Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:06 0 0°C
Laxárdalsh. 18:06 0 0°C
Vatnsskarð 18:06 0 0°C
Þverárfjall 18:06 0 0°C
Kjalarnes 18:06 0 0°C
Hafnarfjall 18:06 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 26. september 2018 - kl. 14:04
Þegar tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Biðjum fyrir þeim sem nýlega eða einhvern tíma hafa misst og vita því af eigin raun hvað það er að syrgja og sakna.

Biðjum einnig fyrir þeim sem orðið hafa  fyrir hvers kyns vonbrigðum eða hafa upplifað áföll og gengið í gegnum erfiða tíma. Og biðjum ekki síst fyrir þeim sem daglega ganga til sinna hversdagslegu verka og heyja þannig sína stöðugu lífsbaráttu. Já, öllum þeim sem elska lífið, þrá að höndla það, fá að halda í það og njóta þess. Já, höfum hvert annað í huga og leitumst við að standa saman og mæta þörfum hvert annars af skilningi, með kærleika, hlýju og umhyggju.

Það missir enginn eins og þú

Það missir enginn eins og þú, það syrgir enginn eins og þú og það saknar enginn eins og þú.  Því að enginn er sem þú og enginn kemur í þinn stað.  Missir þess sem elskar er oftast afar þungbær og mikill.  Og þótt andlitið kunni sem betur fer að gleðjast um stund, getur hjartað grátið lengi á eftir, jafnvel ævilangt. Þótt sársaukinn kunni að mýkjast og breytast með tímanum.

Það kemst enginn hjá því að syrgja og sakna nema þá með því að hætta að elska og finna til.  Því þeir missa mest sem mikið elska, það er gömul saga og ný. Sá sem ekki elskar missir ekki neitt, en fer svo óendanlega mikils á mis. Það að elska er að lifa og það að lifa er að elska.

Tár

Það er svo þungt að missa, tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt. Angist fyllir hugann. Örvæntingin og umkomuleysið er algjört. Tómarúmið hellist yfir og tilgangsleysið virðist blasa við.

Það er svo sárt að sakna, en það er gott að gráta.  Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna.  Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið.

Tárin mýkja og tárin styrkja.  Í þeim speglast fegurð minninganna.

Gráttu, "því að sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða."  Sælir eru þeir sem eiga von á Krist í hjarta, því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð bjarta.

Allt hefur sinn tíma

Leyfðu sorginni að hafa sinn tíma og fara í sinn eðlilega farveg.  Svo mun það gerast, smátt og smátt, að þú gefst upp fyrir henni og minningarnar björtu og góðu komast að, taka við og búa með þér. Ómetanlegar minningar sem enginn getur afmáð eða frá þér tekið.

Að harðasta vetrinum loknum fer síðan aftur að vora og yljandi vindar taka um þig að leika á ný og litskrúðug, ólýsanlega fögur blóm taka að gera vart við sig, hvert af öðru. þau taka að spretta umhverfis lind minninganna.

Já, blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn, bara með því að faðma og vera.

Í sorgarhúsi

Forðastu ekki þá sem sorgin hefur bitið.  Hafðu bara hugfast að spakmæli, reynslusögur, viðmið eða of mörg orð yfirleitt eiga ekki við í þeim húsum sem sorgin hefur sótt heim.

Hlustaðu bara, faðmaðu og vertu til staðar í þolinmæði. Því að þegar þú heimsækir sjúka, sorgbitna eða þá sem ellin þjakar, þá þarftu ekki endilega að staldra svo lengi við. En vertu allavega á meðan þú ert, án þess að vera að skoða símann þinn eða að vera sífellt að líta á klukkuna.

Með einlægum blessunaróskum og eilífri kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Glaðheimar
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið