Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:31 0 0°C
Laxárdalsh. 11:31 0 0°C
Vatnsskarð 11:31 0 0°C
Þverárfjall 11:31 0 0°C
Kjalarnes 11:31 0 0°C
Hafnarfjall 11:31 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 13. maí 2022 - kl. 18:09
Það sem skiptir máli
Eftir Zophonías Ara Lárusson sem skipar 3.sæti lista sjálfstæðismanna og óháðra.

Ég ætla að fara hér yfir nokkur mál sem ég legg áherslu á og finnst virkilega skipta máli svo sveitarfélagið geti haldið áfram að vaxa og verði samkeppnishæft við önnur sveitarfélög um búsetu fólks og framþróun.

Það er undirstaða velsældar að sveitarfélagið hafi fjölbreytt og blómlegt atvinnulíf með öflugum fyrirtækjum og stofnunum. Við höfum hér öflug fyrirtæki sem hafa skapað hér mörg atvinnutækifæri og er atvinnuleysi hér í algjöru lágmarki. En betur má ef duga skal og þurfum við að vera algjörlega á tánum við að laða hér að fyrirtæki og stofnanir og skapa fyrirtækjunum hér þannig umhverfi að þau geti vaxið hér og dafnað um ókomin ár. Tækifærin eru víða eins og til dæmis í ferðaþjónustu, textíl, landbúnaði, matvælaframleiðslu svo áfram mætti telja. Við ætlum ekki að sofa á þessari vakt.

Skólamál eru hverju samfélagi mjög mikilvæg og er eitt það fyrsta sem horft er til þegar taka á ákvörðun um að setjast að með fjölskyldu sína á nýjum stað. Miklar áskoranir eru framundan í nýju sveitarfélagi við að sameina leik- og grunnskólana. Við leggjum mikla áherslu á að vandað verði mjög til allra verka við sameininguna með sérstaka áherslu á að nemendur og starfsfólk megi vel við una þannig skólarnir okkar verði áfram í fremstu röð.

Með sameiningu á skólunum á einn stað er gert ráð fyrir töluverðri rekstrarhagræðingu og ætlum við að láta barnafólk í sveitarfélaginu njóta góðs af því með lækkun á leikskólagjöldum. Þetta yrði gríðarleg kjarabót fyrir margar fjölskyldur og til þess að þetta verði að veruleika þurfa Sjálfstæðismenn og óháðir þinn stuðning á kjördag. Mín skoðun er sú að þetta sé bara byrjunin og að þróunin verði á þann veg að leikskóli verði gjaldfrír innan nokkurra ára.

Í vaxandi sveitarfélagi þarf að huga að framtíðar uppbyggingu og móta stefnu í skipulagsmálum til framtíðar. Það þurfa að vera til byggingalóðir fyrir íbúðarhúsnæði ásamt lóðum fyrir iðnaðarhúsnæði og atvinnuuppbyggingu ýmiskonar á Blönduósi, Húnavöllum og víðar. Í því samhengi má geta þess að tillaga að deiliskipulagi fyrir allt að 50 íbúðir í nýju íbúðarhverfi á Blönduósi, Fjallabraut og Lækjarbraut var staðfest af sveitarstjórn í vikunni. Hluti af innviðauppbyggingu sveitarfélagsins eru skipulagsmál og nauðsynlegt að huga vel að þeim. Munu þeir fjármunir sem varið er í það án efa skila sér margfalt til baka á komandi árum.

Ágætu íbúar.         

Á laugardaginn göngum við til kosninga í sameinuðu sveitarfélagi Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar. Sjálfstæðismenn og óháðir hafa innan sinna raða framsýnt, duglegt og reynslumikið fólk í bland við nýja og kröftuga einstaklinga. Þau eru meira en tilbúin að leggja sig öll fram við áframhaldandi uppbyggingu svæðisins svo að það megi vaxa og dafna sem best í framtíðinni.                

Ég hvet ykkur kjósendur góðir til að setja X við D á kjördag.

Með kveðju,

Zophonías Ari Lárusson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið