Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:04 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Alls átti Skotfélagið Markviss níu keppendur í hagla og kúlugreinum á árinu 2017, aldursdreifing keppenda var með almesta móti og átti félagið fulltrúa í flestum flokkum frá unglinga og upp í öldungaflokk.
Líkt og verið hefur tilnefnir stjórn Markviss skotíþróttafólk úr röðum keppenda sinna til titilsins Íþróttamaður ársins innan USAH.
Að venju voru valdir einstaklingar úr bæði hagla og kúlugreinum,og er árangur keppenda hafður til hliðsjónar við valið.
Að þessu sinni urðu þau Snjólaug M.Jónsdóttir og Jón Brynjar Kristjánsson fyrir valinu en þau náðu bæði frábærum árangri á árinu.
Aðalkeppnisgrein Snjólaugar er Ólympískt Skeet en þar vann hún alla titla sem í boði voru í kvennaflokki,auk þess sem hún jafnaði Íslandsmet kvenna í final. Þá keppti hún einnig á Íslandsmeistaramótinu í Nordisk Trap sem fram fór á Akranesi og vann það,og setti í leiðinni glæsilegt íslandsmet í kvennaflokki.(Skor Snjólaugar á mótinu er aðeins 7 stigum frá gildandi íslandsmeti í karlaflokki). Í nóvember var hún svo valin í 10 manna afrekshóp Skotíþróttasambandsins í haglagreinum, sem æfir undir handleiðslu grikkjans Nikolaos Mavromatis.
Snjólaug keppti á 10 mótum í þremur mismunandi haglagreinum og vann til verðlauna í þeim öllum, jafnframt keppti hún á sínu fyrsta móti í loftskammbyssu,og hafnaði þar í 3 sæti í kvennaflokk á skori sem dugði til að lyfta henni upp í 3 flokk.
Árangur Snjólaugar árið 2017 var eftirfarandi:
Landsmót STÍ Skeet, Akureyri = 2 sæti kvennafl.
Hvítasunnumót Markviss ,Skeet = 1 sæti A-fl.
Landsmót STÍ Skeet, Akranes= 2 sæti kvennafl.
Landsmót STÍ Skeet, Blönduós= 2 sæti kvennafl.
Byrjendamót Sporting, Akureyri = 3 sæti.
NLM-OPEN (Norðurlandsmót) Skeet,Akureyri = 5 sæti /Norðurlandsmeistari kvenna.
Íslandsmót STÍ ,Nordisk Trap, Akranes = Íslandsmeistari kvenna/Íslandsmet/Hæsta skor mótsins.
Íslandsmót STÍ Skeet ,Þorlákshöfn = Íslandsmeistari kvenna/íslandsmeistari í flokkakeppni kvk.
Bikarmót STÍ Skeet, Reykjavík = Bikarmeistari kvenna / jöfnun á íslandsmeti í final.
Afmælismót Skotgrundar Skeet, Grundarfirði = 1 sæti kvk.
Landsmót STÍ Loftskammbyssa, Borgarnes= Þriðja sæti kvennaflokkur og upp um flokk.
Aðalkeppnisgrein Jóns Brynjars undanfarin ár hefur verið BR50, og hafnaði hann í verðlauna sæti á öllum BR50 mótum sem hann tók þátt í á þessu ári. Einnig hefur hann með góðum árangri verið að fikra sig yfir í keppnisgreinar með stærri rifflum, sérstaklega má benda á frábæran árangur hans á Íslandsmeistaramóti STÍ í VFS (Varmint for Score)sem haldið var af Skotfélagi Húsavíkur nú í haust.
Jón Brynjar keppti á 14 mótum og var árangur hans eftirfarandi:
Þrettándamót Markviss, Skeet = 8 sæti.
Páskamót Akureyri, centerfire -VFS.óbreyttir veiðirifflar. 100m færi =11 sæti.
Páskamót Akureyri,centerfire - VFS breyttir veiðirifflar. 100m færi =6 sæti.
Hvítasunnumót Markviss, Skeet = 2 sæti í A-fl.
Vormót SA, Akureyri, 22lr BR50. 50m færi = 3 sæti.
Skaustmót,Egilsstaðir, 22lr BR50. 50m færi =1 sæti.
17. júní mót Skotgrundar,Grundarfjörður, 22lr BR50. 50m færi =2 sæti.
17.júní mót Skotgrundar, Grundarförður,centerfire VS opinn flokkur = úrslit vantar.
Skaustmót,Egilsstaðir, 22lr BR50. 50m færi = 1 sæti.
Sumarmót SA,Akureyri,22lr BR50.50m færi = 1 sæti.
Miðnæturmót, Húsavík,VFS Heavy Varmint,100/200m færi =6/10 sæti.
Höskuldsmót, Markviss, Skeet =1 sæti B-fl.
Grúppumót,Akureyri,Grúppur Heavy Varmint. 100m færi. =3 sæti.
Íslandsmót STÍ,Húsavík, VFS Heavy Varmint. 100m færi. = 3sæti.
Íslandsmót STÍ,Húsavík,VFS Heavy Varmint 200m færi. = 6 sæti, fjórða sæti í samanlögðu.
Pistlar | 18. mars 2024 - kl. 16:05
Anna Hannesdóttir á Brún var flutt til Akureyrar síðla vetrar 1904. Hún var veik af berklum. Þar var Guðmundur bróðir hennar, síðar prófessor, þá héraðslæknir. En sú för reyndist erindisleysa. Jóni á Brún, manni hennar barst bréf snemma á slætti þar sem Guðmundur læknir tjáði honum að Anna biði dauðans. Þar væri um hann einan að ræða um úrlausnir á vandamálum hennar. En þessari fregn fylgdi það og, að Anna óskaði þess að sjá Jón áður en yfir lyki sem ekki gæti oltið á löngum tíma.
|
Fréttir | 18. mars 2024 - kl. 15:45
Húsfriðunarsjóður úthlutaði nýverið styrkjum til 176 verkefna, samtals að upphæð 297,6 milljónum króna. Fjölmörg verkefni í Húnavatnssýslum fengu styrki. Í flokki friðlýstra kirkna fengu m.a. Auðkúlukirkja, gamla kirkjan á Blönduósi, Holtastaðakirkja og Þingeyraklausturskirkja styrk. Í flokki friðaðra húsa og mannvirkja fengust styrkir m.a. til gamla sæluhússins á Hveravöllum, gamla læknisbústaðarins á Blönduósi og gamla Spítalans á Blönduósi. Í flokknum rannsóknir og húsakannanir fékk verkefnið Torfhús í Húnavatnssýslum styrk að fjárhæð 2,5 milljónir króna.
|
Tilkynningar | 18. mars 2024 - kl. 09:06
Brjóstamiðstöð Landspítala verður í samstarfi við Heilsugæsluna á ferð um landið vorið 2024 með brjóstaskimun. Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu, sjá leiðbeiningar um bókun hér að neðan. Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna sem er að jafnaði í boði á hverjum stað árlega eða á tveggja ára fresti.
|
Fréttir | 17. mars 2024 - kl. 11:42
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland vestra sem gildi í sólarhring frá hádegi í dag. Spáð er norðaustan hríð, 13-18 m/s og snjókomu. Búast má við skafrenning með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
|
Pistlar | 17. mars 2024 - kl. 11:34
Eftir Bjarna Jónsson
Bændur verða að tryggja að íslensk matvæli verði betur merkt því flestir neytendur vilja velja íslenskt vegna gæða og hreinleika. Við upprunamerkingar og innihaldslýsingar innfluttra matvæla eigum við ekki að hrökkva sem fullvalda þjóð, heldur setja okkur betri löggjöf í eigin landi. Það er sameiginlegt hagsmunamál framleiðenda matvæla, neytenda, stjórnvalda og ekki síður verslunarinnar og innflutningsaðila, að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna þeirra, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif.
|
Pistlar | 15. mars 2024 - kl. 15:08
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Meðan takast menn á hér / og margir saknæmt rausa / yfir vaka vil ég þér / Vigdís makalausa (JG). Vigdísarvor kallaði Guðmundur Bergsstaðaskáld vorið 1980, en það sáum við ekki fyrir hvernig þróaðist frekar en veður á ókomnum vikum eða mánuðum, já og áratugum því Vigdís, stjarnan okkar, hefur bæði orðið langlíf, heilladrjúg og áhrif hennar og starfa hennar hafa breiðst víða.
|
Fréttir | 14. mars 2024 - kl. 15:41
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, undirrituðu í dag samkomulag um að auka framboð á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu á tímabilinu 2024-2029 og fjármagna uppbyggingu á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði. Stefnt er að því að byggðar verði rúmlega 50 íbúðir á fimm árum og þar af verði 19 þeirra byggðar án hagnaðarsjónarmiða fyrir fólk undir tilteknum tekju- og eignamörkum, íbúðir sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána.
|
Tilkynningar | 14. mars 2024 - kl. 13:15
SSNV, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra. Leitað er að drífandi, framsýnum og sjálfstæðum verkefnastjóra sem býr yfir einstökum hæfileikum í mannlegum samskiptum.
Við óskum eftir samstarfsfélaga sem hefur ástríðu fyrir uppbyggingu samfélagsins sem við búum í og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem heyra undir málaflokka landshlutasamtakanna. Við lofum góðu starfsumhverfi og metnaðarfullum verkefnum.
|
Tilkynningar | 14. mars 2024 - kl. 13:11
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Ákveðið er að fara í leikhúsferð 5. apríl nk., á Gaukshreiðrið í Freyvangsleikhúsinu Eyjafirði. Farið verður með rútu kl. 15.00 frá Félagsheimilinu á Blönduósi. Stansað á Akureyri og þar getur fólk fengið sér kvöldmat. Áætluð heimkoma stuttu eftir miðnætti ef veður og færð eru góð. Pantanir þurfað að berast sem fyrst en í síðasta lagi á skírdag.
|
Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 15:29
Öruggara Norðurland vestra er heiti á vinnustofu sem haldin verður í Félagsheimilinu á Blönduósi miðvikudaginn 20. mars næstkomandi klukkan 08:30-15:00. Um er að ræða svæðisbundið samráð gegn ofbeldi, öðrum afbrotum og til að stuðla að bættri þjónustu fyrir jaðarsetta hópa. Á vinnustofunni verða fjölmörg örerindi um málefni barna og ungmenna, jaðarsetta hópa, þjónustu við fólk með geðrænan vanda sem og ofbeldi í nánum samböndum.
|
Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 11:37
Sveitarstjórn Húnabyggðar fagnar því að samningar hafa náðst á vinnumarkaði og er reiðubúin til að leggjast á árarnar um að samstaða náist um mál er varða aðkomu sveitarfélaga á samningunum. Sveitarstjórn ætlar að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir grunnskólabörn frá og með næsta hausti og til loka samningstíma samninganna en með þeim fyrirvara að ríkisvaldið komið að málum eins og lagt er upp með. Þá leggur sveitarstjórn áherslu á að tryggja þurfi aðkomu ríkisins til framtíðar að málaflokknum svo kostnaður hafni ekki í fanginu á sveitarfélögum að samningstímanum loknum.
|
Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 11:19
Í undirbúningi er að byggja nýjan 685 fermetra leikskóla á Blönduósi sem staðsettur yrði norðan við núverandi leikskóla. Nýta á núverandi húsnæði áfram fyrir elstu árganga en því breytt, m.a. verður eldhúsi breytt í listasmiðju. Nýbyggingin er ætluð fyrir yngri árganga ásamt móttökueldhúsi og matsal sem nýtist leikskólanum í heild ásamt starfsmannarými. Breyta á skólalóð í tengslum við nýbygginguna og er gert ráð fyrir ungbarnaleiksvæði.
|
Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 10:59
Áætlað er að byggðar verði 12 íbúðir í Húnaþingi vestra á þessi ári og allt að 40 íbúðir á næstu fjórum árum þar á eftir. Gert er ráð fyrir að hluti íbúðanna verði seldur á almennum markaði en hluti verði leiguíbúðir fyrir tekjulægri einstaklinga. Áform þessi eru í samræmi við samkomulag milli innviðaráðuneytisins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Húnaþings vestra um aukið framboð íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu.
|
Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 09:12
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ákveðið að þær gjaldskrár sem hækkaðar voru um 5,5% um áramótin verði lækkaðar í sem nemur 3,5% hækkun frá árinu 2023. Sérstaklega verði horft til gjaldskrár sem varða barnafjölskyldur, einkum skólastofnana og íþróttamiðstöðvar. Þá ætlar sveitarfélagið að bjóða gjaldfrjálsar skólamáltíðir frá og með næsta hausti. Tilefnið er nýlega gerður kjarasamningur milli félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |