Fimmtudagurinn
9. september 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands
Blönduós 15:00 SA 4  14°C
Hraun á Ska 15:00 A 5  12°C
Reykir í Hr 15:00 NNA 4  12°C
Reykjavíkur 15:00 SSA 6  14°C
Akureyri - 15:00 SSA 2  15°C
Egilsstaðaf 15:00 S 3  12°C
Haugur 15:00 A 3  13°C
Skagatá 15:00 A 7  11°C
Holtavörðuh 15:00 NNV 3  10°C
Þverárfjall 15:00 ASA 4  14°C
Laxárdalshe 15:00 ANA 7  11°C
Brúsastaðir 15:00 ASA 7  15°C
Vegagerðin
Holtav.h. 15:20 NNA 1  11 °C
Laxárdalsh 15:20 ANA 7  12 °C
Vatnsskarð 15:20 A 7  13 °C
Þverárfjall 15:20 ASA 3  14 °C
Kjalarnes 15:20 ASA 7  14 °C
Hafnarfjall 15:20 ASA 8  14 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
03. september 2010
Septembernöldur
Sumri hallar hausta fer, segir einhversstaðar og nú er sá tími kominn, haustið er að ganga í garð og sumarið að kveðja. Ekki alveg minn tími, en góður tími samt. Þetta er tími kertaljósa á lognkyrrum, rökkvuðum kvöldum. Tímamót hjá börnunum okkar, sem setjast nú á skólabekk og sum hver í fyrsta skipti.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
08. september 2010
Pistill tekinn af heimasíðu Hvatar
25. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
12. ágúst 2010
Eftir Vigni Hafþórsson
10. ágúst 2010
Eftir Þórð M. Jónsson og Finnboga Vikar
08. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010

tilk_web.gif


Pistlar | 07. júlí 2010 - kl. 12:36
Lækkar lurkakyndingin húshitunarkostnaðinn?
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann

Það liggur fyrir að ekki eru uppi áform um að lækka húshitunar og rafmagnskostnað á hinum svo kölluðu köldu svæðum. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ítrekaði það nú í gær  6. júlí, í Ríkisútvarpinu. Tilefnið var að Samtök sveitarfélaga hafa með réttu vakið athygli á því hversu mjög hefur hallað á ógæfuhliðina upp á síðkastið.

Húshitunarkostnaður fer vaxandi og lætur nú æ meira fyrir sér finna í buddum fólksins sem býr á þeim svæðum þar sem orkukostnaður er hæstur.

Vakin hefur verið athygli á því að raforkuverð til almennings hafi hækkað um fjórðung – 25% - í fyrra. Gætum að til samanburðar að  allt varð vitlaust í umræðunni þegar fram kom að Orkuveita Reykjavíkur þyrfti á einhverjum árum að hækka taxta sína um 37% ef engar hagræðingar eða aðhaldsaðgerðir yrðu hjá fyrirtækinu til að mæta erfiðum skuldum þess.

Orkukostnaður hefur hækkað mest í dreifbýlinu

Sérstaklega er sárt að sjá hversu orkukostnaður hefur aukist í dreifbýlinu. Þar hafa hækkanirnar orðið hlutfallslega meiri en þær hafa þó verið í þéttbýlinu. Þetta er ein ástæða þess að orkukostnaður garðyrkjubænda hefur til dæmis  vaxið svona mikið og valdið miklum kostnaðarauka í þeirri búgrein.  Upplýsingar um þessa verðþróun sérstaklega komu  fram á sínum tíma í svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn minni  á Alþingi og lesa má á þessari slóð: (http://www.althingi.is/altext/137/08/l12155158.sgml)

Í þessu svari kemur til dæmis fram að orkukostnaður í dreifbýli jókst um 38,7% á árunum 2005 – 2009, en í þéttbýli um 15,8%. Ljóst er að síðan þessar tölur birtust hefur ástandið versnað enn.

Spýtur og lurkar redda málunum !

Í umræðunum á þessum tíma vísaði ráðherrann mjög til sérstaks átaks sem gripið var til í tengslum við niðurskurð þorskaflaheimilda til þess að  stuðla að jarðhitaleit. En nú er það ævintýri úti. Í  tillögu að nýrri byggðaáætlun sem sami ráðherra lagði fram og mælti fyrir sl. vor er frekari jarðhitaleit slegin út af borðinu. Sjá slóðina: http://www.althingi.is/altext/138/s/0910.html

Þess í stað er boðið upp á tvennt. Annars vegar að varmadæluvæða heimilin á hinum svo kölluðu köldu svæðum.  Hins vegar eru íbúar hvattir til viðarkyndingar; kynda hús sín með spýtum og lurkum! – Og til þess að taka af öll tvímæli, þá er þetta ekkert grín. Þetta  stendur í tillögu til byggðaáætlunar, á blaðsíðu 15 í aðgerðaráætlun númer 19. Og þessi tillaga er í boði þingmanna stjórnarflokkana sem gáfu þessari snilldarhugmynd sitt græna ljós í þingflokkum sínum.

Einu sinni hefðu menn reiðst svona tillögum...

Eftir stendur þá þetta. Húshitunar og orkukostnaður víða á landsbyggðinni hefur hækkað mikið og er talið að enn eigum við eftir að sjá frekari hækkanir. Stjórnvöld ætla ekkert að aðhafast til þess að lækka kostnaðinn með beinum hætti. Úr sögunni er líka öll frekari jarðhitaleit á þessum svæðum, þannig að útséð er um að hitaveitur muni lækka húshitunarkostnaðinn á þessum svæðum. Hið eina sem við höfum fast í hendi er hvatning ríkisstjórnarinnar til íbúa þessara svæða, t.d á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi um að koma sér upp kamínum og lurkaofnum. Í því felast tækifærin samkvæmt tillögu að byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Einhverjum verður kannski á að hlægja að svona vitleysu. En þetta er ekki fyndið. Einu sinni hefðu menn reiðst svona ósvífni. En merkilegt nokk, þetta bjargræði ríkisstjórnarinnar í húshitunarmálum landsbyggðarinnar hefur litla athygli vakið. Kannski vegna þess að mönnum finnst þetta of ósvífið til að bregðast við því.

Höf. ass
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Sveitabakarí
Spaugið
07. ágúst 2010
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð?"
Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð? Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð?
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið