Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:52 0 0°C
Laxárdalsh. 14:52 0 0°C
Vatnsskarð 14:52 0 0°C
Þverárfjall 14:52 0 0°C
Kjalarnes 14:52 0 0°C
Hafnarfjall 14:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Húsfrúin | 09. ágúst 2019 - kl. 10:56
Aldurssmánun samtímans

Margrét S. Björnsdóttir skrifaði áhugaverða grein á visir.is fyrr á þessu ári þar sem hún talar um aldurssmánun samtímans. Í greinninni fjallar hún um mestu sóun okkar, sóun á reynsluþekkingu. Lítil samfélög hafa ekki efni á að sóa áratuga reynsluþekkingu þeirra sem eldri eru. Ekki má gleyma því að öll lærum við flest af öðrum. Breyta þarf menningunni með hraði. Þeir eldri þurfa að kenna þeim yngri að læra að læra svo þeir yngri geta tekið við af þeim til framtíðar. 

 

Aldursmánun samtímans eftir Margréti S. Björnsdóttur 

Þú ert jú komin á aldur“, sagði ungur maður við mig um daginn, þegar í tal barst tiltekið verkefni sem ég hef með höndum og hvort ég hygðist láta af því, sem hann taldi augljóslega tímabært. Ég hrökk við því sjálfsmynd mín er vissulega ekki sú að ég ráði ekki við verkefnið og fannst að mín þátttaka ætti ekki að ráðast af aldri, heldur því hvort ég valdi viðfangsefninu. Af svipuðum toga var ótrúleg og raunar sprenghlægileg frásögn Óttars Guðmundssonar (72 ára) nýverið í Fréttablaðinu, þar sem ungur maður, sem var samferða honum í flugvél, spurði Óttar: „Ertu enn að ferðast?“

Aldursmörkin 67 eða 70 ára virðast orðin að mælikvarða í sjálfu sér, óháð getu eða löngun viðkomandi. Listamenn eru hins vegar ekki settir undir þessa mælistiku og verk þeirra eða frammistaða metin óháð aldri, sem sýnir ágætlega hversu fáránleg hún er. Í atvinnulífinu er fólki sem náð hefur þessum aldri hins vegar lang oftast umsvifalaust vísað á dyr, óháð starfsgetu þess eða -vilja. Hér er verið að sóa samfélagslegum verðmætum og jafnvel töluvert yngra fólk, 45-50 ára, kvartar undan svonefndum „kennitöluvanda“ við atvinnuumsóknir, ekki síst konur. Þeim sé ekki einu sinni boðið í atvinnuviðtal þrátt fyrir þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.

Sömu viðhorf eða aldursfordómar birtast í opinberri umræðu um þriðja orkupakkann. Þar hafa verið áberandi nokkrir eldri áhugamenn um stjórnmál, en þeim er ítrekað bent á að „tími þeirra sé liðinn“, skoðanir þeirra sagðar „rykfallnar“ og þeir beðnir um að skipta sér ekki af því sem kallað er „okkar framtíð“, svo aðeins sé vitnað í kurteisari ummælin. Reynsla og afleidd dómgreind er einskis metin, eitthvað sem ætti fremur að teljast mikilvægt í þjóðmálaumræðu.

Háskóli Íslands er ánægjuleg undantekning þessa. Þar hefur með nýjum rektor verið mörkuð sú stefna, að heimilt er að semja við fólk sem komið er á eftirlaun um tiltekin verkefni, séu þau til staðar. Samið er til afmarkaðs tíma í senn, á fyrri launum, þótt ekki fylgi öll sömu starfskjör. Slíkir samningar verða að sjálfsögðu að þjóna hagsmunum beggja aðila og viðkomandi starfsmaður að sætta sig við reglubundna endurskoðun. Opinberir aðilar og fyrirtæki ættu að fylgja þessu almenna fordæmi og einhverjir kunna að gera það. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr því, að sum störf ganga mjög nærri fólki þannig að sjálfsagt er að það geti farið á eftirlaun 67-70 ára. En lykil­atriði er að fólk hafi val, sé geta og áhugi til staðar.

Það er eitt af einkennum okkar samtíma að hópar sem hafa mátt sæta neikvæðri umræðu eða fordómum hafa risið upp og krafist þess að vera jafnréttháir öðrum, sem ekki bera sömu einkenni og vera metnir á grunni eigin verðleika. Þar hafa verið áberandi t.d. fatlaðir, samkynhneigðir, hörundsdökkir, tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson talaði nýverið um kynþáttaníð, fólk í yfirþyngd, sem kallar það fitusmánun, að ekki sé minnst á konur.

Barátta eldri borgara fyrir mannsæmandi eftirlaunum og tryggingabótum er mikilvæg. En það er ekki síður mikilvægt og raunar mannréttindi að á þá sé hlustað og borin fyrir þeim tilhlýðileg virðing. Eldra fólk taki þátt í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli, hvar sem það kýs. En einhvern veginn er eins og þeir sem eldri eru séu feimnir við að setja fram þá kröfu og sætti sig við jaðarsetninguna.

Þessu þarf að breyta – það eru hagsmunir allra, líka þeirra sem yngri eru og eiga eftir að eldast.

Hér má lesa greinina á Vísi 

Greinin birtist 27.06.2019. 

Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Glaðheimar
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið