Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:03 0 0°C
Laxárdalsh. 23:03 0 0°C
Vatnsskarð 23:03 0 0°C
Þverárfjall 23:03 0 0°C
Kjalarnes 23:03 0 0°C
Hafnarfjall 23:03 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 09. mars 2018 - kl. 11:11
Marsnöldur

Veturinn  styttist nú með hverjum deginum sem líður. Vorjafndægur er 20. mars og þá byrjar einmánuður. Síðasta vika mánaðarins er svo dymbilvika, því páskadagur er 1. apríl. Þetta er því allt á réttri leið og við getum farið að hlakka til að sjá blóm í haga og sæta langa sumardaga. Við vitum öll að veðrinu í mars er vart að treysta og stundum hefur marsmánuður verið leiðinlegasti vetrarmánuðurinn. Einhverjir töldu að vorið væri komið síðustu dagana í febrúar þega sólin skein í heiði og hitastigið nálgaðist 10 gráðurnar. Svona góðviðriskaflar geta komið á útmánuðum og vert að gleðjast yfir þeim en reikna alls ekki með að þar með hafi veturinn skilið við okkur.

Í frétt sem birtist á Húnahorninu 9. febrúar sl. er sagt frá miklum malbikunarframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í bænum í sumar, líklega þær mestu á seinni árum. Til stendur að leggja 9.700 fm. af malbiki á götur og plön. Ráðgert er að lagfæra Mýrarbraut, Hnúkabyggð, Smárabraut, Aðalgötu og ganga frá bílastæðum við kirkjuna og kirkjugarðinn og lagfæra bílastæði við leikskólann og Blönduskóla. Þetta eru miklar framkvæmdir sem vonandi verður ráðist í af krafti.

Ef farið verður í lagfæringar á bílastæðum við kirkjuna eins og stefnt er að, vona ég að það verði stækkað, þannig að þurfi ekki að leggja bílum á grasinu á kirkjuhólnum eða framan við fyrirtækin sem standa hinum megin við götuna. Það væri líka þarft verk að rífa upp þessar trjáhríslur sem plantað var þarfa  á kirkjulóðina fyrir nokkrum árum og aldrei hefur nokkur manneskja hugsað um, enda eru þær hálfdauðar innan í sinuflækjunni sem umvefur þær. Sannarlega ekki fallegir runnar og engum til sóma.  Og fyrst rætt er um kirkjuna okkar fallegu, aðal „fyrirsætu“ bæjarins. Hverjum eiginlega datt í hug að mála hurð á norðurhlið kirkjunnar hvíta. Það er ekki hægt að líkja þessu við annað en skemmdarverk. Ég vil vinsamlegast biðja sóknarnefnd að láta hreinsa hurðina hið snarasta, svo viðurinn fái að njóta sín og hurðin verði eins og aðrar hurðir kirkjunnar. 

Það er greinilegt að kótelettukvöldin hans Valdimars eru að slá í gegn og fólk ekur um langan veg til að njóta húnvetnska lambakjötsins. Það skemmir ekki fyrir að veislustjórar halda uppi miklu fjöri með „sönnum“ sögum af mönnum og málefnum úr héraði og einnig eru raddbönd gesta þanin með góðum forsöngvurum. Þessar samkomur sem hefur nú verið boðið uppá í tvo vetur, sýna okkur hvað hægt er að gera til að lífga upp á mannlífið. Hugmynd þarf að fæðast og kjark til að hrinda henni í framkævmd. Bravó fyrir Valdimari besta vini kótelettunnar.

Það  gladdi mig þegar ég sá starfsmenn bæjarins farna að setja upp „alvöru“ merkingar á götuhornum, þar sem götunafnið stendur með  stórum læsilegum stöfum. Þetta er staðarlegt og vonandi liðin tíð að sjá villuráfandi aðkomufólk leita götu úr götu sem það hefur ekki hugmynd um hvað heitir að húsinu sem það ætlar að heimsækja. Stórt hrós til bæjarins okkar fyrir þetta.

Þá  fékk Nöldri febrúarmánaðar þá snjöllu hugmynd að tímabært væri að hefja nú Þrístapa til vegs og virðingar og laða þar að forvitna ferðamenn, og hvað gerist, jú Nöldri hefur verla sleppt lyklaborðinu þegar kemur frétt um að Húnavatnshreppur leiti að ráðgjafa sem vilji starfa með sveitarfélaginu að framtíðar uppbyggingu á Þrístöpum og gestastofu í nágrenninu sem fengi nafnið Agnesarstofa.

Ég segi nú bara eins og gamla fólkið „Guð láti gott á vita“.

Með kærleikskveðju, Nöldri.

Höf. Nöldri
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Glaðheimar
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið