Laugardagurinn
31. júlí 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
Júlí 2010
SMÞMFFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands
Blönduós 00:00 V 1  9°C
Hraun á Ska 01:00 NV 3  7°C
Reykir í Hr 01:00 NNA 3  9°C
Reykjavíkur 01:00 SSV 3  13°C
Akureyri - 01:00 NV 3  10°C
Egilsstaðaf 01:00 S 3  11°C
Haugur 01:00 NA 1  9°C
Skagatá 01:00 NV 3  7°C
Holtavörðuh 01:00 NNA 3  7°C
Þverárfjall 01:00 SV 3  7°C
Laxárdalshe 01:00 ANA 2  8°C
Brúsastaðir 01:00 NNV 1  9°C
Vegagerðin
Holtav.h. 01:30 NNA 2  8 °C
Laxárdalsh 01:30 ANA 3  8 °C
Vatnsskarð 01:30 V 2  8 °C
Þverárfjall 01:30 SV 3  7 °C
Kjalarnes 01:30 SSA 1  13 °C
Hafnarfjall 01:30 NNA 1  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
02. júní 2010
Júnínöldur
Þó júnímánuður sé byrjaður andar enn köldu inn Húnaflóann og hitatölurnar hafa ekki oft farið í tveggja stafa tölu í vor. Þetta lagast þó á endanum eins og alltaf og sumarið kemur líka til okkar. Nú ætlar Nöldri að nöldra sem aldrei fyrr og fara svo í sumarfrí, vera þá bjartsýnn og njóta lífsins í sól og blíðu.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
07. júlí 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
18. júní 2010
Frá undirskriftarhópi gegn niðurskurði á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
11. júní 2010

tilk_web.gif


Pistlar | 17. september 2007 - kl. 20:48
Húnvetnsk fræði
Eftir Einar Kolbeinsson frá Bólstaðarhlíð

Ég velti stundum fyrir mér hví Ginnungagap skilur að kenningar viðurkenndra fræðigreina og hegðunarmynstur okkar Húnvetninga á opinberum vettvangi. Þannig fjallar hagfræðin um stærðarhagkvæmi og víðast í þjóðfélaginu á sér stað viðblasandi þróun með tilliti til hennar.

 

Á sama tíma byggjum við leikskóla sem í fyrirsjáanlegri framtíð fær vart fleiri viðskiptavini en svo að þá megi telja á fingrum annarrar handar. Við rekum líka grunnskóla þar sem nemendum fækkar mjög ört og augljóst að enn meiri fækkun verður á næstkomandi árum. Vitað er að fjárhagslegur ávinningur af því að breyta því háttalagi væri að lágmarki 60 milljónir króna á ári og engin rökræn ástæða til að ætla annað en fagleg starfsemi batnaði í kaupbæti.

 

Hvoru tveggja væri e.t.v. skiljanlegt ef ekki væri í önnur hús að vernda, en því fer fjarri í okkar tilfelli. Ef einhver velkist í vafa um það hvar kjarni héraðsins er, gæti viðkomandi e.t.v. talað við skipulagsfræðing. Við Húnvetningar rekum líka fjölmörg byggðasamlög og héraðsnefnd á sama tíma og stjórnunarfræði leggja áherslu á skýrt umboð stjórnenda ásamt skilvirku skipulagi stjórnunarheilda. Byggðasamlög eru álíka fjarri þessu tvennu og Honolúlú er Húnaþingi.

 

Fræði kennd við opinbera stjórnsýslu taka undir með stjórnunarfræðunum hvað þetta varðar. Það er ekki einu sinni svo að sveitarfélögin fjögur í sýslunni sameinist öll um þátttöku í fyrrnefndum samlögum. Sveitarfélag með 534 íbúa telur sig t.d. geta rekið raunhæfar brunavarnir og þurfi því ekki að taka þátt í samstarfi um slíka þjónustu.

 

Þrátt fyrir að þróunarfræðin og reyndar mannkynssagan sýni glögglega fram á að einangrun og aðskilnaður leiðir til hnignunar, en opnun samfélaga til hins gagnstæða, kjósum við að búa til sérstakt sveitarfélag fyrir 463 manneskjur. Þetta gerum við innblásin af bjartsýni þrátt fyrir augljós hættumerki hvað varðar samsetningu mannfjölda frá lýðfræðilegu sjónarhorni.

 

En látum nú ekki svona, þessi fræði eru eins og internetið – bara bóla sem springur fyrr en varir. Heimild: Feykir

Höf. ass
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Spaugið
25. mars 2010
Er sagan svona í hnotskurn?
Guð byrjaði með að skapa asnann og sagði síðan við hann: – Þú ert Asni. Þú átt eftir að þræla hvern einasta dag og verður sagður heimskur.
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið