verða því áfram 3 leikskólar með mismunandi áherslur. Nemendum í skólum á Skagaströnd hefur farið fækkandi á undanförnum árum og er það áskorun fyrir nýtt sveitarfélag að fjölga íbúum á skólaupptökusvæði Höfðaskóla og Barnabóls en núna eruþað nemendur úr Skagabyggð og Skagaströnd sem sækja þar skóla. Í Höfðaskóla hefur verið byggt upp skólasamfélag með áherslu á nýtingu tækni í öllu námi og skólinn stendur framarlega hvað tæknibúnað og þekkingu varðar.

Framtíð skóla í Austur-Húnavatnssýslu er björt. Skólarnir hafa gríðarlega metnaðarfullt og vel menntað starfsfólk og nýtt sveitarfélag mun búa yfir miklum mannauði þegar litið er til skólanna. Íbúar hér geta verið stoltir af sínum skólum og þeirri framtíðarsýn sem er fyrir þá og við skulum sameinast um að gera góða skóla enn betri.

Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Oddviti Skagabyggðar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið