Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:34 0 0°C
Laxárdalsh. 14:34 0 0°C
Vatnsskarð 14:34 0 0°C
Þverárfjall 14:34 0 0°C
Kjalarnes 14:34 0 0°C
Hafnarfjall 14:34 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 02. desember 2021 - kl. 09:15
300 m.kr. í jólagjafir!
Eftir Unni Valborgu Hilmarsdóttur

Það styttist til jóla. Áður en við vitum af verðum við farin að gera jólaísinn og pakka inn jólagjöfum. Kannski eru margir hverjir þegar byrjaðir.

Það er hins vegar afar misjafnt hvenær fólk hefst handa við jólagjafainnkaupin. Einhverjir byrja snemma árs en svo eru aðrir sem bíða þar til á Þorláksmessu með að kaupa gjafirnar og allt þar á milli.

Það er líka afar misjafnt hversu miklu við eyðum í jólagjafir. 

Rannsóknarsetur verslunarinnar gaf nýverið út spá um jólaverslun í ár. Skv. henni eru horfur í jólaverslun góðar. Kemur þar fram að hver Íslendingur verji að jafnaði tæplega 60 þúsundum króna til jólagjafakaupa.

Það er athyglisvert að leika sér með þessa upphæð í samhengi við átak SSNV sem miðar að því að hvetja íbúa á Norðurlandi vestra til að versla heima fyrir jólin. Skv. vef Hagstofunnar voru 1. janúar 2021 skráðir 7398 íbúar á Norðurlandi vestra. Ekki er hægt að ganga út frá því að þeir allir versli gjafir fyrir 60 þúsund fyrir jólin svo við drögum frá þá sem eru yngri en 25 ára. Eftir standa 5024 íbúar.

Ef við miðum við að þessir 5024 eyði 60 þúsund kalli í jólagjafir má gera ráð fyrir að samtals versli íbúar Norðurlands vestra jólagjafir fyrir ríflega 300.000.000 kr. 

Það eru þrjúhundruð milljónir!

Þetta er ansi há upphæð og líklega nokkuð hærri en margir gera sér í hugarlund. Vert er að taka fram að spá Rannsóknaseturs verslunar og þjónustu miðar við eyðslu á hvert mannsbarn í landinu en hér er miðað við einstaklinga yfir 25 ára aldri í landshlutanum. Hér er því varlega áætlað!

Verslun á Norðurlandi vestra myndi sannarlega muna um þessi viðskipti, ættu þau sér öll stað á svæðinu. Því miður er því ekki að heilsa. Fjölmargir bregða sér í verslunarferðir til Reykjavíkur, einhverjir jafnvel erlendis, og ljúka jólagjafainnkaupum þar. Enn aðrir panta á netinu. Einhverjir eru meðvitaðir um mikilvægi þess að versla heima og hafa þá stefnu að versla eingöngu í heimabyggð. Enn aðrir gera örlítið af þessu öllu. 

Mögulega má spara einhverjar krónur með því að versla annars staðar en í heimabyggð. Sá sparnaður verður hins vegar þegar til langs tíma er litið mögulega dýru verði keyptur. Því það er jú þannig að til að njóta þjónustu, verðum við að nýta hana. Til að hafa aðgang að verslunum sem selja gjafavöru, verðum við að versla gjafavöru á svæðinu. Ef við verslum öll utan svæðis er hætt við að bæði verði augljós leki á miklu fjármagni út af svæðinu sem og  þegar við lítum til lengri tíma muni verslunum fækka verulega. 

Til að njóta þjónustu verðum við að nýta hana.

Styðjum við vöxt og viðgang Norðurlands vestra, sérstaklega yfir hátíðarnar þegar óvenju mikið er verslað, og verslum í heimabyggð. Hér er allt til alls.

Verum snjöll.

Verslum heima!

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið