Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:51 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:51 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:51 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:51 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:51 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:51 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Mánuður heitir skerpla og tekur við af hörpu, þessir fyrstu sumarmánuðir sigla nú gegnum heiðríkjuna, Jónsmessa handan við næsta leiti en fæðingardagur Jóns Sigurðssonar og þjóðhátíðardagur Íslendinga kominn í sjónmál. Skoðum nokkrar Jónavísur af þessu tilefni:
Þó megi um fögnuð finna gögn
er fylling brögnum léði
að ýmsra sögn er algjör þögn
alveg mögnuð gleði. Jón Arnljótsson Ytri-Mælifellsá f. 1961
Sól í æginn síga fer
senn á daginn líður
ferðalagið af því er
okkur í haginn síður. Jón Árnason á Tindum og Víðimýri f. 1830
Geng ég lotinn grátt með hár
græt mín brotin stóru
Mín eru þrotin æviár
illa notuð vóru. Jón Einarsson á Skárastöðum f. 1803
Væna skafla vetur bjó
vítt um lendur jarðar.
Lít ég Kaldbak krýndan snjó
konung Eyjafjarðar. Jón Gissurarson Víðimýrarseli f. 1946
Sækja að mér systur tvær
svo ég hníg að velli
harðar báðar, hafa klær
heita gikt og elli. Jón Gottskálksson í Ketuseli f. 1838
Það er svo með suma þá
sem að þykjast góðir
þegar reynir eitthvað á
eru þar tómir sjóðir. Jón Guðmundsson Garði í Þistilfirði f. 1883
Væri ég einn sauðurinn í hlíðum,
skyldi ég renna í Áradal,
forða hríðum,
forða mér við hríðum. Jón Guðmundsson lærði f. 1574
Þó að falli í fastar skorður
flest og gráni hár.
Alltaf leitar andinn norður
eins og strokuklár. Jón Guðmundsson frá Eiríksstöðum f. 1935
Við hliðið mitt ég heimanbúinn stend
á himni ljómar dagsins gullna rönd
sú gjöf mér væri gleðilegust send
að góður vinnudagur færi í hönd. Jón Helgason prófessor f. 1899
Tyrf þú fjósið, þarfur þjón
þétt á báðar síður.
Láttu ekki leka, Jón
lífið þar á ríður. Jón Hjaltalín 1749
Eins og vorið er hún hýr
eins og sóley rjóð í kinnum;
en þokuhnoðri bak við býr
hann beltar ennið stöku sinnum. Jón Hinriksson Helluvaði f. 1829
Þó ég Óðinn lofi í ljóði
lagi hróður Þór og Frey
hætti góða brögnum bjóði
borgarfljóðin hlusta ei. Jón Ingvar Jónsson frá Akureyri f. 1957
Skekur Kári skýin grá,
skellur bára á dröngum.
Frjósa tárin fölum á
fjólu- og smáravöngum. Jón Jónsson Eyvindarstöðum f. 1869
Frægu skáldin fara á stjá
flíka ljóðum snjöllum.
Andinn kemur yfir þá
uppi á Hveravöllum. Jón Karlsson Gýgjarhólskoti f. 1929
Tvisvar sinnum sjö vísum hefur verið raðað hér í stökuspjall, en allmargir Jónar eru enn á listanum og birtast í annarri lotu.
Enginn á móðurmálið fremur en ýmislegt dýrmæti annað sem okkur hlotnast að hafa not og gleði af um ævidaga skamma eða langa, en myndina að sigla gegnum heiðríkjuna tengi ég við skáldið snjalla, Ólaf Jóhann Sigurðsson sem átti æskudaga við flúðir og lygnur Sogsins:
Dalur nyrðra
Björk áttu í hlíðum,
blágnípótt fjallaskörð,
sóleyjar í túni,
ó sumargræni dalur.
Og blásturinn dansar
inn brimölduljósan fjörð
norðan úr höfum,
heilnæmur og svalur.
Þó halda sumir
sunnanlands, að þú
kunnir að reynast
klækjarefum falur. Ólafur Jóhann Sigurðsson
Meira af skáldunum:
Jón Hinriksson: https://timarit.is/page/2290995#page/n3/mode/2up
Jónana má flesta finna í Húnaflóa – vísnasafni: http://bragi.arnastofnun.is/hunafloi/
Ólafur Jóhann í Braga – vísnavef: http://bragi.arnastofnun.is/hofundur.php?ID=17577
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |