Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:58 0 0°C
Laxárdalsh. 06:58 0 0°C
Vatnsskarð 06:58 0 0°C
Þverárfjall 06:58 0 0°C
Kjalarnes 06:58 0 0°C
Hafnarfjall 06:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 24. september 2021 - kl. 10:30
Rétttrúnaður sem sviptir okkur þjónustu
Eftir Högna Elfar Gylfason

Rétttrúnaður af ýmsu tagi hefur tröllriðið þjóðfélaginu á undanförnum vikum, mánuðum og árum.  Einn er þó slíkur sem hefur ekki farið hátt í umræðunni þrátt fyrir alvarlegar og endurteknar afleiðingar sem af hljótast. Rétttrúnaðurinn sem hér er rætt um er mantran og ofurtrúin á að samkeppni og hagræðing sé eina rétta stjórntækið á öllum sviðum mannlífsins.

Skert grunnþjónusta

Í gær kom í ljós að eitt víðlesnasta blað landsbyggðarinnar, Bændablaðið, yrði ekki borið út á öll lögbýli landsins fyrir komandi helgi. Eins og allir vita er kosningahelgi framundan og því mjög mikið efni á síðum blaðsins, margvíslegur fróðleikur, greinaskrif frambjóðenda og annarra ásamt miklu af auglýsingum vegna framboða til alþingiskosninga og fleira. En af hverju er undirritaður að tjá sig um skort á blaði bænda núna og hver skyldi vera ástæðan fyrir því að ríkisfyrirtæki sem sér um að dreifa pósti stendur sig svo illa sem raun ber vitni?

Lögbrot ráðherra Sjálfstæðisflokksins í nafni samkeppni

Fyrir fáeinum árum tók þáverandi ráðherra póstmála ákvörðun um að draga úr þjónustu Póstsins með því að fækka dreifingardögum í dreifbýli. Þetta gerði ráðherrann með breytingu á reglugerð sem á þeim tíma fór gegn lagabókstafnum sem hvað á um dreifingu alla virka daga. Engu skipti að athugasemdir bærust um brot ráðherra á íslenskum lögum heldur var vísað til þess að svona væru nú hlutirnir gerðir í Evrópusambandinu og að til stæði að taka upp frekari löggjöf þaðan ættaða. Hlutirnir ættu að snúast um að ríkið yrði ekki fyrir komandi samkeppni einkafyrirtækja sem nýja löggjöfin frá meginlandi Evrópu boðaði.

Samkeppni til góðs eða ills

Nú er alkunna að samkeppni af ýmsum toga getur verið til góðs fyrir neytendur.  Þó er langur vegur frá því að slíkt sé algilt og er hægt að segja slíkt hið sama um mörg önnur framfaramál. Til dæmis er það að láta veitingu nauðsynlegrar grunnþjónustu í hendur „lögmála markaðarins “ hreint alls ekki til góðs fyrir alla, þó sumir hafi vissulega af því hag. Í málefnum dreifðra byggða virka samkeppnissjónarmið um dreifingu pósts ekki. Einkafyrirtæki hafa tekið safaríkustu bitana sem er dreifing í mesta þéttbýlinu og eftir er grunnþjónusta sem stendur ekki undir kostnaði. Svar Póstsins hefur síðan verið að draga sífellt meira úr þjónustu við dreifbýlið, sem hefur svo orðið til þess að notendur reyna eftir fremsta megni að nota aðrar leiðir til að nálgast vörur og þjónustu, oft með ærnum tilkostnaði.

Hagræðing eins, óhagræði annars

Fregnir af enn frekari sparnaðaraðgerðum Póstsins með styttingu vinnutíma, niðurlagningu vakta og enn frekari samdrætti í tíðni í útburðar virðist síðan reka smiðshöggið á eyðileggingu þjónustunnar við dreifbýlisbúa og koma í veg fyrir að fólk utan þéttbýlis fái póstinn sinn og þar með Bændablaðið á eðlilegum tíma. Segja má að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk í stafni stundi í þessum efnum, sem og ýmsum öðrum, fjandsamlega byggðastefnu gagnvart dreifðum byggðum landsins, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þar starfa ásamt þeim fjölskyldum sem þar búa. Ekki virðist gerð minnsta tilraun til að líta á heildarmyndina sem segir svo ekki verður um villst að þjónustuskerðing í einum þætti getur valdið erfiðleikum og auknum kostnaði í öðrum.

 Ísland allt

Fyrir síðustu kosningar kynnti Miðflokkurinn áætlunina „Ísland allt . Stórtækustu áætlun sem kynnt hefur verið um að efla byggðir landsins alls.

Áætlunin snýst um að líta á heildarmyndina, ekki bara afmarkaðan landshluta eða eitt svið atvinnu, innviða eða þjónustu.  Með því að líta á heildaráhrifin og langtímaáhrifin getum við leyft okkur að ráðast í miklar fjárfestingar í þeirri vissu að eitt muni styðja annað og áhrifin verði á endanum hagkvæm fyrir allt Ísland.

Allt helst þetta í hendur, heilbrigðismál, menntun og önnur þjónusta ríkisins, samgöngur, nýir hvatar í skattkerfinu, atvinnuuppbygging, orkumál, fjarskipti og annað sem varðar daglegt líf fólks.

Grunnhugmyndin er sú að allir landsmenn eigi rétt á sömu þjónustu og lífsgæðum óháð búsetu.  Það virðist augljóst að þannig eigi það að vera en Miðflokkurinn er með skýra áætlun um hvernig það geti orðið að veruleika.

Setjum X við M fyrir íslenska landsbyggð og jöfn lífsgæði óháð búsetu.

Högni Elfar Gylfason

Frambjóðandi Miðflokksins í 5. sæti í Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið