Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:56 0 0°C
Laxárdalsh. 20:56 0 0°C
Vatnsskarð 20:56 0 0°C
Þverárfjall 20:56 0 0°C
Kjalarnes 20:56 0 0°C
Hafnarfjall 20:56 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 14. maí 2017 - kl. 19:27
Maínöldur - Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar öll þið sem þessar línur lesa. Við erum þegar búin að fá forsmekkinn af sumrinu með 20 stiga hita nokkra daga og það í byrjun maí. Þó við sjáum smá vorhret á glugga vitum við að það hlýnar aftur og sumarið kemur til baka með sól og blíðu.

Það hefur margt ánægjulegt verið að gerast hér í bænum okkar undanfarna daga og vikur. Fyrirtækið Vötnin Angling Service opnaði nýlega verslun sem selur handverk og ýmiskonar vörur fyrir ferðamenn. Þar fást einnig vörur fyrir veiðimenn ásamt því að hægt er að kaupa veiðileyfi í ár og vötn hér á svæðinu. Fyrirtæki þetta er í eigu hjónanna Eddu Brynleifsdóttur og Þorsteins Hafþórssonar, en Þorstein hefur nokkur undanfarin sumur verið leiðsögumaður veiðimanna sem stunda silungsveiði í vötnum og ám í nágrenninu.

Þá opnuðu þau Ingunn María Björnsdóttir og Sighvatur Steindórsson fiskbúð á Blönduósi fyrir nokkrum dögum. Ég hef spurt marga gamla Blönduósinga hvort fiskbúð hafi nokkurn tíma verið rekin hér í bænum fyrr og segja þeir mér svo ekki vera, svo þetta eru mikil tímamót. Í búðinni okkar „Fisk á disk“ er fjölbreytt úrval fisktegunda og ekki á hverjum degi sem hægt hefur verið að kaupa glænýjan fisk á Blönduósi.

Einnig má nefna að framkvæmdum er nú lokið við húsnæði Póstsins við Hnjúkabyggð og var nýlega opnuð þar glæsileg aðstaða eftir gagngerar breytingar. Ekki er annað að sjá en miklar framkvæmdir séu á Hótel Blönduósi, þar er verið að breyta og betrumbæta og það sama á við um gamla Ljón norðursins, þar sem nýir eigendur taka til hendinni og bæta aðstöðuna fyrir gesti sumarsins. Þá er ekki langt síðan matvörubúð okkar Blönduósinga breyttist úr Samkaup-Úrval í Kjörbúðina, viðskiptavinum til hagsbóta með lægra vöruverði og skemmtilegri búð. Það er því ekki hægt að segja að hér gerist aldrei neitt og vert að óska öllu þessu athafnafólki góðs gengis í sínum verkefnum.

Nýjustu fréttir sem lesa má á Húnahorninu ættu líka að gleðja heimamenn og Húnvetninga alla, en það er styrkur til rannsóknarverkefnis í textílfræðum sem Rannís veitir Þekkingarsetrinu í Kvennaskólanum. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir allri þeirri starfsemi sem fram fer í Kvennaskólanum og hversu mikill menningarauki hún er fyrir bæinn. Kannski er Kvennaskólinn og það sem hann býður upp á að verða frægari meðal listafólks úti í heimi sem sækist eftir að dvelja þar,en hérna í túngarðinum. Ég vil benda fólki á að lesa fréttina um þennan samstarfssaming og gleðjast með starfsfólki Textíl- og Þekkingarsetursins yfir þeim fjárveitingum sem lofað er á  næstu árum. 

Ekki veit ég hve mörg ár Nöldri hefur verið fastagestur með pistla sína á Húnahorninu. Gaman er að lesa gamlar greinar frá Nöldra og margt skrýtið sem hefur pirrað hann á liðnum árum. Eitt af því sem nöldrarar á árum áðum nöldruðu yfir var hve lítið væri gróðursett af tjárplöntum í bæjarlandinu. Þeir hafa verið aðeins of fljótir á sér, því litlar trjáplöntur þurfa nokkur ár að potast svo upp úr jörðinni að þær verði sýnilegar úr fjarlægð. Ég hef tekið eftir því í vetur að í bæjarlandi Blönduóss eru víða að vaxa upp myndarlegir trjálundir sem eftir nokkur ár munu prýða bæinn og umhverfi hans svo eftir verður tekið. Það hefur verið sett ótrúlega mikið af trjáplöntum niður í landi Vatnahverfis og þar er að vaxa upp fallegur skógur bæði í hlíðunum fyrir ofan Golfskálann og einnig inn á milli vatnanna. Þarna er að verða til dásamlegt útivistarsvæði Blönduósinga, við vötnin, innan um trjágróðurinn og berin. Þetta ber að þakka fyrir.

Nöldri er heldur betur á jákvæðu nótunum í þessum vorpistli og ekki annað hægt með fuglasönginn fyrir utan gluggann (gargið í bæjarfuglunum okkar gæsunum, þar með talið), bjartar nætur framundan og öll él birtir upp um síðir.

Njótið sumarsins, kveðja frá Nöldra.

Höf. Nöldri
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Glaðheimar
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið