Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:28 0 0°C
Laxárdalsh. 17:28 0 0°C
Vatnsskarð 17:28 0 0°C
Þverárfjall 17:28 0 0°C
Kjalarnes 17:28 0 0°C
Hafnarfjall 17:28 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Skúlagarður. Mynd: skulagardur.com
Skúlagarður. Mynd: skulagardur.com
Pistlar | 16. janúar 2022 - kl. 18:45
Stökuspjall: Mótið í Kelduhverfi 1992
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Emma Hansen heiti eg
í Húnaþingi alin
þar sem Giljá glæsileg
gljúfra prýðir salinn.

2.
Ungabarn ég óðar vék
yfir í fjörðinn Skaga
þar sem æviönnin frek
átti flesta daga. EH

Til fagnaðar í Skúlagarði laugardaginn 15. ág. streymdu Þingeyingar, hagyrðingar, skáld og skemmtidrótt. Fjórða hagyrðingamótið var að hefjast og árgangurinn Jóa í Stapa, heimamannsins Sigvalda Jónsson, sem undirbúningur mótsins hvíldi á og svo Hallgríms á Þorbrandsstöðum. Vinátta þessara félaga átti rætur á Hvanneyri, búfræðingar þaðan fyrir rúmum fjörutíu árum en þeir blómstruðu á þessum mótum, hittust  til að gleðjast, rifja upp gamlar stundir og nýjar stökur.

Jói var snillingurinn, hinir hollvinir og skákuðu að vísu og vísu ef svo bar undir.

Jóafrændi kom einnig í hópinn á þessu kvöldi og átti eftir að leggja mikið af mörkum til þessa fyrirtækis. Guðmundur Ingi prentari og kennari á Dalvík, systursonur Jóa kom á mótið í Skúlagarði og prentaði síðan vísur og gestalista frá þessum mótum.

Iðunnarrútan hafði fetað malarvegi upp í Ásbyrgi fyrr um daginn og þar sátu Emma Hansen af skáldaættum úr Norðurlandi og Magdalena Thoroddsen af vestfirskum skáldaættum og kynnti sig einnig í fögru rími:

Magdalenu mæra nafni
móðir forðum unni
Biblíu þar ber úr safni
beint úr ritningunni.

2.
Frænda minna furðugen
fylgja mér við leik og starf
en trausta nafnið Thoroddsen
tók ég beint í föðurarf. MTh

Annar Vestfirðingur birtist þar við Öxarfjörðinn þennan ljúfa ágústdag 1992:

Guðmundur Ingi gengur enn
glaður hér að borði.
Kasta vill á kvæðamenn
kveðnu vísuorði. GIK

Andrés Valberg kom aðvífandi og kvað um Inga:

Í Skúlagarði skáldin þinga
af skáldum hef ég ágæt kynni.
Gott er að hitta Guðmund Inga
hann gleður oss með návist sinni. AV

Og fékk til baka:

Andrés Valberg hrósið hlýtur
hvergi þó um of.
Upp úr honum alltaf flýtur
óstöðvandi lof. GIK

Saman settust á pall 9 hagyrðingar úr Kelduhverfi og svöruðu spurningum, s.s. spurningunni hvort hagyrðingar væru gáfaðri en annað fólk. Því svaraði Þorfinnur Jónsson frá Ingveldarstöðum öruggum rómi:

Ef við skoðum andans hlið
alveg hiklaust sönnum
hagmælskan er viðbót við
vit hjá gáfumönnum.

Sigvaldi svaraði af meira lítillæti:

Á þessu sviði er þjóðin slyng
og þykist rík
en heimskan veit ég hagyrðing
á Húsavík.

María Pálsdóttir í Vogum:

Þeir sem ausa úr orðabelg
oftast lopann teygja
vísnasmiðir vaða elg
en vitringarnir þegja

Ósk Þorkelsdóttir Húsavík:

Íslendingar yrkja vel
um það fer ég nærri
og engan vafa á því tel
okkar heili er stærri.

Fjórðu spurningunni – hvað er það besta í heimi? – svaraði Þorfinnur Jónsson með íhygli í svipnum:

Góða heilsu, glaða lund
gull til dagsins þarfa
eiga hlýtt og hugljúft sprund
og hafa nóg að starfa. ÞJ

Síðustu vísuna sækjum við til Jóa í Stapa, hann hafði farið norður á Skagaströnd með vini sínum þremur árum fyrr, eða ´89, aðra ferð á Hveravelli ´90, síðan í Sælingsdal ´91 og nú sátu þeir félagarnir hundrað manna gleði- og orðlistafund norður við Öxarfjörð – og stefndu á Hallormsstað næsta haust:

Stakan slynga stuðlum sett
sterkt fram send að vonum.
Þingeyingar ljúft og létt
leika að hendingonum. JG

Meira efni:
Minningagreinar um Sigvalda Jónsson frá Garði, aðalmann í landsnefnd 1992: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1492043/
Öxlin gnæfir yfir Þingið – fleiri pistlakrækjur: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=12707

Ingi Heiðmar Jónsson 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið