Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:39 0 0°C
Laxárdalsh. 14:39 0 0°C
Vatnsskarð 14:39 0 0°C
Þverárfjall 14:39 0 0°C
Kjalarnes 14:39 0 0°C
Hafnarfjall 14:39 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 28. nóvember 2022 - kl. 09:18
Látum ekki ræna okkur voninni
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Til að komast af í okkar harða og miskunnarlausa heimi þurfum við á von að halda. Því ekkert gerist án vonar. Hún er drifkraftur lífsins. Án vonar getum við bara pakkað saman og gleymt þessu.

Ekkert er öruggt í þessum heimi

Þegar klukkan er eitt megum við eiga von á að eftir klukkustund verði hún tvö. Þannig vonumst við til að tíminn haldi áfram og við séum ekki stöðugt að upplifa okkar síðasta.
Þegar við förum að heiman vonumst við til að skila okkur á áfangastað og komast síðan að lokum aftur heim, ekki satt? Þegar við förum að sofa á kvöldin vonumst við til að vakna að nýju morguninn eftir. Þegar síminn hringir og við svörum megum við eiga von á að heyra rödd í símanum. Þegar við leggjum fé í banka vonumst við til að getað ávaxtað það og tekið það síðan aftur út. Þegar við kaupum okkur hús vonum við að það haldi vindi og vatni. Þegar við kaupum okkur bíl vonumst við til að hann virki og komi okkur á milli staða. Þegar við kaupum heimilistæki vonumst við til að þau virki og hreinlega ætlumst til þess, þótt vissulega sé ekkert öruggt í þeim efnum frekar en nokkru öðru. Þannig getur vonin brugðist okkur. Í lífi okkar togast vonin á við óttann. Vonin vekur bjartsýni, eykur þrek og þor en óttinn stuðlar að kvíða. Þannig gerir vonin okkur jákvæð og upplits djörf, þrátt fyrir allt, en óttinn og kvíðin draga úr okkur og lama og gera okkur neikvæð.

Allir þurfa á von að halda

Allir þurfa á von að halda. Við sem fetum okkur fram veginn í átt til framtíðar þurfum á von að halda. Börnin okkar þurfa á von að halda, nemendur þurfa á von að halda, allt vinnandi fólk þarf á von að halda að ekki sé talað um atvinnulausa.  Ástfangið fólk þarf á von að halda. Hjón og uppalendur þurfa á von að halda. Þeir sem eru haldnir erfiðum sjúkdómum þurfa á von að halda. Syrgjendur þurfa á von að halda og ekki síst þarf deyjandi fólk á von að halda.

Já, líka við sem finnst vonin hafa brugðist okkur, þurfum samt áfram á henni að halda.

Spurning um lífsafstöðu

Vonin er að miklu leyti bundin lífssýn og því spurning um hugarfar og ákvörðunartöku eða lífsafstöðu. Tækifærin til að geta notið vonarinnar eru nefnilega allt í kringum okkur. Stundum komum við bara ekki auga á ljósið fyrr en myrkrið hefur skollið á.

Trúin er fullvissa vonarinnar

Enginn vonar það sem hann veit, sér eða getur þreifað á. Það liggur fyrir. Það eru staðreyndir sem ekki þarf að deila um.
Því finnst mér gott að eiga trú á upprisinn lifandi ósýnilegan frelsara, sem vekur með mér von og eykur mér andlegt þrek til að takast á við aðstæður mínar hverju sinni.
Trúin er nefnilega fullvissa um það sem við vonum, sannfæring um þá hluti sem ekki er hægt að sjá.
Því er svo mikilvægt að halda í vonina, þrátt fyrir öll vonbrigðin og gera hana að meðvituðu og markvissu leiðarljósi í lífinu.

Trú, von og kærleikur

Gleymum því aldrei að þegar allt kemur til alls er það er í rauninni aðeins þrennt sem virkar sem drifkraftur í þessum heimi. Það er trúin, vonin og kærleikurinn. Og þeirra er reyndar kærleikurinn mestur.
Þessi þrjú megin stef jákvæðrar nálgunar á lífið þurfa að haldast í hendur, vinna saman og styðja hvert annað.
Keppum því meðvitað og markvisst eftir því að vera kærleiksríkir vonarneistar, "vonistar," í umhverfi okkar sem láta stjórnast af ávöxtum kærleikans, virðingu og samstöðu, þótt ólík séum. Umhyggju og uppörvun, jákvæðni og auðmýkt, gjafmildi og síðast en ekki síst þakklæti.
Og hverju ætli við höfum svo að tapa með því að fela okkur kærleiksríkum Guði, höfundi og fullkomnara lífsins, í von um að hann muni vel fyrir sjá?

Með kærleiks- og friðarkveðju!
- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið