Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:30 0 0°C
Laxárdalsh. 01:30 0 0°C
Vatnsskarð 01:30 0 0°C
Þverárfjall 01:30 0 0°C
Kjalarnes 01:30 0 0°C
Hafnarfjall 01:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pistlar | 11. nóvember 2019 - kl. 16:09
Uppgjör! “ Krít, sex árum síðar
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Það olli nettri geðshræringu að koma aftur til Krítar í haust, sex árum eftir að ég fékk heldur óþægilegt símatal þangað þess efnis að ég hefði greinst með krabbamein.

Þá féllumst við hjónin ástfangin upp fyrir haus í faðma og fórum að gráta. Það sem eftir lifði þeirrar ferðar fannst mér gott að leggjast á sólbekk á víðavangi þar sem enginn þekkti mig og mér var sama um hvað fólki fannst. Lesa mín eigin ljóð, hlusta á tónlist og fara bara að gráta.

Mínar helstu hugsanir á þeim augnablikum voru til dæmis þær að ég ætti ef til vill aldrei eftir að upplifa það að vera afi. "Hvað verður? Hvað ef? Á ég aldrei eftir að... Ég sem ætlaði... Skilaðu kveðju minni til okkar ófæddu barnabarna... Viltu segja þeim frá mér... Að ég hafi... myndi og hefði..." Eitt símtal sumarið 2013 og veröldin hrundi. Og þegar heim var komið tóku við frekari rannsóknir og mælingar, endalaus bið, hækkandi gildi, uppskurður, löng geislameðferð, ævilöng lyfjameðferð með tilheyrandi aukaverkunum.

Tilfinningarnar báru mig ofurliði

Tilfinningarnar báru mig ofurliði strax fyrsta kvöldið eftir að við hjónin komum svo aftur til Krítar í haust eftir sex tíma flug. Enda ég orðinn afi fjögurra dásamlegra gleðigjafa sem hafa komið sem englar inn í líf okkar hjóna frá þeim tíma. Tvö þeirra voru þarna einmitt með í för. Gildin komin í sögulegt hámark og ég farandi í sneiðmyndatöku á sex vikna fresti.

Við hjónin ákváðum því að fara daginn eftir þangað sem við vorum stödd þegar símtalið barst fyrir sex árum til þess að skila því og þar með krabbameininu og jafnframt til að leita af símanum mínum sem ég henti í laugina af því tilefni á sínum tíma, eða svona næstum því. Og til að þakka fyrir lífið. Þakka Guði fyrir allt. þá meina ég allt.

Tókum við atburðinn upp á myndband þar sem ég sagði frá og sýndum sundlaugagarðinn, húsið sem við dvöldum í á þeim tíma, standandi við sólbekk á nákvæmlega sama stað og þá.

Að því búnu gengum við berfætt á ströndinni með notalegar sjó gusurnar flæðandi yfir fæturna á okkur og héldum út í kapellu eina sem staðsett er á skaga einum við strandlengjuna. Sömu kapellu og við héldum út í daginn eftir að símtalið barst á sínum tíma.

Gott að geta gert þetta upp. Gott að sættast þannig við sjálfan sig og breyttar aðstæður. Geta svo bara haldið áfram. Án þess að festast í sársauka fortíðarinnar og því sem var. Ég er Guði svo endalaust þakklátur fyrir lífið og gjafir þess. Það er nefnilega svo gott að þakka og gera upp. Njóta þess svo að fá að halda áfram og gefa af sér, þótt í veikum mætti kunni að vera.

Ætla að sýna þér fjársjóðinn minn

Tveimur eða þremur dögum síðar segir fjögurra ára afabarnið svo við mig: "Afi, komdu aðeins ég ætla að sýna þér svolítið." Ég stend upp og fer með henni inn. Þá segir hún:" Afi, ég ætla að sýna þér hvar ég geymi fjársjóðinn minn."

Hún opnar því næst skúffu í hillusamstæðu í herberginu þeirra. Þar hafði hún komið fyrir ýmsu smádóti og leikföngunum sínum. En um leið og hún opnaðu skúffuna blasti við mér eintak af Nýja testamentinu merkt Gídeonfélaginu á þremur tungumálum, þýsku, ensku og frönsku. En ég starfaði einmitt sem framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins á Íslandi frá 1986 – 1998 og var forseti landsstjórnar félagsins 2001 – 2004 og fjármögnuðum við einmitt kaup á nákvæmlega svona útbúnum Nýja testamentum til dreifingar á hótelherbergi á Íslandi og víðar um heim á þeim tíma. "Afi, þetta er bókin þín."

Ég hafði að vísu sent frá mér allnokkrar bækur og eru myndir af henni í tveimur þeirra. En þetta snerti hjarta mitt í þessu samhengi öllu. Ég sem hafði varið öllum þessum árum í að útbreiða og vekja athygli á hinum himnesku og lífgefandi  kærleiks- og friðar orðum frelsarans Jesú í Nýja testamentinu. Að þá skuli þetta gerast þarna með þessum hætti á þessum merka stað sem talaði sannarlega sterkt til mín í heildar samhenginu. Á slóðum sem Páll postuli fór um fyrir tæpum tvö þúsund árum ásamt Títusi vini sínum. 

Þarna var ég svo hressilega minntur á upprunann og nærveru og handleiðslu heilags anda Guðs, höfundar og fullkomnara lífsins sem vakir okkur yfir, leiðir, uppörvar, styður og blessar.

Já, krakkar mínir. Hann er sko ekki aldeilis dauður enn. Dýrð sé Guði fyrir lífið og hans nærandi nærveru sem aldrei klikkar eða bregst. Og fyrir dýrmæta þjónustu og trúfesti allra hans jarðnesku engla, alla tíð.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Glaðheimar
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
Kórinn á Blönduósi 1939
Kórinn á Blönduósi 1939
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið