Miðvikudagurinn
8. september 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands
Blönduós 11:00 NV 2  9°C
Hraun á Ska 11:00 NNV 2  9°C
Reykir í Hr 11:00 N 6  9°C
Reykjavíkur 11:00 ANA 8  15°C
Akureyri - 11:00 A 3  13°C
Egilsstaðaf 11:00 S 1  11°C
Haugur 11:00 NNV 6  8°C
Skagatá 11:00 NNV 2  9°C
Holtavörðuh 11:00 N 6  7°C
Þverárfjall 11:00 A 1  12°C
Laxárdalshe 11:00 ANA 7  7°C
Brúsastaðir 11:00 NNV 2  10°C
Vegagerðin
Holtav.h. 11:40 N 5  7 °C
Laxárdalsh 11:40 ANA 7  8 °C
Vatnsskarð 11:40 ASA 3  11 °C
Þverárfjall 11:40 ANA 3  12 °C
Kjalarnes 11:40 ANA 10  16 °C
Hafnarfjall 11:40 NNA 4  14 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
03. september 2010
Septembernöldur
Sumri hallar hausta fer, segir einhversstaðar og nú er sá tími kominn, haustið er að ganga í garð og sumarið að kveðja. Ekki alveg minn tími, en góður tími samt. Þetta er tími kertaljósa á lognkyrrum, rökkvuðum kvöldum. Tímamót hjá börnunum okkar, sem setjast nú á skólabekk og sum hver í fyrsta skipti.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Pistill tekinn af heimasíðu Hvatar
25. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
12. ágúst 2010
Eftir Vigni Hafþórsson
10. ágúst 2010
Eftir Þórð M. Jónsson og Finnboga Vikar
08. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
07. júlí 2010

tilk_web.gif


Pistlar | 11. júní 2010 - kl. 21:22
Opinber hugleiðing um heilbrigðisráðherra og ráðuneyti hennar
Frá undirskriftarhópi gegn niðurskurði á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi

Þar sem ekki hafa borist nein svör við síðast opinbera bréfi okkar til Álfheiðar heilbrigðisráðherra, þá höfum við ákveðið að gera eina tilraun enn til að ná eyrum hennar.

Það er auðvitað deginum ljósar að við erum ekki hátt skrifuð hjá háttvirtum heilbrigðisráðherra, allavega telur hún algerlega ónauðsynlegt að svara fyrirspurnum okkar, sama hvar við setjum þær fram. En við megum ekki gefast upp því það virðist vera þannig að reynt sé til þrauta, hjá allavega heilbrigðisráðuneytinu, að hunsa fyrirspurnir og standa ekki við gefin loforð um svör, í trausti þess að við gefumst upp og sættum okkur við orðin hlut. En krafa okkar er enn hin sama, að farið verði yfir niðurskurðinn til HSB fyrir árið 2010, sem var í hróplegu ósamræmi við sambærilegar stofnanir og fá skýr svör og útskýringar á þeim forsendum sem ráðuneytið gaf sér þegar niðurskurðarprósenta HSB var ákveðin. Það þarf að vera búið að fara yfir niðurskurð fyrir árið 2010 og skoða til fulls hvort hann var forsvaranlegur, áður en farið verður að vinna við fjárlög næsta árs því ekki er annað að heyra en svipaður niðurskurður sé í vændum á næsta ári, og hvar á þá að skera niður? Það er ekkert eftir og það gleymdist nú að gera ráð fyrir ýmsu við síðustu fjárframlög!

En það er ekki nóg með að við viljum svör við þeim spurningum sem við höfum sett fram, heldur höfum við líka okkar hugmyndir um hvernig mætti ná fram betri hagræðingu á komandi ári og hvernig betur mætti nýta t.d. auð sjúkrarúm ofl. Við lítum svo á að þó við séum ekki að svigna undan gráðum, þá séum við ekki síðri til að koma fram með hugmyndir um hvað betur mætti fara og gætum því haft vissa innsýn í starfsemina hjá HSB. Það hafa án efa margar krónurnar farið í það að borga ráðgjafafyrirtækjum þóknun fyrir það að fara á milli ríkisstofnanna, til þess að leita leiða til að hagræða, bæta lélegan starfsanda og fá hugmyndir frá þeim sem þar vinna. Ósjaldan höfum við verið beðin um að koma með hugmyndir að nýtingu og/eða hagræðingu sem svo virðist engu skila. Til hvers er verið að eyða pening í þetta ef aldrei stóð svo til að nýta það sem við höfðum fram að færa.

Við viljum líka halda áfram að hvetja þingmenn okkar og sveitarstjórnir ásamt verkalýðsfélögum til að láta sig málið varða og leggja þessu máli lið, ekki síst viljum við hvetja starfsmenn heilbrigðisstofnanna annarsstaðar á landinu, þar sem niðurskurður heilbrigðisráðuneytisins setur samfélagið og íbúa þeirra í stór hættu,  til að gera vart við sig og tjá sig um þessi mál. 

Við ætlum að halda áfram að láta í okkur heyra, við ætlum að hvetja fólk til að láta sig málið varða og við ÆTLUM að láta rödd okkar heyrast!

Bóthildur Halldórsdóttir, Einar Óli Fossdal, Margrét Hólmsteinsdóttir og Anna Kr. Davíðsdóttir.

Undirskriftarhópurinn á Blönduósi

Höf. rzg
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Sveitabakarí
Spaugið
07. ágúst 2010
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð?"
Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð? Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð?
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið