Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:30 0 0°C
Laxárdalsh. 06:30 0 0°C
Vatnsskarð 06:30 0 0°C
Þverárfjall 06:30 0 0°C
Kjalarnes 06:30 0 0°C
Hafnarfjall 06:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 30. desember 2017 - kl. 12:12
Hví hefurðu yfirgefið mig?
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Guð minn, Guð minn, hví hefurðu yfirgefið mig?

Þannig hrópaði frelsarinn okkar, Jesús Kristur, af öllum mætti en lágum rómi á krossinum fyrir um 2000 árum og þannig hrópum við svo ótal mörg ef ekki öll einhvern tíma og sum jafnvel daglega. Guð minn, Guð minn, hví hefurðu yfirgefið mig? Af hverju Guð? Hef ég gert eitthvað af mér? Hef ég gert eitthvað vitlaust?  

Þannig bregðumst við mörg við þegar áföll dynja yfir og við verðum eitthvað svo skelfing umkomulaus og smá, eins og blaktandi strá í vindi. Sumir reiðast, við förum jafnvel í afneitun. Það þyrmir yfir. Þetta bara getur ekki verið að gerast. Við dofnum upp. Hver klukkustund verður sem eilífð. Maður verður eitthvað svo skelfing aumur, smár og berskjaldaður. Vonbrigðin hlaðast niður og virðast algjör.

Þar er Guð
Kæru vinir, Þar er Guð. Það hlustar enginn betur en hann og það skilur okkur enginn betur en hann. Það er gott að eiga hann að. Hann er okkar besti vinur og áheyrnarfulltrúi. Hann er í umkomuleysinu, tómarúminu og þögninni. Hann leiðir okkur ekki aðeins í gegnum dimma dali heldur tekur okkur sér í fang og ber okkur þegar við erum við það að örmagnast, þegar við getum ekki meir.

Engar skyndilausnir í boði
Það segir okkur enginn hvernig við eigum og syrgja eða hvernig okkur ber að bregðast við. Það syrgir hver og einn með sínum hætti og það er enginn formúla til um það hvernig bregðast skuli við. Það eru engar skyndilausnir og engin hraðferð í boði þegar áföll dynja yfir og sorgin er annars vegar.

Það missir enginn eins og þú, það syrgir enginn eins og þú. Það saknar enginn eins og þú. Því að enginn er sem þú.

Guð er kærleikur
Gleymum því ekki að Guð er kærleikur sem vill okkur allt það besta. Hann sendi okkur son sinn sem tekinn var af lifi af því að heimurinn þoldi ekki kærleika Guðs sem hann þolir reyndar ekki enn þann dag í dag.

En hann reis upp frá dauðum. Lifið sigraði dauðann. Og sigurinn er tileinkaður okkur, þér og mér.

Jesús sagði: "Ég lifi og þér munuð lifa. Sá sem trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja." Hver á annars meiri kærleika en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína? Hvað þá svo þeir fái lifað um eilífð?

Höfundur og fullkomnari lífsins finnur til með fólki og vill fá að umfaðma okkur sínum lífsins græðandi kærleika.

Að kenna Guði um hið illa í heiminum er eins og að kenna ljósinu um myrkrið, sólinni um skýin, sumrinu um veturinn eða lífinu um dauðann.

Eilíf samfylgd
Okkur var aldrei lofuð auðveld ævi, jafnvel þótt þú legðir þig fram. Það eina sem öruggt var þegar þú fékkst dagsbirtuna í augun var að fyrr eða síðar myndu augu þín bresta og hjarta þitt hætta að slá. Það eina sem þér var lofað, var eilíf samfylgd af höfundi og fullkomnara lífsins.

Þótt heilsa og mannlegur heiður, vinir og virðing þig svíki, yfirgefi og hafni, þá mun ekkert geta gert líf þitt viðskila við kærleika Guðs, sem okkur býðst að meðtaka í syni hans Jesú Kristi og við munum um síðir fá njóta um eilífð.

Þegar þú hefur vind í fang, þá haltu höfðinu hátt. Hræðstu ekki myrkrið. Það mun birta til. Því að ljós heimsins mun þér lýsa í gegnum dauðans dimman dal. Hann fer á undan í gegnum storm, skafla og regn. Þú munt aldrei ganga einn. Munt aldrei vera einn á ferð. Mundu það.

Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Glaðheimar
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið