Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:12 0 0°C
Laxárdalsh. 17:12 0 0°C
Vatnsskarð 17:12 0 0°C
Þverárfjall 17:12 0 0°C
Kjalarnes 17:12 0 0°C
Hafnarfjall 17:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 21. apríl 2023 - kl. 06:12
Leshraðamælingar og Háskóli Íslands
Eftir Eyjólf Ármannsson

Freyja Birgisdóttir frá Háskóla Íslands, Kate Nation og Margaret Snowling frá Oxford-háskóla rituðu nýlega grein um lesfimipróf sem eins konar svar við grein minni Brjótum lestrarkóðann í lestrarkennslu.

Í grein minni minnist ég ekki einu orði á lesfimi eða lesfimipróf, sem Freyja, Kate og Margret eyða heilli grein í að fjalla um og á að vera svar við grein minni, þar sem ég minnist á leshraðamælingar.

Greinarhöfundar gera ekki greinarmun á leshraðamælingum, sem ég fjalla um í grein minni, og lesfimiprófum sem grein þeirra fjallar um. Hvernig er unnt að svara gagnrýni á leshraðmælingar með skrifum um lesfimipróf? Með hreinum ólíkindum að fræðimenn skuli ekkert gera til að skýra muninn á þessum tveimur hugtökum. Annaðhvort þekkja prófessorarnir ekki muninn á leshraðamælingum og lesfimiprófum eða greinin er dæmi um skammarlega útúrsnúninga. Eru slík vinnubrögð samboðin Háskóla Íslands?

Í grein þeirra er ekki minnst einu orði á aðalatriði greinar minnar: Á byrjendalæsi og ömurlega lestrarkunnáttu á Íslandi eða á bókstafa-hljóðaðferðina. Barn lærir að lesa með því að brjóta lestrarkóðann, þekkja þau tákn sem bókstafirnir eru og þau hljóð sem þeir standa fyrir. Það er gert með bókstafa-hljóðaðferðinni og er fyrsta skref í að læra að lesa. Freyja, Kate og Margaret eyða ekki einu orði í grein sinni á þessi aðalatriði greinar minnar.

Þegar gagnrýnd eru skrif um jafnmikilvægt efni og lestur barna er lágmark að notuð séu sömu hugtök sem hin gagnrýnda grein notar og hugtakanotkun sett í samhengi. Dósent við Háskóla Íslands gerir ekki þær kröfur til skrifa sinna. Með þessari breyttu hugtakanotkun er því slegið ryki í augu lesenda.

Fyrirmæli Menntamálastofnunar

Fyrirmæli Menntamálastofnunar um lestrarpróf í grunnskólum sem kennarar fá eru skýr og eftirfarandi:

„Fyrirmæli til nemenda:

Hér sérðu textablað, þú átt að lesa þennan texta eins hratt og vel og þú getur í tvær mínútur.  Ég mun taka tímann á meðan þú lest. Skilur þú hvað þú átt að gera? Ertu tilbúin/n?“

Hér er tekinn tími á nemanda í leshraðaprófi í tvær mínútur.

Leshraði (Reading rate eða reading speed) er fjöldi orða sem einstaklingur getur lesið rétt á mínútu. Lesfimi (Reading Fluency) felur í sér nákvæmni, orðræðu og skilning ásamt hraða. Lesfimi er skilgreind sem „nákvæmur lestur á „minimal rate“ með viðeigandi frumeinkennum og djúpum skilningi“ (Hudson, Mercer og Lane, 2000). Einnig er talað um normal leshraða. Lágmarksleshraði er ekki hraðlestur, það að lesa eins hratt og vel og þú getur.

Á Íslandi eru teknar leshraðamælingar, þótt öðru sé haldið fram. Sýnir það stöðu málaflokksins á Íslandi. Við látum 46.000 börn lesa eins hratt þau og geta þrisvar á ári (1.-10. bekk). Mörg börn upplifa kvíða og vanmátt vegna prófanna og þau geta valdið skertri sjálfsmynd tengdri lestri. Leshraðamælingar eru alræmdar í samfélaginu og skal enga undra.

Hermundur Sigmundsson, prófessor við Tækniháskólann í Þrándheimi, hefur bent á þetta. Í 21 ár hefur hann fjallað um efnið og bent á lausnir byggðar á alþjóðlega viðurkenndum vísindum fremstu fræðimanna við lítinn hljómgrunn. Lítil von er að verkefnið Kveikjum neistann í Eyjum fari víða hérlendis.

Íslandsheimsókn Kate Nation og Margret Snowling

Í heimsókn sinni í mars í fyrra voru Kate Nation og Margret Snowling ítrekað spurðar álits um leshraðapróf (Measurement of Reading Speed). Á Íslandi færu tugir þúsunda nemenda í slík próf árlega, sbr. fyrirmælin. Þær voru ekki spurðar um lesfimipróf (Test of Reading Fluency) sem ofangreind grein er um. Ef þær hafa skipt um skoðun ætti það að koma fram.

Enskir prófessorar hafa ekki íslensku sem móðurmál og þekkja ekki þennan afkima íslensks samfélags. Því má efast um þekkingu þeirra á því hörmungarástandi sem verið hefur áratugum saman á Íslandi og ég fjalla um í grein minni.

Háskóli Íslands er vandamálið – ekki Menntamálastofnun!

Alþjóðlegar kannanir hafa árum saman sýnt hörmungarástand í lestrarkunnáttu á Íslandi. Léleg lestrarkunnátta er samfélaginu dýr og hefur verið viðfangsefni stjórnmála í áratugi án árangurs enda hefur aldrei verið tekið á rót vandans.

Árið 2004 komst starfshópur menntamálaráðuneytisins að því að 35.000 Íslendingar á fullorðinsaldri ættu við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða eða væru með litla lestrarfærni.

Barna- og menntamálaráðherra hyggst leggja niður Menntamálastofnun og koma á fót nýrri stofnun til að tryggja gæði menntunar. Litlar líkur eru á að þetta skili árangri og ekki þegar kemur að læsi. Nær væri að líta til Háskóla Íslands og ríkjandi viðhorfa þar. Framkoman við íslenska prófessorinn í Þrándheimi er þar sérkapítuli. Skólanum ber að veita þjóðfélaginu þjónustu í krafti þekkingar sinnar, sbr. eldri lög um skólann. Skólinn hefur ekki lagt fram neitt markvert til að taka á lélegri lestrarkunnáttu þjóðarinnar, síður en svo, og skrapar botninn í norrænum gæðakönnunum.

Þetta er ástæðan fyrir því að ráðherra eftir ráðherra hefur ekki getað tekið á þessu mikilvæga máli. Læsi er grunnhæfni allra í lífinu og Alþingi og stjórnvöld verða að taka á þessum mikla vanda, þar liggur á endanum ábyrgðin.

_______________________________

Höfundur er alþingismaður fyrir Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi og 1. varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar.  eyjolfur@armannsson@althingi.is

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið