Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:46 0 0°C
Laxárdalsh. 15:46 0 0°C
Vatnsskarð 15:46 0 0°C
Þverárfjall 15:46 0 0°C
Kjalarnes 15:46 0 0°C
Hafnarfjall 15:46 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Þuríður og Gísli
Þuríður og Gísli
Hóladómkirkja
Hóladómkirkja
Pistlar | 22. júní 2022 - kl. 08:59
Vígslubiskup á Hólum
Eftir Gunnar Rögnvaldsson Löngumýri

Hólar í Hjaltadal er okkur Norðlendingum helgur staður að fornu og nýju. Kirkju og skólasagan, náttúran og veðursældin hafa markað umgjörð sem lætur þá ekki ósnortna sem annaðhvort hafa búið þar eða kynnt sér til hlítar hve djúpt rætur menningar og þekkingar liggja á Hólum. Og enn er sáð til þeirrar uppskeru.

Innan fárra daga verður gengið til kosninga um nýjan vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Kosið verður á milli þeirra tveggja presta sem flestar tilnefningar fengu en það eru þeir sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ og sr. Þorgrímur Daníelsson á Grenjaðarstað.

Ég hef þekkt og unnið með séra Gísli mjög lengi. Hefur hann allt það til að bera sem vígslubiskup þarf að búa yfir. Hann er vel menntaður, góður kennimaður og snjall predikari og gjörkunnugur málefnum kirkjunnar, ytri sem innri. Þekking hans á innviðum Hólastiftis er mjög yfirgripsmikil og hann á auðvelt með að kynnast fólki og setja sig inn í málefni, tillögugóður og sanngjarn og það sem er mikilvægast, hjarta hans slær fyrir Hólastað. En hann er ekki einn á ferð. Eiginkona Gísla Þuríður Þorbergsdóttir er einstök sómakona. Gestrisin og glaðvær og hefur sem prestfrú og bóndi í Glaumbæ staðið fyrir stóru og gestkvæmu heimili ásamt því að vera lykilmanneskja í kirkjukórnum og safnaðarstarfi prestakallsins.  Af áratuga kynnum mínum af presthjónunum í Glaumbæ þeim Þuríði og Gísla veit ég að þau munu sitja Hóla með virðingu og væntumþykju að leiðarljósi og bera merki staðarins með sæmd.

Gunnar Rögnvaldsson Löngumýri

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið