Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:23 0 0°C
Laxárdalsh. 03:23 0 0°C
Vatnsskarð 03:23 0 0°C
Þverárfjall 03:23 0 0°C
Kjalarnes 03:23 0 0°C
Hafnarfjall 03:23 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 01. september 2021 - kl. 11:04
Öruggt húsnæði fyrir alla
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Öruggt húsnæði er hornsteinn jöfnuðar í samfélaginu enda er það mannréttindamál að eiga þak yfir höfuðið. Við Vinstri græn leggjum mikla áherslu á að á landinu öllu sé gott framboð af húsnæði bæði til leigu og til eignar á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og tekjulægri. Á nýliðnum landsfundi VG voru húsnæðismál áberandi og samþykkt stjórnmálaályktun þar sem lögð er áhersla á áframhaldandi uppbyggingu félagslegs húsnæðis, bæta þurfi í stofnframlög til uppbyggingar almennra íbúða og efla það kerfi til framtíðar. Efla þurfi og stækka leigufélagið Bríeti sem er í eigu ríkisins og ætlað er að koma á öflugum og sanngjörnum leigumarkaði um land allt. Jafnframt eigi að bæta réttindi leigjenda og bjóða upp á öfluga upplýsingagjöf til þeirra á mörgum tungumálum.

Á þessu kjörtímabili hefur átt sér stað mikil uppbygging meðal óhagnaðardrifinna leigufélaga sem að býður fólki húsnæði á viðráðanlegu verði. Þannig á húsnæðiskostnaður að jafnaði ekki að vera umfram fjórðung tekna leigjanda og stendur til boða víða um land. Einnig komum við á hlutdeildarlánum sem nýtast ungu og tekjulægra fólki við fyrstu kaup hvar sem er á landinu þar sem ríkið á hlut í eigninni til að byrja með sem að hægt er að innleysa síðar. Í dag er algengt að ungt fólk treysti á að fá stuðning við útborgun í fyrsta húsnæði frá foreldrum sínum eða nánustu ættingjum. Þessari uppbyggingu þarf að halda áfram af krafti á komandi kjörtímabili. Að eiga öruggt þak yfir höfuðið eru hin sjálfsögðustu mannréttindi. Það skiptir einnig miklu máli að þessi uppbygging eigi sér stað um land allt svo allir landsmenn eigi sannanlega aðgang að mannsæmandi og öruggu húsnæði á sanngjörnu verði og þar munum við halda áfram að gera enn betur.

Veruleikinn er sá að á mörgum landsvæðum duga markaðslögmálin skammt og hefur uppbygging í húsnæðis verið í lágmarki og staðið í stað í ár og áratugi, með tilheyrandi stöðnun í atvinnuuppbyggingu og íbúaþróun. Lágt endur söluverð og lágt veðhæfi spila þar stórt hlutverk. Afleiðingin er mikill sogkraftur á höfuðborgarsvæðið og aðra þéttbýlisstaði á landinu í gegnum árin. Þess vegna munu hlutdeildarlán og almennar leiguíbúðir skipta miklu fyrir jákvæða íbúaþróun og öflugra atvinnulíf um land allt.

Það hvort fólk leigi sitt húsnæði eða eigi á að vera val þess sjálft. Hlutverk stjórnmálanna er að bjóða fólki upp á ólíka valkosti sem hentar því best hverju sinni. Sá valkostur á að vera til staðar hvort sem um er að ræða á Þingeyri, Skagaströnd eða í Kópavogi.

Lilja Rafney Magnúsdóttir
Formaður atvinnuveganefndar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið