Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:13 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sumarið er búið og haustlægðirnar koma nú til okkar hver af annarri. Maður er farinn að finna lykt af vetri enda styttist í fyrsta vetrardag. Það kætir mig svo sem ekkert, enda líkar mér ólíkt betur við blessað sumarið og sólina og fæ hroll af að hugsa um stórhríð og snjóskafla. Á þessum árstíma dettur mér oft í hug ljóð eftir Davíð Stefánsson þar sem þessar hendingar koma fyrir: „Þeir vita það best hvað vetur er, sem vorinu heitast unna.“
En ekki þýðir neitt vol og væl, við fengum alveg þokkalegt sumar þar sem hefðbundnar hátíðir komu hver af annarri eins og haustlægðirnar, Prjónagleðin, ágætlega sótt að mér skilst, Smábæjarleikarnir, sem mér sýnist heldur færri sækja með hverju árinu, 17. júní með allt of hefðbundnum hátíðarhöldum sem mætti aðeins fara að uppfæra og það sama má segja um Húnavöku, sem er að verða frekar óspennandi að margra mati. Af hverju, til dæmis, var ekkert um að vera á bæjartorginu á laugardeginum þar sem kjörið er að vera með alls konar sprell og sölubása, svo ekki sé minnst á söngvarakeppni fyrir ungafólkið sem virðist hætt að bjóða uppá. Nefndin sem sér um að ráða dagskrárgerðarmann Húnavöku verður að gera meiri kröfur. Það er ekki nóg að ráða einhvern aðkomumann sem ekkert þekkir hér til og gefa honum frjálsar hendur, hversu góður sem hann er, það þarf að gera betur svo þessi annars frábæra bæjarhátíð okkar standi undir nafni og missi ekki aðdráttarafl sitt.
Á þjóðhátíðardaginn í sumar settist ég við sjónvarpið eins og stundum áður kl. 10:30 að morgni og horfði á hátíðarhöldin við Austurvöll í Reykjavík. Þar fór að venju fram hefðbundin dagskrá þar sem sungin voru ættjarðarlög, lagður blómsveigur við styttu Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra hélt ræðu og að venju gekk svo fjallkonan frá Alþingishúsinu að ræðupúlti og flutti ljóð. Þarna gekk fram glæsileg ung kona, íslendingur af erlendu þjóðerni í íslenskum skautbúningi sem hún bar af mikilli reisn og glæsibrag og flutti ljóðið: „Landið flokkar ekki fólk“ eftir, að mínu mati, einn af okkar bestu ljóðskáldum, Bubba Mortens. Þetta ljóð má segja að sé hylling til fjölmenningarsamfélagsins.
Þess þurfti ekki lengi að bíða að upp risu afturhaldsseggirnir á netinu sem allt þurfa að rífa niður sem ekki þjónar þeirra þröngsýna sjónarhorni og hatast við þjóðtrú okkar, kristnina, að ég tali nú ekki um múslima, innflytjendur og loftslagsbreytingar o.fl.o.fl.
Það var skammast yfir þeirri ósvinnu að velja leikkonu til að flytja ljóðið sem væri ekki íslensk, en farðir hennar er bandaríkjamaður af afrískum uppruna og 17. júní er sko þjóðhátíðardagur íslendinga. Þó á stúlkan íslenska móður og er uppalin hér og talar betri íslensku en margur íslendingurinn sem vill helst nota ensku.
Ég vona að það sé ekki stór hópur sem hatast við allt það erlenda fólk sem hingað hefur flutt eða flúið, þó mikið fari fyrir þeim á ýmsum samfélagsmiðlum. Hvar værum við stödd ef útlendingar væru ekki í þeim störfum sem íslendingar vilja ekki vinna. Hvað erum við að gera okkur merkileg? Erum við ekki öll flóttamenn eða innflytjendur frá Noregi eða Írlandi. Mér finnst það satt að segja til skammar hvernig rasistar fá að vaða uppi á netmiðlum með sínar smánarlegu hugmyndir um hreint þjóðfélag og hvað þurfa að líða mörg ár, margar aldir þangað til hvíti kynstofninn viðurkennir að hann er ekkert æðri öðrum sem eru dekkri á hörund en við.
Segjum eins og Bubbi: „Rífum niður múrana og göngum inn í víðáttu frelsisins og fögnum lífinu.“
Þar sem þessi pistill er orðinn eitt allsherjar nöldur, eins og vera bera, verð ég að varpa fram þeirri spurningu hver hafi ákveðið það að nú megi ekki lengur birta nöfn fermingarbarna í dagblöðum landsins eins og tíðkast hefur árum saman, t.d. í Mogganum. Er þetta komið frá Persónuvernd og hvern er þá verið að vernda? Er það orðið feimnismál að barn sé fermt að kristnum sið í kirkjunni sinni eins og verið hefur um aldir? Hvað verður næst, kannski má ekki auglýsa að jarðsett verði frá þessari eða hinni kirkjunni, eða brúðkaup, burt með þau úr kirkjunni eins og grunnskólabörnin sem þangað mega ekki koma inn fyrir dyr á skólatíma eða hlýða á prest á litlu jólunum í skólanum. Kristni er ennþá þjóðtrú í landinu okkar og meirihluti landsmanna játar kristna trú og við eigum ekki og viljum ekki fara í felur með hana þó vegið sé að henni úr öllum áttum.
Kveðja
Nöldri
Fréttir | 28. mars 2024 - kl. 09:02
Páskarnir eru ein mesta hátíð kristinna manna. Þá er krossfestingar Krists og upprisu hans minnst. Þessi merki boðskapur hefur táknræna merkingu ekki síður en sögulega. Margir nota hátíðina til samvista með sínum nánustu, vinum og/eða ættingjum, sumir leggjast í ferðalög en aðrir njóta einfaldlega þess að vera til. Svo eru þeir sem sinna helgihaldi um páska og rækta trú sína og innri mann.
|
Fréttir | 27. mars 2024 - kl. 18:35
Íbúar í Húnaþingi vestra geta valið milli fimm tillagna að slagorði fyrir sveitarfélagið, sem lýstir kjarna samfélagsins og hægt er að nota í kynningarskyni. Síðastliðið haust framkvæmdi Háskólinn á Bifröst íbúakönnun og var fólk m.a. beðið um að koma með hugmyndir að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú fimm verið valdar til að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
|
Pistlar | 27. mars 2024 - kl. 09:06
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Mamma/Sigríður Ỏlafsdóttir, fæddist á Mörk eins og Ingimar Guðmundur, bróðir hennar og til Laxárdalsins óf hún sterka tryggð, fjölskyldan átti þar og eignaðist góða granna, þar á meðal eldri hjónin í Mjóadal, Ingibjörgu og Guðmund Erlendsson hreppstjóra. Það var tekið vel á móti gömlum sveitungum þegar amma og afi fluttu úr Hegranesinu 1917.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:48
Hjá Biopol á Skagaströnd hafa verið gerðar tilraunir til að nýta kjöthluta grásleppunnar til framleiðslu á matvöru og verða afurðirnar kynntar á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í næsta mánuði, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Haft er eftir Halldóri G. Ỏlafssyni, framkvæmdastjóra Biopol, að gerðar hafi verið tilraunir með kald- og heitreykingu grásleppuflaka og þurrkun á grásleppuhveljum með það fyrir augum að bjóða hana sem valkost í gæludýrafóður.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:11
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um að loka Pósthúsinu á Hvammstanga, sem hafi í för með sér niðurlagningu á 2,5 stöðugildi. Ákvörðunin rýri samkeppnishæfni fyrirtækja sem selji vörur í vefverslun á svæðinu þar sem aðgengi að þjónustu geti haft áhrif á afgreiðsluhraða. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs frá fundi þess í gær.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 09:28
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í hörðum árekstri á hringveginum við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra síðdegis í gær en lögreglan fékk tilkynningu um slysuð rétt fyrir klukkan 17. Í tilkynningu frá henni segir að tvennt hafi verið í hvorri bifreið og að tveir hafi verið fluttir slasaðir með sjúkraflugi frá Blönduósflugvelli til Reykjavíkur, og tveir með sjúkrabifreið. Ekki sé hægt að segja til um meiðsl fólksins að svo stöddu.
|
Fréttir | 25. mars 2024 - kl. 14:58
Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á fjórum stöðum á Norðurlandi. Til stendur að loka pósthúsunum á Hvammstanga, Siglufirði og Dalvík og samstarfspósthúsinu í Ỏlafsfirði. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum. Þegar eru komin póstbox á Hvammstanga og Dalvík en í næsta mánuði verða sett upp box í Ỏlafsfirði og á Siglufirði. Þetta kemur fram á vef Íslandspóst.
|
Tilkynningar | 25. mars 2024 - kl. 14:17
Frá stjórn Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi
Stjórnarfundur var haldinn þann 21. mars hjá Hollvinasamtökum HSB. Eftir fundinn mættu sannkallaðir gleðigjafar, en það var stjórn Styrktatsjóðs A-Hún. þau Valgarður Hilmarsson formaður, Erla Ísafold Sigurðardóttir og Sigríður Eddý Jóhannesdóttir. Færðu þau samtökunum rausnarlega gjöf kr: 500.000 upp í kaup á þrekhjóli fyrir skjólstæðinga 3. og 4. hæðar.
|
Fréttir | 24. mars 2024 - kl. 12:09
Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Húnvetningurinn Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan.
|
Pistlar | 24. mars 2024 - kl. 09:47
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
Eftir flutning Sveins Halldórssonar að Hnjúkum 1809 bjuggu Halldór Jónsson og Guðrún Jónsdóttir kona hans áfram í Köldukinn til 1811 en í stað Sveins kom nýtt sambýlisfólk um tveggja ára skeið (1809-1811). Það voru Jón Jónsson (um 1740-1816) og Jarþrúður Jónsdóttir (1748-20. ágúst 1825), höfðu lengi búið á Miðgili í Langadal og fluttu héðan að Engihlíð þar sem Jón lést 1816.
|
Pistlar | 22. mars 2024 - kl. 10:25
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Horfinn er þangað hugurinn. Hrakningar, leitir, villa / ónáða byggðamanninn minn / mögnuðum kitlum fylla. Horfinn er þangað hugurinn, / hvenær sem gengur illa. Sigurður gaf út tvær ljóðabækur, Sandfok 1940, Rætur og mura 1955, en ferða- og hestabækur skrifaði hann líka og fyrst hreif hann mig með bók sinni Einn á ferð og oftast ríðandi.
|
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 10:02
Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vestra þessa stundina. Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á svæðinu og víða hvasst. Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs og verður staðan metin á hádegi. Ỏfært er um Laxárdalsheiði. Vatnsskarð er lokað vegna veðurs og þar eru bílar sem þvera veginn. Þverárfjall er lokað vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu Norðurlandi, sem og á Vestfjörðum, Breiðafirði og á Austurlandi að Glettingi.
|
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 09:13
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn ofbeldi og öðrum brotum, og um bættrar þjónustu fyrir jaðarsetta hópa, undir heitinu Öruggara Norðurland vestra, hefur verið undirrituð af Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sveitarfélögunum Húnaþingi vestra, Húnabyggð, Skagabyggð Skagaströnd og Skagafirði, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi, Heilbrigðisstofnunum Norðurlands og Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ungmennasamböndunum USAH, USVH og UMSS.
|
Fréttir | 21. mars 2024 - kl. 15:41
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |