Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sagnfræðingar voru laðaðir að sölum Heimilisiðnaðarsafnsins laugardaginn 30. okt.
Þangað komu Jón Torfason sagnfræðingur og Sigríður Sigurðardóttir lektor við Hólaskóla. Þau voru bæði á heimavelli, Sigríður upprunnin úr Blönduhlíð en Jón af Ásunum, sem áður skiptust milli Hjaltabakka- og Þingeyrasókna.
Fyrirlestrasalurinn fylltist af gestum sem hlýddu á fyrirlestra þeirra, erindi Sigríðar hét Þrif í torfbæjum en Jón fjallaði um sullaveiki, smitleiðir, áskoranir lækna og viðvaranir um smit frá hundum, aðstæður þeirra sem framfærðir voru á kostnað sveitarinnar og rakti að lokum sögu húnvetnsks drengs og niðursetnings, sem lést úr sullaveiki rúmlega tvítugur, var þá kominn suður til Reykjavíkur. Erindi Jóns var byggt á ferð hans norður um Húnaþing með áhugamönnum um sögu baráttunnar við sullaveikina, allt fram að Kúfustöðum í Svartárdal, þar sem Jón Thorstensen landlæknir fæddist 1794.
Líflegar umræður og fyrirspurnir urðu í lok fundarins sem Elín forstöðumaður safnsins kveikti með því að fela fyrirlesurum fundarstjórn meðan hún sjálf undirbjó veitingar í kaffistofunni.
Í safninu voru haldnir tvennir tónleikar í júlí, Helga Rós, söngkona og kórstjóri, söng á þeim síðari við undirleik Evu Þyri Hilmarsdóttur en á fyrri tónleikunum fluttu Hafdís Bjarnadóttir og Passepartout Duo eins konar óð til kvöldvöku gamla tímans þegar fjölskyldur sátu saman í baðstofum, unnu úr ullinni og hlýddu á sögur og kveðskap.
Tónlistina nefndu þau sauða- og prjónatóna og framkölluðu þá með gítar, slagverki, hljómborði og tölvu auk óhefðbundinna hljóða eins og braki frá hesputré, spunahljóði rokks, kembingu ullar og klið frá prjónum áheyrenda.
Síða Heimilisiðnaðarsafnsins: http://textile.is/heim/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |