Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:44 0 0°C
Laxárdalsh. 09:44 0 0°C
Vatnsskarð 09:44 0 0°C
Þverárfjall 09:44 0 0°C
Kjalarnes 09:44 0 0°C
Hafnarfjall 09:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Pistlar | 25. maí 2018 - kl. 11:42
Ágætu Skagstrendingar
 Eftir Ástrós Elísdóttur

Við fjölskyldan erum nýbúar hér. Nú eru bráðum liðin þrjú ár frá því að við tókum okkur til og fluttumst úr borg óttans alla leið á Skagaströnd, eins og einhverjir brjálæðingar, án nokkurra fjölskyldubanda hingað norður eða annarra tengsla við samfélagið. Valtýr, maðurinn minn, fékk vinnu hjá líftæknifyrirtækinu Biopol og við ákváðum að slá til og flytjast hingað með dætur okkar tvær. Skemmst er frá að segja að það fer bara ljómandi vel um okkur hér, sem sést best á því að við erum búin að kaupa okkur hús á miðri Hólabrautinni og því engin von til þess að þið losnið nokkuð við okkur í bráð.

 Það er margt sem hefur komið okkur hjónum skemmtilega á óvart á þessum tíma. Væntingar okkar í upphafi voru frekar raunsæislegar býst ég við, við gerðum ráð fyrir því að finna nokkuð jafnt fyrir kostum og göllum á þessum búferlaflutningum. Fljótlega gerðum við okkur þó grein fyrir því að það fer afskaplega lítið fyrir göllum hvað varðar lífsgæði fyrir börnin okkar. Við eigum tvær dætur, sem eru að verða 8 og 10 ára, og þær blómstra hér fyrir norðan, en sjálf höfum við Valtýr gert okkar besta til að fjölga íbúum eftir að við komum hingað og höfum bætt litlum Skagstrendingi í hópinn, sem verður tveggja ára í haust. Við höfum verið afskaplega ánægð með samskiptin við leikskóla og skóla sem reknir eru af fagmennsku og umhyggju fyrir nemendunum, auk þess sem börnin okkar voru fljót að eignast vini og síðast en ekki síst, leika sér stöðugt útivið. Eins og við segjum oft við vini okkar fyrir sunnan: Það er alveg frábært að vera með börn hérna, maður sér þau aldrei!

 Að öllu gamni slepptu er samt alveg frábært að ala upp börn hér. Hér höfum við t.d. kost á að leyfa börnunum okkar að stunda mun fleiri tómstundir en áður. Tónlistarlíf er hér í miklum blóma og Tónlistarskólinn til fyrirmyndar. Það er líka nóg í boði fyrir okkur sem eldri erum - sérstaklega ef maður ber sig eftir því. Ég er nú frekar nýmætt á svæðið og því ekki sífellt í fjölskylduboðum eða mat hjá ömmu en get strax í fljótu bragði nefnt ýmsar almennar uppákomur yfir árið: hannyrðakvöld í Bjarmanesi, spilakvöld og tískusýningar, þorrablót og Sjómannadag, að ekki sé minnst á möguleikana til sjálfsræktar í Íþróttamiðstöð, yoga- og zumbanámskeiðum, sundlauginni og kirkjukórnum.

 Það sem við finnum vel fyrir er að þrátt fyrir að Skagstrendingar séu eins og aðrir Íslendingar ekki að velta sér upp úr pólitík alla daga - ég tel auðvitað ekki með eðlilegar pólitískar umræður eins og þegar forsetakjör er framundan eða annarra stórtíðinda að vænta – þá láta íbúar sig nærumhverfið og sveitarstjórnarmál varða. Upplifunin er ólík því að búa í Reykjavík, allt er einhvern veginn nær. Það er ákveðin nánd í samfélaginu sem verður til þess að íbúarnir láta sig samfélagið varða, það er allra hagur að okkur líði öllum vel hér, og metnaðurinn fyrir því verður áþreifanlegur. Skólamál, framkvæmdir, samgöngur og viðburðastjórnun, allt kemur þetta íbúunum við, og í þessum áhuga íbúanna býr drifkrafturinn sem hefur fleytt samfélaginu áfram og mun koma okkur hvert sem við óskum.

 Það er einmitt þetta sem hefur snert mig hvað mest þessi þrjú ár sem ég hef búið hér. Þegar íbúarnir láta sig samfélagið sitt varða verður samfélagið betra. Ég hef borið gæfu til þess að fá að kenna þorra unglinganna á Skagaströnd leiklist undanfarin ár og mig langar til að nefna það hér að þau eru framúrskarandi. Í vinnu minni með þeim hef ég fengið að kynnast dugnaði, eljusemi og metnaði sem einkennir þau. Það er ekki sjálfgefið að lítið sveitarfélag eigi fulltrúa í ótal samkeppnum sem jafnvel komast á verðlaunapalla, og það gerist heldur ekki af sjálfu sér. Það vex sem að er hlúð. Frá því að ég flutti hingað hef ég fylgst með unglingum héðan taka þátt í stærðfræðikeppnum, söngkeppnum Söngfés, vinna til verðlauna í hönnunarkeppninni Stíl og fá gullið fyrir förðun, tvö ár í röð hafa stúlkur unnið til verðlauna fyrir enska smásögu, að ekki sé minnst á alla tónleikana og þrekvirki þeirra við uppsetningu leiksýninga, núna þriðja árið í röð. Þau eiga framtíðina fyrir sér, það er nokkuð ljóst.

Eitt af því sem ég tók eftir þegar ég spígsporaði rígmontin og alveg að springa úr stolti um Skagaströnd dagana eftir að við frumsýndum fyrstu leiksýninguna okkar hér, Mamma mia, var að bæjarbúar voru allir stoltir, rétt eins og ég. Margir lýstu ánægju sinni með sýninguna og það að boðið væri upp á það fyrir unga fólkið okkar að vinna að metnaðarfullri uppsetningu sem þessari. Þetta voru ekki bara foreldrar eða nánustu ættingjar leikaranna ungu, síður en svo. Við sem hér búum eigum nefnilega öll eitthvað í þessu unga fólki, þetta er unga fólkið okkar og framtíð þess skiptir okkur öll máli.

 Það þarf þorp til að ala upp barn - hér skildi ég að þetta orðatiltæki er ekki einhver klisja heldur sannleikur, og það eru mikil lífsgæði fólgin í þeirri fullvissu, að í því að ala börnin okkar upp og veita þeim gott veganesti: þar stöndum við saman.

Það er mér mikið kappsmál að hér verði áfram hlúð að menntun sem best getur orðið og að menning og listir lúti ekki í lægra haldi við skammsýna rekstraráætlanagerð. Horfum til framtíðar! Setjum x við H-listann.

Ástrós Elísdóttir
​7. sæti H-listans, Skagastrandarlistans

Höf. rzg
Þingeyrakirkja
Þingeyrakirkja
Fréttir | 28. mars 2024 - kl. 09:02
Páskarnir eru ein mesta hátíð kristinna manna. Þá er krossfestingar Krists og upprisu hans minnst. Þessi merki boðskapur hefur táknræna merkingu ekki síður en sögulega. Margir nota hátíðina til samvista með sínum nánustu, vinum og/eða ættingjum, sumir leggjast í ferðalög en aðrir njóta einfaldlega þess að vera til. Svo eru þeir sem sinna helgihaldi um páska og rækta trú sína og innri mann.
Glaðheimar
Tillögurnar fimm sem hægt er að kjósa um
Tillögurnar fimm sem hægt er að kjósa um
Fréttir | 27. mars 2024 - kl. 18:35
Íbúar í Húnaþingi vestra geta valið milli fimm tillagna að slagorði fyrir sveitarfélagið, sem lýstir kjarna samfélagsins og hægt er að nota í kynningarskyni. Síðastliðið haust framkvæmdi Háskólinn á Bifröst íbúakönnun og var fólk m.a. beðið um að koma með hugmyndir að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú fimm verið valdar til að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
Ástarbréf Ketilríðar
Ástarbréf Ketilríðar
Pistlar | 27. mars 2024 - kl. 09:06
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Mamma/Sigríður Ỏlafsdóttir, fæddist á Mörk eins og Ingimar Guðmundur, bróðir hennar og til Laxárdalsins óf hún sterka tryggð, fjölskyldan átti þar og eignaðist góða granna, þar á meðal eldri hjónin í Mjóadal, Ingibjörgu og Guðmund Erlendsson hreppstjóra. Það var tekið vel á móti gömlum sveitungum þegar amma og afi fluttu úr Hegranesinu 1917.
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:48
Hjá Biopol á Skagaströnd hafa verið gerðar tilraunir til að nýta kjöthluta grásleppunnar til framleiðslu á matvöru og verða afurðirnar kynntar á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í næsta mánuði, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Haft er eftir Halldóri G. Ỏlafssyni, framkvæmdastjóra Biopol, að gerðar hafi verið tilraunir með kald- og heitreykingu grásleppuflaka og þurrkun á grásleppuhveljum með það fyrir augum að bjóða hana sem valkost í gæludýrafóður.
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:11
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um að loka Pósthúsinu á Hvammstanga, sem hafi í för með sér niðurlagningu á 2,5 stöðugildi. Ákvörðunin rýri samkeppnishæfni fyrirtækja sem selji vörur í vefverslun á svæðinu þar sem aðgengi að þjónustu geti haft áhrif á afgreiðsluhraða. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs frá fundi þess í gær.
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 09:28
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í hörðum árekstri á hringveginum við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra síðdegis í gær en lögreglan fékk tilkynningu um slysuð rétt fyrir klukkan 17. Í tilkynningu frá henni segir að tvennt hafi verið í hvorri bifreið og að tveir hafi verið fluttir slasaðir með sjúkraflugi frá Blönduósflugvelli til Reykjavíkur, og tveir með sjúkrabifreið. Ekki sé hægt að segja til um meiðsl fólksins að svo stöddu.
Fréttir | 25. mars 2024 - kl. 14:58
Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á fjórum stöðum á Norðurlandi. Til stendur að loka pósthúsunum á Hvammstanga, Siglufirði og Dalvík og samstarfspósthúsinu í Ỏlafsfirði. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum. Þegar eru komin póstbox á Hvammstanga og Dalvík en í næsta mánuði verða sett upp box í Ỏlafsfirði og á Siglufirði. Þetta kemur fram á vef Íslandspóst.
Stjórn Styrktarsjóðs A-Hún. ásamt stjórnarmönnum Hollvinasamtaka HSB. Mynd: Hlynur Tryggvason
Stjórn Styrktarsjóðs A-Hún. ásamt stjórnarmönnum Hollvinasamtaka HSB. Mynd: Hlynur Tryggvason
Tilkynningar | 25. mars 2024 - kl. 14:17
Frá stjórn Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi
Stjórnarfundur var haldinn þann 21. mars hjá Hollvinasamtökum HSB. Eftir fundinn mættu sannkallaðir gleðigjafar, en það var stjórn Styrktatsjóðs A-Hún. þau Valgarður Hilmarsson formaður, Erla Ísafold Sigurðardóttir og Sigríður Eddý Jóhannesdóttir. Færðu þau samtökunum rausnarlega gjöf kr: 500.000 upp í kaup á þrekhjóli fyrir skjólstæðinga 3. og 4. hæðar.
Már Jónsson og Jón Torfason. Mynd: hi.is
Már Jónsson og Jón Torfason. Mynd: hi.is
Fréttir | 24. mars 2024 - kl. 12:09
Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Húnvetningurinn Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan.
Kaldakinn Torfalækjarhreppi um 1930. Mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
Kaldakinn Torfalækjarhreppi um 1930. Mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
Pistlar | 24. mars 2024 - kl. 09:47
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
Eftir flutning Sveins Halldórssonar að Hnjúkum 1809 bjuggu Halldór Jónsson og Guðrún Jónsdóttir kona hans áfram í Köldukinn til 1811 en í stað Sveins kom nýtt sambýlisfólk um tveggja ára skeið (1809-1811). Það voru Jón Jónsson (um 1740-1816) og Jarþrúður Jónsdóttir (1748-20. ágúst 1825), höfðu lengi búið á Miðgili í Langadal og fluttu héðan að Engihlíð þar sem Jón lést 1816.
Eiðsstaðir í Blöndudal. Mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
Eiðsstaðir í Blöndudal. Mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
Pistlar | 22. mars 2024 - kl. 10:25
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Horfinn er þangað hugurinn. Hrakningar, leitir, villa / ónáða byggðamanninn minn / mögnuðum kitlum fylla. Horfinn er þangað hugurinn, / hvenær sem gengur illa. Sigurður gaf út tvær ljóðabækur, Sandfok 1940, Rætur og mura 1955, en ferða- og hestabækur skrifaði hann líka og fyrst hreif hann mig með bók sinni Einn á ferð og oftast ríðandi.
Mynd: umferdin.is
Mynd: umferdin.is
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 10:02
Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vestra þessa stundina. Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á svæðinu og víða hvasst. Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs og verður staðan metin á hádegi. Ỏfært er um Laxárdalsheiði. Vatnsskarð er lokað vegna veðurs og þar eru bílar sem þvera veginn. Þverárfjall er lokað vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu Norðurlandi, sem og á Vestfjörðum, Breiðafirði og á Austurlandi að Glettingi.
Frá samráðsfundinum á Blönduósi. Mynd: Aðsend
Frá samráðsfundinum á Blönduósi. Mynd: Aðsend
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 09:13
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn ofbeldi og öðrum brotum, og um bættrar þjónustu fyrir jaðarsetta hópa, undir heitinu Öruggara Norðurland vestra, hefur verið undirrituð af Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sveitarfélögunum Húnaþingi vestra, Húnabyggð, Skagabyggð Skagaströnd og Skagafirði, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi, Heilbrigðisstofnunum Norðurlands og Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ungmennasamböndunum USAH, USVH og UMSS.
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir er nýr formaður USVH. Mynd: usvh.is
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir er nýr formaður USVH. Mynd: usvh.is
Fréttir | 21. mars 2024 - kl. 15:41
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið