Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:45 0 0°C
Laxárdalsh. 14:45 0 0°C
Vatnsskarð 14:45 0 0°C
Þverárfjall 14:45 0 0°C
Kjalarnes 14:45 0 0°C
Hafnarfjall 14:45 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 16. maí 2023 - kl. 10:41
Stefnulaus ríkisfjármál á verðbólgutímum
Eftir Eyjólf Ármannsson

Við lestur fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar vekur athygli hve ómarkvisst og lítið ríkisstjórnin berst gegn verðbólgunni. Þann slag eiga aðrir að taka.

Seðlabankastjóri sagði við síðustu stýrivaxtahækkun: „Við því þurfum við að bregðast. Öll hjálp sem við fáum frá fjárlögum ríkisins er vel þegin en við erum ekki að bíða eftir því, með neinum hætti.“ Hér er beðið um hjálp frá ríkisstjórninni og stefnu í ríkisfjármálunum í baráttunni gegn verðbólgunni.

Fjármálaráðherra skilar auðu varðandi aðgerðir gegn verðbólgu. Hann hefur lagt fram á Alþingi tillögu að fjármálaáætlun sem gerir lítið til að sporna gegn verðbólgu, boðar hnignun velferðarkerfisins og hunsar vaxandi vanda okkar fátækustu samfélagshópa, eldri borgara og öryrkja.

Að leggjast á sveif með Seðlabankanum gegn verðbólgunni

Í fjármálaáætlun fjallar fjármálaráðherra um baráttuna sem sameiginlegt verkefni. Þar segir: „Til skemmri tíma er fjármálaáætlun því ætlað að leggjast á sveif með Seðlabankanum við að ná verðbólgu sem fyrst aftur að markmiði.“

Hvernig ætlar ríkisstjórnin að leggjast á sveif með Seðlabankanum í baráttunni gegn verðbólgunni?

Hækka á tekjuskatt lögaðila um eitt prósent, einungis á árinu 2024. Ekki á að hækka bankaskattinn, þrátt fyrir tugmilljarða hagnað bankanna í samkeppnislausu rekstrarumhverfi. (Ríkið, stærsti bankaeigandinn, er þar stefnulaust.) Hækka á veiðigjaldið á seinni árum áætlunarinnar, enginn veit hvenær eða hve mikið. Lækka á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna endurbóta á íbúðarhúsnæði úr 60% í 35%. Aðhaldskrafa er hækkuð úr einu í tvö prósent, sem er varla aðgerð sem slær á verðbólguna. Leggja á 0,5% aðhaldskröfu á skóla, sem er varhugavert í ljósi þess hve höllum fæti menntakerfið stendur á alþjóðavísu.

Allar aðrar aðgerðir eru þegar boðaðar aðgerðir sem nú eru kynntar sem úrræði gegn verðbólgunni. Það eru hækkun fiskeldisgjalds; samdráttur í stuðningi við rafbílavæðingu og fækkun fermetra Stjórnarráðsins. Þetta eru áform sem hafa legið fyrir frá kosningum og slá varla á verðbólguna. Sameining stofnana er í raun löngu fyrirhuguð og kemur fram í stjórnarsáttmálanum og með stafrænni umbreytingu er ýjað að því að einungis þurfi að endurráða í helming þeirra stöðugilda hjá ríkinu sem losna við eftirlaunaaldur á næstu fimm árum. Er stór hluti ríkisstarfsmanna í raun óþarfur?

Augljóst er að þessar aðgerðir gera ekkert í baráttunni gegn verðbólgunni enda ekki til sá dómbæri aðili sem telur þær skipta einhverju máli. ASÍ, SA og fleiri hafa gagnrýnt aðgerðaleysið sem felst í fjármálaáætlun og skal engan undra.

Félagslegar hörmungar handan við hornið

Við verðum að ná verðbólgunni niður strax á þessu ári ef við ætlum að ná að vernda fjölskyldur í landinu. Að öðrum kosti munu lífskjör stórlega rýrna hjá stórum hópum í samfélaginu, fátækt mun aukast og hætta er á að fjölskyldur missi heimili sín með þeim félagslegu hörmungum sem því fylgja. Ríkisstjórn, sem gerir ekkert til að berjast gegn verðbólgu, ber að fara frá.

Flokkur fólksins hefur ítrekað vakið athygli á mikilvægi aðgerða gegn verðbólgu en ríkisstjórnin þráast við og ætlar að sitja aðgerðalaus andspænis verðbólgunni.

Flokkur fólksins hefur lagt til fjölda aðgerða sem myndu vinna gegn verðbólgunni en því miður hafa ríkisstjórnarflokkarnir lítinn áhuga á hugmyndum annarra.

Við höfum lagt til frystingu á höfuðstól verðtryggðra íbúðalána, hækkun bankaskatts, hækkun veiðigjalda, húsnæðisliðinn út úr vísitölunni, leigubremsu, frystingu krónutöluskatta, átak í uppbyggingu húsnæðis og fleiri atriði má nefna.

Stefnuleysi stjórnvalda er ógn við almenning

Ríkisfjármálunum er ekki með neinum markvissum hætti beitt gegn verðbólgunni. Þar er ríkisstjórnin stefnulaus líkt og í svo mörgum málaflokkum, sem vekur spurningar um hvað hún ætli sér, annað en að sitja við völd valdanna vegna.

Gríðarlegar vaxtahækkanir Seðlabankans bitna verst á skuldsettum heimilum, fólki sem er að greiða af húsnæðislánum sínum. Þar er byrðunum misskipt. Eignaminna fólk, millitekjuhópar og þeir tekjulægstu, taka á sig byrðar verðbólgunnar. Það er kostnaðurinn sem almenningur þarf að bera af stefnulausri ríkisstjórn á verðbólgutímum.

Eyjólfur Ármannsson

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og 2. varaformaður fjárlaganefndar. eyjolfur.armannsson@althingi.is 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið