Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:19 0 0°C
Laxárdalsh. 01:19 0 0°C
Vatnsskarð 01:19 0 0°C
Þverárfjall 01:19 0 0°C
Kjalarnes 01:19 0 0°C
Hafnarfjall 01:19 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Jóhannes framkvæmdastjóri flytur skýrslu  sína.
Jóhannes framkvæmdastjóri flytur skýrslu sína.
Nýkjörinn stjórn að loknum aðalfundi. F.v. Pétur Grétarsson, Jón Gíslason og Rannveig Lena Gískadóttir. Ljósm: J.T.
Nýkjörinn stjórn að loknum aðalfundi. F.v. Pétur Grétarsson, Jón Gíslason og Rannveig Lena Gískadóttir. Ljósm: J.T.
Fréttir | Pistlar | 27. júní 2018 - kl. 08:37
Fjölþætt verkefni Ámundakinnar
Eftir Jóhannes Torfason

Aðalfundur Ámundakinnar ehf. var haldinn nýlega á Blönduósi. Á fundinum var greint frá hinum fjölþættu verkefnum félagsins. Fram kom að félagið var rekið með hagnaði 2017 eins og undanfarin ár og eiginfjárhlutfallið er um 50%. Hlutafé  á aðalfundardegi var 217,6 milljónir og hluthafar 79. Stærstu hluthafar eru Byggðastofnun, Blönduósbær, Hömlur fyrirtæki ehf., SAH svf. og Húnavatnshreppur.

Töluverðar breytingar hafa orðið á hlutafé félagsins síðan í ársbyrjun 2017, sem og hlutafjáreign stærstu hluthafa. Mest af þessum breytingum árið 2017 er tengt kaupum á um 92% hlutafjár í Fasteignafélaginu Borg ehf. á Hvammstanga. Það félag á og leigir húseignir á Hvammstanga og Sauðárkróki og á einnig hlutabréf í húseign á Hvammstanga. Í heild má segja að fjárhagur félagsins sé traustur og lánshæfi gott.

Breytingar á stjórn
Á aðalfundinum var kosin ný stjórn, sem þau Jón Gíslason, Pétur Grétarsson og Rannveig Lena Gísladóttir skipa. Valgarður Hilmarsson sem gegnt hefur formennsku í félaginu frá stofnun þess, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hin nýja stjórn skipti með sér verkum að loknum aðalfundi og er Jón Gíslason formaður, Pétur varaformaður og Rannveig Lena ritari. Framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun er Jóhannes Torfason.

Framkvæmdir á Skagaströnd
Nýlega var gerður samningur við Sveitarfélagið Skagaströnd um að það keypti 5 milljón hluti í Ámundakinn fyrir 9 milljónir króna. Samhliða var gert samkomulag um að ráðast í verulegar endurbætur á húsinu á Bogabraut 1 þar í bæ. Stefnt er að verklokum haustið 2019. Þá var gerður nýr leigusamningur við Samkaup um leigu á húsinu til langs tíma til verslunarreksturs.

Aðkoma að gagnaveri
Síðla árs 2017 hófust viðræður við fulltrúa Borealis Data Center ehf. um að Ámundakinn byggði og ætti hús, sem leigt yrði BDC ehf. til reksturs gagnavers. Ekki náðust samningar á þeim grunni sem stjórn Ámundakinnar taldi ásættanlegan fyrir félagið og var þessum viðræðum hætt nú í apríl.

Hins vegar hafði Blönduósbær forystu um að stofna fasteignafélag ásamt Húnavatnshreppi og BDC ehf. sem hefði að markmiði að byggja og leigja húsnæði fyrir gagnaver. Í tengslum við þetta féllst stjórn Ámundakinnar á þá ósk Blönduóssbæjar og Húnavatnshrepps, um að selja þeim hlutabréf í félaginu, samtals fyrir 20 m.kr. á genginu 2,0 og andvirðið yrði lagt fram sem hlutafé í nýtt félag, BDC- North ehf. Nýlega hófust  framkvæmdir við byggingu fyrsta hússins fyrir gagnaver.

Flóra til Blönduóss - Vilkó stækkar
Í lok apríl var undirritaður samningur við KEA svf. og S6 Verslunarfélagið ehf. um kaup Ámundakinnar á öllum hlutabréfum í Ásbyrgi – Flóru ehf. á Akureyri. Stefnt er að því að flytja starfsemi Flóru til Blönduós og samþætta með Vilkó. Þess er vænst að töluverð hagræðing verði í rekstri Vilkó og störfum  fjölgi þar um fimm til sjö. Með þessum flutningum er húsnæði gömlu  Mjólkurstöðvarinnar orðið troðfullt og starfsemin mun fjölbreyttari.

Framkvæmdir
Stærsta framkvæmd sem unnið er að núna er bygging á þjónustuhúsi, sem Mjólkursamsalan hefur tekið á leigu til langs tíma. Þarna verður miðstöð fyrir mjólkursöfnun í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. Einnig verður í húsinu hvíldaraðstaða fyrir bílstjóra sem annast flutninga milli Selfoss og Akureyrar. Verður húsið tekið í notkun á næstunni og stefnt er að því að lóð verði frágengin síðsumars eða í haust.

Þá var haldið áfram endurbótum á Húnabraut 33 og Norðurlandsvegi 4, þar sem Bifreiðaverkstæði Blönduóss er að stækka við sig og auka sína þjónustu.

Viðurkenningar
Félagið hlaut viðurkenningu Creditinfo vegna ársins 2016 sem Framúrskarandi fyrirtæki og einnig Viðskiptablaðsins sem Fyrirmyndarfyrirtæki. Viðurkenningar sem þessar eru einskonar traustsyfirlýsingar sem skipta máli þegar lánshæfi er metið og einnig fyrir lánskjör.

Ámundakinn hefur styrkt ýmiss félagasamtök s.s. USAH, Kiwanisklúbbinn Drangey, Húnavökuna, Björgunarfélagið Blöndu o.fl. Lítur stjórn félagsins á það sem einskonar viðurkenningu fyrir margþætt störf þessara samtaka.

Stofnað 18. desember 2003
Þegar horft er til baka og reynt að leggja mat á starf og árangur félagsins er ljóst að snertifletir þess við samfélagið eru margir. Ný hús og vinnustaðir eru hinn augljósi vottur, en einnig bein aðkoma að fyrirtækjum. Umsvifin hafa líka treyst stoðir annarra fyrirtækja.

Ámundakinn er stærsti hluthafi í Fasteignafélaginu Borg, Vilkó og Trésmiðjunni Stíganda sem eru að skila batnandi afkomu og meiri umsvifum.

Markmið félagsins er að vera bakhjarl og hvati til að efla atvinnu- og mannlíf í héraðinu.

Jóhannes Torfason.

 

 

Höf. rzg
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Glaðheimar
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið