Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:52 0 0°C
Laxárdalsh. 14:52 0 0°C
Vatnsskarð 14:52 0 0°C
Þverárfjall 14:52 0 0°C
Kjalarnes 14:52 0 0°C
Hafnarfjall 14:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 05. september 2021 - kl. 11:01
Sögukorn: Út við Tindastól
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Norður á Krók flýgur hugur þegar bókin Sölva Sveins um Eyþór organista kemur upp í hendurnar, nýútkomin, ríkulega myndskreytt og efnið vel fram sett. Dagbækur organistans, dagblöð, bréf, fundargerðir og ekki síst sýn sögumannsins, sem ólst upp á Sauðárkróki, í þessu gróandi söng- og menningarsamfélagi þar sem tónskáldið og kennarinn Eyþór Stefánsson hafði slegið taktinn listmenningunni stóran hluta aldarinnar. Sölvi segir okkur söguna í fyrstu persónu og því kann ég vel.

Eyþór fæddist 1901. Hann fæddist þar undir Nöfunum, missti föður sinn tvítugur og þá flutti móðir hans til Akureyrar, til Stefáns elsta sonar síns, en Eyþór bjó eftir ásamt systur sinni og syni hennar, Svavari Guðmundssyni, „glaðsinna söngmanni“ segir Sölvi sögumaður og bókarhöfundur.

Tvö sumur var drengurinn Eyþór í sveit hjá Benedikt á Fjalli, en fimmtán ára gamall fór hann fyrst að stunda Drangey, var við fiskveiðar í fjörunni, fuglaveiði á flekum og síðar við sig.

„Um tvítugsaldur var Eyþór byrjaður að æfa smákóra á ungmennafélagsins Tindastóls“ og hann stjórnaði þá blönduðum kór stúkumanna.

Eyþór hóf störf hjá KG 1924 og starfað hjá honum í nær 20 ár „og þar var hann löngum stundum. Tónlist var í hávegum höfð á heimilinu. KG var einn af fyrstu organistunum á Króknum og Þórunn dóttir hans og Bjargar var músikölsk og lét á píanó sem var á heimilinu; Eyþór hefur áreiðanlega tekið þar lagið með Stebba söng sem oft kom á Krókinn þau misserin.“

KG, Kristján kaupmaður á Króknum var móðurbróðir söngstjóranna fyrstu hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, Gísla og Þorsteins Jónssonar, var uppalinn í fjölmennum systkinahópi vestur á Eyvindarstöðum, músikalskur og mikill áhugamaður um tónlist og þeir Eyþór frændur nutu góðs af.

Ellefu ára var Eyþór þegar Gísli Magnússon organisti sótti hann til að syngja alt í kirkjukórnum, á jólaföstu 1912, Pétur Sigurðsson tónskáld var organisti við Sauðárkrókskirkju 1923-1929 en þá tók Eyþór við starfinu og starfaði til 1972.

Heilmikið stórvirki er þessi bók Sölva Sveinssonar, kemur víða við eins og starf Eyþórs organista á Sauðárkróki, en við sem stunduðum Skálholtsnámskeið Hauks á síðasta fjórðungi aldarinnar, urðum vinir og aðdáendur Guðrúnar Eyþórsdóttir organista á Ísafirði, en átti þá eftir að flytja heim á Krókinn og halda áfram starfi föður síns á kirkjuloftinu. En hún lést á 48 æviári sínu svo aldraður faðir hennar átti eftir að lifa hana í tólf ár.

Skemmtilegir eru kaflar Sölva bókarhöfundar um forsetakosningarnar, Kristjáns og Vigdísar, þar sem hann rifjar upp dagbókafærslur Eyþórs.  

Ég eignaðist einmitt eftirminnilega daga og heyrði ýmsar kosningasögur af Króksbúum vorið hennar Vigdísar, árið 1980 þegar við Guðmundur Bergsstaðaskáld Halldórsson vorum allt í einu komnir í bandalagi með Guðrúnu Láru á Mælifelli eftir fund með Vigdísi forseta fram í Árgarði og afráðið var þar og þá að opna skrifstofu út á Krók og skyldi ég gæta skrifstofu og símans og  talaði svo auðvitað máli frambjóðandans allan daginn en hafði fæði og húsnæði hjá þeim góðu hjónum, Önnu og Munda upp við Skógargötu. Ekki man ég þó alla sem þarna komu, en minnisstæður var Sveinn Sölvason, faðir höfundar þessarar góðu Eyþórsbókar, hressilegur maður, kominn á efri ár, fróður og einarður og birtist þar flesta daga og lagði gott til mála. Alla Rögg og Magga, góðum og hjálpfúsum nágrönnum Eyþórs kynntist ég á þessu kosningavori.

Já, það var margur kaffisopinn drukkinn þarna við umferðaniðinn á Skagfirðingabrautinni – í skjóli Huldu Björnsdóttur og Lúðvíks Hjálmarsson sem leigðu okkur neðri hæðina undir kosningaskrifstofuna.

En gleymum ekki tónskáldinu Eyþóri vegna sigurgöngu Vigdísar vorið 1980, en nær bókarlokum er kaflinn Í annarra augum, þar sem Björn oddviti á Sveinsstöðum fær fyrstur orðið, síðan Snorri Björn bæjarstjóri, listamaðurinn Jón Ormar og síðast Hannes skáld Pétursson sem segir: „Eyþór er gæddur alúð og drenglyndi, eðliskostum sem afla hverjum manni vinsælda og trausts. Veit ég ekki til að nokkur hafi reynt Eyþór Stefánsson að öðru en góðu einu.“

Bókarhöfundurinn spyr sig: „Hvar kynntist Eyþór töfrum tónlistarinnar? Ég held það sé ekki orpið nokkrum vafa að tónlist var mjög gildur þáttur í uppeldi hans og uppvexti; tónlistargáfa og -iðkun hafa löngum verið kynfylgjur afkomenda Borgar-Bjarna og Guðrúnar Þorsteinsdóttur og nægir að nefna auk Eyþórs Stefán Íslandi, Pétur Sigurðsson tónskáld frá Geirmundarstöðum og Svavar Guðmundsson . . . Una Jónasdóttir, móðursystir Eyþórs, bjó í Brennigerði og söng oft á síðkvöldum í veðurblíðunni úti á hlaði svo heyrðist um alla Borgarsveit, sagði Eyþór í viðtali 1970.“

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið