Húsfrúin | 21. desember 2016 - kl. 19:51
Samstaða og kærleikur

Á dögunum voru haldnir hér á Blönduósi tónleikar þar sem einkunnarorðin voru samstaða og kærleikur.

Ég var beðin um að koma og tala þar sem „leikmaður“ og inntakið ætti að vera nokkuð í  takti við einkunnarorð tónleikanna. Til að undirbúa mig fór ég að hugsa mikið um þessi orð og fyrir hvað þau standa.

Samstaða og kærleikur.

Ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta gætu líka vel verið einkunnarorð okkar sem búum hér á svæðinu. Samstaða og kærleikur!

Þegar eitthvað bjátar á erum við fljót að hlaupa undir bagga með samferðafólki okkar og aðstoða, ekki bara sem einstaklingar heldur líka í hópum – ef svo má segja.

Við höfum  um áraraðir átt hér Styrktarsjóð Húnvetninga sem aðstoðað hefur fjölskyldur sem lent hafa í erfiðleikum af einhverjum toga.

Frábært „batterí“ sem við megum aldrei gleyma að kaupa happadrættismiða af – og koma ábendingum til ef við vitum af einhverjum í vanda.

En kærleikurinn birtist í mörgum myndum.

Hugsið ykkur allt fólkið í kringum okkur sem vinnur sjálfboðavinnu í þágu samfélagsins – ótakmarkaður kærleikur allt um kring.

Við höfum Rauða krossinn með sinn jólasjóð, Lions og Kvenfélögin sem hafa í gegnum tíðina stutt vel við samfélagið okkar. Svo eru það Vinir Kvennaskólans, Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar, Björgunarfélagið Blanda, Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa, kirkjukórarnir og karlakórinn, Leikfélagið, íþróttafélögin öll og svo mætti lengi telja.

Um allar koppagrundir er fólk að vinna sjálfboðavinnu til að auðga líf okkar sem hér búum - á afar fjölbreyttan hátt. Enn meiri kærleikur!

Mig langar sérstaklega til að benda á starf tónlistarskólanna hér í sýslunum tveimur.

Við hefðum líklega ekki fengið að njóta þeirra glæsilegu tónleika sem boðið var upp á í Félagsheimilinu þessa kvöldstund ef hér væri ekki unnið gott starf í tónlistarskólunum. Hæfileikar þessa frábæra og frambærilega tónlistarfólks sem við fengum að njóta á tónleikunum fengu að þróast og blómstra í tónlistarskólum svæðisins. Hugsið ykkur hvað við erum rík af hæfileikafólki!

Takk fyrir þið öll sem komuð fram – og takk þið öll sem mætið á viðburði sem staðið er fyrir á svæðinu. Það væri til lítils að standa fyrir viðburðum ef fólk kæmi ekki til að njóta þeirra.

Áfram við! Og áfram með kærleikann.

Takk fyrir.

Höf. mbb

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga