Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:46 0 0°C
Laxárdalsh. 12:46 0 0°C
Vatnsskarð 12:46 0 0°C
Þverárfjall 12:46 0 0°C
Kjalarnes 12:46 0 0°C
Hafnarfjall 12:46 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 16. júní 2022 - kl. 09:41
Umhverfisvæn orkuöflun og orkunýting til húshitunar og orkuskiptin
Eftir Eyjólf Ármannsson

Fyrir Alþingi hefur legið frumvarp til breytingar á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar. Í frumvarpinu er lagt til að styrkir verði í formi eingreiðslu til íbúðareigenda sem fjárfesta í tækjabúnaði er leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og bættrar orkunýtingar við húshitun. Styrkurinn tekur mið af kostnaði við kaup á tækjabúnaði og uppsetningu utan dyra og er þar sérstaklega horft til varmadælna.

Styrkurinn skal samkvæmt frumvarpinu jafngilda helmingi kostnaðar við kaup á tækjabúnaði, sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun, að hámarki 1 millj. kr. Styrkirnir eru samningsbundnir til 15 ára á viðkomandi húseign. Atvinnuveganefnd lagði til hækkun á hámarki í 1,3 milljónir kr. Samkvæmt athugun Orkustofnunar fer kostnaður slíks tækjabúnaður almennt ekki yfir 2 milljónir króna. Þetta er vanáætlað, kostnaðurinn er nær 2,6 – 3 milljónir króna.

Hér er mikið hagsmunamál fyrir íbúa landsbyggðarinnar sem nýta raforku til húshitunar á köldum svæðum landsins, þar sem nýting jarðhita er ekki möguleg. Málið er liður í orkuskiptum og það bæði eykur tekjur ríkissjóðs og sparar ríkinu töluverð útgjöld til lengri tíma.

Með varmadælu og öðrum orkusparandi búnaði er gert ráð fyrir að hægt verði að losa um allt að 110 GWst í aðra notkun. Það samsvarar raforkunotkun 50 þúsund rafbíla. Þessar 110 GWst sem fara í aðra notkun munu við það færast úr 11% virðisaukaskatti fyrir rafhitun í 24% virðisaukaskatt fyrir aðra raforkunotkun. Það mun auka tekjur ríkissjóðs verulega.

Aukin notkun á tækjabúnaði til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun mun einnig lækka útgjaldaþörf ríkisins til niðurgreiðslna vegna húshitunar til lengri tíma. Ríkið sparar í formi lægri útgjalda.

Íbúðareigendur, sem fjárfesta í umhverfisvænni orkuöflun og bættri orkunýtingu, eiga að njóta góðs af auknum tekjum og sparnaði ríkisins af fjárfestingum sínum.

Í ljósi þess hve mikilvægt er að stuðla að orkuskiptum og í ljósi þess að umræddir styrkir munu til lengri tíma litið lækka útgjald ríkisin,s ætti að hækka styrkina í úr helmingi kostnaðar í þrjá fjórðu (75%) hluta kostnaðar og að hámark styrkja verði 1,5 millj. kr.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að hækkun útgjalda verði fjármögnuð með auknu 50 milljón króna árlegu útgjaldasvigrúmi á málefnasviði 15 Orkumál frá og með 2023 og það sem eftir stendur með ráðstöfun fjárheimilda af málefnasviði 17 Umhverfismál sem ætlaðar eru til orkuskipta. Lögfesting frumvarpsins mun því ekki hafa nein fjárhagsáhrif á ríkissjóð. Hækkun styrks úr helmingi (50%) í þrjá fjórðu (75%) kostnaðar íbúðareiganda við tækjakaup leiðir líka til að hlutfallslegrar hækkunar á ofangreindu árlegu útgjaldasvigrúmi um 25 milljónir króna.

Í frumvarpinu kemur fram að losa þarf raforku til nauðsynlegra orkuskipta á næstu árum og að með aukinni notkun varmadælna við húshitun í stað rafhitunar sparast mikil raforka sem þá er hægt að nýta á annan hátt, t.d. til orkuskipta í samgöngum.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er mikið talað um orkuskipti. Þar kemur fram að leggja eigi áherslu á markvissar og metnaðarfullar aðgerðir til að hraða orkuskiptum á öllum sviðum. Markmiðið er að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Orkuskipti á að verða ríkur þáttur í framlagi Íslands til að ná árangri í baráttunni við loftslagsvána samhliða því að styrkja efnahagslega stöðu landsins og verða í forystu í orkuskiptum á alþjóðavísu. Styðja á  orkuskipti á landsvísu með áherslu á að horfa til orkutengdra verkefna og grænnar orkuframleiðslu. Byggðaáætlun á að styðja við græn umskipti um allt land.

Þetta eru háleit markmið um orkuskipti í landinu þar sem hraða á orkuskiptum á öllum sviðum og ná fullum orkuskiptum fyrir árið 2040 og verða þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Ísland á að vera í forystu í orkuskiptum á alþjóðavísu og kveða á um þau í byggðaáætlun.

Meini ríkisstjórnin eitthvað með yfirlýsingum sínum í stjórnarsáttmálanum um orkuskipti, er ljóst að íbúðareigendur sem fjárfesta tækjabúnaði sem leiðir til umhverfisvænni orkuöflunar og bættrar orkunýtingar eiga að njóta góðs af auknum tekjum og sparnaði ríkisins. Það verður ekki gert með því að íbúðareigendur á landsbyggðinni stofni til mikilla útgjalda við kaup á tækjabúnaði sem gerir þau möguleg. Það eru útgjöld sem nema um 1,3 – 1,5 milljón króna með helmingsstyrk og með 75% styrk 650 – 750 þúsund krónur. Mikilvægt er því að þessi mikilvægi styrkur verði aukinn frekar en kveðið nú er ætlunin. Með því væri settur kraftur í umhverfisvænni orkuöflunar og bætta orkunýtingu á landsbyggðinni.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið